Morgunblaðið - 23.09.2022, Side 30
Kristbjörg Sigurjónsdóttir ljósmyndari hefur komið sér vel fyrir í fallegri
íbúð í Grafarvoginum ásamt fjölskyldu sinni. Kristbjörg á lifandi heimili
sem tekur reglulega breytingum og er hún dug-
leg að grafa upp gamla notaða fjársjóði.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is
H
eimilisstíllinn er alls konar,
gamalt og nýtt í bland myndi ég
segja. Ég er ekki föst í ein-
hverjum sérstökum stíl eða lit-
um. Ég vil að heimilið sé nota-
tegt og persónulegt, þá á ég við að þegar
fólk kemur til okkar þá ætti það að vera
nokkuð ljóst hver býr á þessu heimili. Fyrir
mér eru húsgögn ekki bara dauðir hlutir, við
eigum nokkrar mublur og hluti sem við höfum
fengið þegar einhver náinn okkur hefur dáið og
ég get ekki að því gert að þykja vænt um þess-
ar mublur. Þær minna mig á fólkið sem átti
þær,“ segir Kristbjörg um stílinn á heimilinu.
„Smekkur minn hefur ekki mikið breyst með
árunum, ég hef alltaf verið fyrir að blanda sam-
an gömlu og nýju. Gæðin á húsgögnunum er
það sem hefur breyst, í dag vil ég kaupa vand-
aðri húsgögn. Smekkurinn verður þar af leið-
andi bara dýrari með árunum. Það er líka sumt
sem mér fannst ekki fallegt áður fyrr en finnst
mjög fallegt í dag, eins og til dæmis hraunuðu
vasarnir og skálarnar frá Gliti.“
Fjölskyldan ver mestum tíma í stofunni en
Kristbjörg hefur lagt mikið upp úr því að gera
hana notalega. „Mér finnst mjög mikilvægt að
hafa heimilið notalegt. Í stofunni er mikið af
rúnnuðum línum sem gerir rýmið mýkra og
notalegra. Mottur, teppi og púðar gera heimilið
líka hlýlegra.“
Kristbjörg er ljósmyndari og hefur það áhrif
á hvernig hún sér fyrir sér heimilið. Hún segir
ljósmyndara yfirleitt hafa góða rýmisgreind en
sjálf segist hún sjá allt fyrir sér í römmum.
Hún er einnig mjög dugleg að breyta til heima
hjá sér.
„Ég er mjög dugleg að breyta til og hef mjög
gaman af því að raða saman hlutum og end-
urraða svo einhverjum vikum seinna. Hús-
gögnin fá samt yfirleitt að vera í friði en það er
hægt að gjörbreyta rými bara með því að færa
til mottur, myndir og hluti. Það hanga fáar
myndir á veggjunum hjá mér, flestum myndum
er stillt upp á kommóðum og gólfi og svo er ég
með myndahillu sem er mjög sniðugt fyrir
svona breytingarglaða manneskju eins og mig.
Með því að raða upp á skenki er svo auðvelt að
skipta um myndir og ég þarf þá ekki að hafa
áhyggjur af því að það sé einhver nagli í veggn-
um sem ekki er þörf á lengur.“
Kristbjörg er mjög útsjónarsöm við að fegra
heimilið og góð í að þefa uppi fjársjóði.
„Ég er dugleg að kaupa notað og gefa göml-
um hlutum nýtt líf. Ég hef gert góð kaup á sölu-
síðum á Facebook og svo í nytjamörkuðum. Ég
safna gömlum myndavélum, plakötum og alls
konar listaverkabókum og svo reynir maður að
finna einhverja gullmola. Fyrir ekki svo löngu
gerði ég góð kaup á sölusíðu á Facebook og
keypti tvo stóla eftir Hjalta Geir Kristjánsson
sem er húsgagnahönnuður sem ég held mikið
upp á,“ segir Kristbjörg.
Tekkstólarnir tveir eru með dökkgráu
áklæði og njóta sín vel í stofunni. „Borðstofu-
stólarnir mínir eru líka eftir Hjalta Geir en
fjóra af þeim fékk ég úr dánarbúi, ég fann svo
þrjá í viðbót á sölusíðum á Facebook og ég er
enn að leita að einum svona stól í viðbót til að
eiga átta.“
Áttu þér uppáhaldshlut eða -listaverk?
„Ég er mjög ánægð með málverkið sem hún
Berglind Sigmarsdóttir vinkona mín málaði.
Það er svo flottur kontrast á málverkinu og
rýminu sem það er í, litirnir tóna engan veginn
við það sem er í kring en það gerir það svo
áberandi og skemmtilegt. Svo verð ég að nefna
gömlu myndavélarnar mínar sem ég hef fundið
á ýmsum mörkuðum í gegn um árin bæði hér á
Íslandi og erlendis. Þær eru ekki bara punt
heldur nota ég þær líka. Ég tók einmitt nokkr-
ar gamlar myndavélar og útrunnar filmur með
mér í ferðalag um landið í sumar og útkoman á
myndunum var mjög skemmtileg.“
Er eitthvað á óskalistanum?
„Mig langar í falleg veggljós í borðstofuna
eins og er og svo langar mig í pall og heitan pott
en þá verð ég víst að kaupa mér hús.“
„Ég vil að heimilið
sé notalegt og
persónulegt“
Borðstofustólarnir eru eftir Hjalta Geir
Kristjánsson en Kristbjörg er búin að
safna sér sjö stólum í gegnum tíðina.
Stólarnir koma vel út með Y-stólnum
eftir Hans J. Wegner.
Kristbjörg
Sigurjónsdóttir
ljósmyndari á
notalegt heim-
ili.
Kristbjörg raðar oft upp á nýtt og
þá er sniðugt að tylla listaverkum
á hillur og kommóður.
Morgunblaðið/Eggert
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022