Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 4
Ef menn eru með
grunsemdir um að þeir
séu með hjartaáfall þá
er mikilvægt að þeir
séu ekki sendir heim
heldur að hjartalæknir
sé kallaður til.
Sveinn
Guðmunds-
son, formaður
Hjartaheilla
,,Hægt og rólega fann maður
sjálfstraustið aukast”
,,Ég mæli eindregið með Dale Carnegie. Æfingarnar
sem notaðar voru á námskeiðinu voru mjög krefjandi
en hægt og rólega fann maður sjálfsöryggið aukast”
- Viktor Gísli Hallgrímsson
Dale Carnegie hjálpar þér að leysa út læðingi orkuna sem í
þér býr og gefur hugsunum þínum vængi.
Sjáðu dagsetningar og upplýsingar um öll námskeið á dale.is
Mikilvægt er að sögn for-
manns Hjartaheilla að fólk
með grun um hjartabilun
fái meðhöndlun sem útiloki
vafa. Landlæknir og lögregla
rannsaka andlát sjúklings.
bth@frettabladid.is
Heilbrigðismál Maður sem lést á
heimili sínu skömmu eftir að hann
var útskrifaður af bráðamóttöku
Landspítalans milli jóla og nýárs
leitaði á móttökuna vegna verks
fyrir hjarta. Dánarmein hans var
hjartaáfall.
Andri Ólafsson, sem sér um fjöl-
miðlasamskipti fyrir Landspítal-
ann, segir spítalanum óheimilt
að tjá sig um einstök mál. Nánari
upplýsingar en þegar hafi komið
fram verði ekki gefnar út fyrr en að
lokinni rannsókn. Málið hafi strax
verið tilkynnt til Landlæknis og
lögreglu í samræmi við verklags-
reglur.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að ekki sé augljóst að samhengi
hafi verið á milli afdrifa manns-
ins og álags á bráðamóttökuna
þótt getum hafi verið leitt að slíku
í fjölmiðlum. Ef andlát verður hjá
sjúklingi skömmu eftir að hann
er útskrifaður fer ákveðið rann-
sóknarferli sjálfkrafa af stað.
„Annað hvort var allt gert sem
hægt var að gera á bráðamót-
tökunni og óhappatilviljun hefur
ráðið för eða þá að um grafalvarlegt
mál er að ræða,“ segir sérfræðingur
sem kýs nafnleynd. „Það er von-
laust að spá fyrir um það á þess-
ari stundu á hvorn bóginn niður-
staðan verður.“
Maðurinn var innan við sextugt
er hann lést. Málið er rannsakað
sem alvarlegt atvik. Fréttastofa
Ríkisútvarpsins sagði fyrst frá og
hefur komið fram að maðurinn
hafi áður verið hraustur. Hann hafi
gengist undir skoðun og rannsókn-
ir áður en hann var sendur heim.
Sveinn Guðmundsson, formaður
Hjartaheilla, þekkir ekki sérstak-
lega til þessa tiltekna máls. Hann
segir almennt mjög mikilvægt að
heilbrigðisstarfsfólk taki því alvar-
lega ef fólk finnur fyrir verk sem
það tengir hugsanlega við hjarta-
bilun.
„Það má ekki taka einkenni
vegna hjartaverkja sem léttvæg,“
segir Sveinn. Hann nefnir verk út
í bak, öxl eða jafnvel kjálka sem
dæmi um einkenni sem þó séu ólík
eftir kynjum
„ Ef men n er u með g r u n-
semdir um að þeir séu með hjarta-
áfall þá er mikilvægt að þeir séu
ekki sendir heim heldur að hjarta-
læknir sé kallaður til. Ef ekki hefur
verið tekið hjartalínurit þá er það
mjög alvarlegt,“ segir Sveinn.
Annar hver Íslendingur deyr úr
hjartasjúkdómi.
„Við erum að reyna að senda út
þau skilaboð að þú átt alltaf að leita
þér aðstoðar,“ segir Sveinn.
„Sá sem heyrir aukahljóð í bíln-
um fer með bílinn á verkstæði. Það
þarf ekki að nefna að þá er miklu
ríkari ástæða til að fara til læknis
ef eitthvað breytist skyndilega. Þá
er mikilvægt að gengið sé úr skugga
um að allt sé í lagi.“
Fréttablaðið sendi fyrirspurn á
Embætti landlæknis og reyndi að
auki að ná tali af aðstoðarmanni
landlæknis en án árangurs. n
Fór á bráðamóttöku vegna hjartaverks
og lést úr hjartaáfalli rétt eftir útskrift
Rannsókn er
hafin á því hvers
vegna maður
sem leitaði á
bráðamóttöku
Landspítala
vegna gruns um
hjartabilun var
sendur heim að
lokinni skoðun.
Hann lést úr
hjartaáfalli.
fréttablaðið/
ernir
helgisteinar@frettabladid.is
Öryggismál Albert Jónsson, fyrr-
verandi sendiherra Íslands í Rúss-
landi, segir enga þörf á verulegum
breytingum á öryggismálum Íslands.
Þetta kemur fram á vefsíðu
Alberts sem kveður litlar líkur á því
að stríðið í Úkraínu stigmagnist í
stríð milli NATO og Rússlands.
Albert segir að rússneskar her-
f lugvélar, sem rufu oft f lughelgi
Íslands fyrir nokkrum árum, hafi
ekki látið sjá sig í tvö og hálft ár.
Hernaðarmáttur Rússa á megin-
landinu hafi minnkað töluvert
vegna stríðsins og að það muni taka
mörg ár að endurreisa hann.
„NATO-ríkin hafa einungis tekið
sig á í varnarmálum eftir margra ára-
tuga vanrækslu og leggja nú meira fé
af mörkum til landvarna. Finnland
og Svíþjóð virðast vera einu ríkin
sem hafa endurmetið varnarhags-
muni sína,“ skrifar Albert. Varnir
Íslands byggist aðallega á varnar-
samningnum við Bandaríkin. Lang-
öf lugasta herveldi heims muni
standa við skuldbindingar gagnvart
Íslandi á hættutímum. n
Segir varnarsamninginn við Ísland verða efndan
olafur@frettabladid.is
NeyTeNDUr Matvælaráðuneytið
tilkynnti í vikunni að á grundvelli
tillagna spretthóps um stuðning
við matvælaframleiðslu myndi það
greiða samtals 450 milljónir króna til
búgreina sem ekki njóta framleiðslu-
stuðnings samkvæmt búvörusamn-
ingum vegna kostnaðarhækkana við
fóðuröflun.
Hér er um að ræða verksmiðju-
framleiðslu á svína- og alifuglakjöti
og eggjum. 225 milljónir renna til
svínakjötsframleiðslu, 160 milljónir
til framleiðenda alifuglakjöts og 65
milljónir til eggjaframleiðenda.
Þessir sömu framleiðendur hafa
nú í kringum áramótin tilkynnt
hækkanir á heildsöluverði á bilinu
3,4 til 8 prósent samkvæmt gögnum
sem Fréttablaðið hefur undir hönd-
um.
Í gær óskuðu VR, Landssamband
íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðn-
aðarsambandið og Félag atvinnurek-
enda saman eftir fundi með Svandísi
Svavarsdóttur matvælaráðherra og
Bjarna Benediktssyni fjármálaráð-
herra til að ræða lækkun og niður-
fellingu tolla í þágu neytenda.
Sérstaklega er bent á að ræða þurfi
framkvæmd á útboðum tollakvóta
út frá hagsmunum neytenda. n
Hækka verðið
þrátt fyrir styrki
Kjúklinga-, svína- og eggjarækt er
talin verksmiðjubúskapur.
kristinnpall@frettabladid.is
ÚkraíNa Yfirvöld í Úkraínu gáfu
í gær lítið fyrir ósk Vladímírs Pút-
íns, forseta Rússlands, um 36 tíma
vopnahlé sem hefjist í hádeginu í
dag til að Rússar geti haldið jól.
Mykhailo Podolyak, ráðgjafi
Volodimir Zelenskij, forseta Úkra-
ínu, sagði Rússa fyrst þurfa að skila
hernumdum svæðum til Úkraínu.
Fyrr um daginn lýsti Pútín áhuga á
friðarviðræðum í samtali við forseta
Tyrklands, Recep Tayyip Erdoğan, en
Podolyak hafnaði þeirri hugmynd. n
Úkraína hafnar
vopnahléi Pútíns
Frá stórri her-
æfingu sem
fram fór í Hval-
firði.
fréttablaðið/
anton brink
4 Fréttir 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURFréttablaðið