Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 20
Speak No Evil sló í gegn á Sundance kvikmyndahátíðinni 2022 og er á stuttlista yfir myndir sem hljóta Óskarstilnefningu sem besta erlenda myndin. Í myndinni er vísað til þess að pabbi Woody Harrelson var raunverulegur leigu- morðingi sem drap dómara í San Antonio. Titill myndarinnar er úr ljóðinu Sailing to Byzantium eftir írska ljóðskáldið William Butler Yeats sem var gefið út árið 1935. Dönsk hjón, Björn og Louise, eru í fríi í Toskana á Ítalíu ásamt dóttur sinni, Agnesi, og kynnast þar hol- lenskum hjónum, Patrik og Karin, og syni þeirra, Abel. Það fer afskap- lega vel á með fjölskyldunum og eyða þær miklum tíma saman. Nokkrum vikum eftir heim- komuna til Danmerkur berst þeim boð frá hollensku hjónunum um að heimsækja þau á heimili þeirra, sem er á afskekktum stað í Hol- landi. Þau þiggja boðið. Eftir átta tíma akstur renna þau í hlað á áfangastað full tilhlökkunar fyrir heimsókninni. Stuttu eftir komuna fær Louise þó ónotatil- finningu vegna aðgerðalausrar árásargirni (e. passive-aggressive- ness) gestgjafanna, meðal annars tillitsleysi Patriks gagnvart því að hún er grænmetisæta og harkalegri hegðun hans gagnvart Abel, auk þess sem Karin blótar mikið. Heimsóknin er mjög óþægileg og vandræðaleg en svo fer að Björn og Louise reyna að vera kurteis og fallast á að vera áfram. Atburða- rásin verður æ ógnvænlegri og augljóst er að ekki er allt sem sýnist. Ekki líður á löngu þar til ljóst er að það er spurning um líf og dauða hvort dönsku fjölskyldunni tekst að forða sér. Speak No Evil sló í gegn á Sundance-kvikmyndahátíðinni 2022 og er á stuttlista yfir myndir sem hljóta Óskarstilnefningu sem besta erlenda myndin. Kvikmyndin er nánast öll á ensku. Myndin saitur svo sannarlega í áhorfendum því að hér er um ein svakalegasta sálfræðitrylli síðustu ára að ræða og ljóst er að hún verður ein af umtöluðustu myndum ársins 2023. n Bíó Paradís Ísköld dönsk verðlaunahrollvekja Fróðleikur n Hollensku hjónin Karin (Karina Smulders) og Patrik (Fedja van Huet) eru í alvöru hjón. n Handritshöfundurinn og leikstjórinn, Christian Tafdrup, fékk hugmyndina að myndinni þegar hann var í fríi í Toskana og hann og kona hans hittu vingjarnleg en félagslega vandræðaleg hjón frá Hollandi. Þegar heim kom fengu þau boð frá Hollandi um að koma í heimsókn en þáðu ekki, en hugmyndaflug Tafdrups komst í hæstu hæðir. Frumsýnd: 12. janúar 2023 Aðalhlutverk: Morten Burian, Sidsel Siem Koch, Fedja van Huet og Karina Smulders Handrit: Christian Tafdrup og Mads Tafdrup Leikstjórn: Christian Tafdrup Kvikmynd Coen-bræðranna No Country for Old Men (2007) er kvikmyndaðlögun bók- menntaverksins með sama titli eftir hinn magnaða rithöfund Cormac McCarthy. Myndin hlaut fern Óskarsverðlaun, meðal annars sem besta kvikmynd og fyrir bestu leikstjórn, og er mögulega ein af bestu myndum 21. aldar. Fróðleikur um No Country for Old Men Dularfullur titill Dularfullur titill myndarinnar/ verksins er iðulega túlkaður þannig að nú sé ofbeldi komið á slíkt stig að það sé ekki skiljanlegt eldra fólki sem trúir á góð gildi, rétt eins og lögreglustjórinn Bell (Tommy Lee Jones). Vel má vera að eitthvað sé til í því, en svo því sé haldið til haga er titill myndar- innar tekinn úr ljóðinu Sailing to Byzantium (útg. 1935) eftir írsku þjóðargersemina William Butler Yeats. Las ekki handritið Aðalleikarar myndarinnar eru þeir Tommy Lee Jones, Javier Bardem, Josh Brolin (aldrei slæmur hár- dagur) og Woody Harrelson, sem fer með hlutverk leigumorðingja. Sagan segir að Josh Brolin hafi haft svo mikinn áhuga á að vinna með þeim Coen-bræðrum að hann hafi ekki haft fyrir því að lesa handritið áður en hann samþykkti að leika í myndinni. Slasaður í alvöru Brolin slasaðist í mótorhjóla- slysi stuttu áður en upptökur hófust en beið með að fara í aðgerð til að tryggja að hann missti ekki af tækifærinu. Karakter hans, Llewelyn Moss, er skotinn snemma í myndinni í þá öxl Brolins sem var löskuð fyrir, þannig að þessi meiðsl ljáðu ef til vill leik hans aukinn trúverðugleika. Sjaldan fellur eplið … Hér er ekki úr vegi að nefna – í ljósi alls tals um kúltúrbörn – að Brolin er sonur leikarans James Brolin, sem er giftur Barbra Streisand. Hann var iðulega kallaður „Lady- killer“ Brolin í gulu pressunni, svo myndarlegur þótti hann. Saldan fellur eplið langt frá eikinni, en segjast verður eins og er að Josh Brolin er föðurbetrungur þegar kemur að leikhæfileikum. Sonur leigumorðingja Leikarinn ástsæli, Woody Harrel- son, leikur leigumorðingjann Carson Wells í myndinni. Í bókinni (ekki myndinni) er talað um að Carson Wells hafi myrt dómara í San Antonio og nú snúast hlutverk feðga á hvolf, því að faðir Woodys var nefnilega lítilsigldur leigu- morðingi sem drap dómara í San Antonio.Hér eru feðgarnir James og Josh Brolin á góðri stund ásamt Barbra Streisand, eiginkonu James Brolin og stjúpmóður Josh. Brolin eldri var mikill hjartaknúsari á yngri árum og kallaður „Ladykiller“ Brolin. Woody Harrelson, sem leikur leigu- morðingja, er í raun sonur leigu- morðingja. 8 kynningarblað 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURKviKMyNdir MáNaðariNs

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.