Fréttablaðið - 06.01.2023, Side 8
n Halldór
n Frá degi til dags
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Endurhæf
ing og bati
Guðmund
ar Felix,
réttum
tveimur
árum eftir
afar flókna
handa
ágræðslu á
frönskum
spítala,
hefur geng
ið langt
framar
vonum.
Heildar
viðbótar
kostnaður
er á milli
200 og 300
milljarðar
króna.
Þetta er
bara ekki
ásættanlegt
lengur.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
ser@frettabladid.is
Bráðavandi
Það er ekki að spyrja að raun-
veruleikatengslum hinnar
hátimbruðu löggjafarsamkundu
þjóðarinnar. Þingflokksformað-
ur Flokks fólksins, Guðmundur
Ingi Kristinsson, er ekki fyrr
búinn að lýsa því yfir, persónu-
lega og prívat, að neyðarástand
ríki í heilbrigðiskerfi lands-
manna vegna álags, kulnunar og
fólksflótta af völdum fráflæðis-
vanda, að formaður velferðar-
nefndar þingsins, Líneik Anna
Sævarsdóttir, bregst við kallinu.
Hún ætlar að boða til fundar á
næstu vikum í nefndinni, altso
er jólafríi þingmanna lýkur. Það
gæti orðið undir lok janúar.
Pósturinn
Vegir póstsins eru órannsakan-
legir. Þeir sem hafa lagt sig í
framkróka við að kanna þá til
hlítar hafa endað úti í móa. Þetta
fékk kunningi blaðsins að reyna
er hann fékk sendingu úr Breta-
veldi, vel innpakkaðan pappa-
kassa frá dótturdóttur sinni,
sjö ára hnátu, sem var að senda
ömmu og afa jólagjöf. Hún hafði
samviskusamlega pakkað henni
inn í jólapappír með slaufu og
merkimiða, en þar fyrir utan, á
póstumslaginu, var samvisku-
samlega tilgreint að um gjöf væri
að ræða. Á umslagið höfðu póst-
yfirvöld ritað hvert innihaldið
var og eyðilagt þannig alveg jóla-
stemninguna, takk fyrir. n
Eftir að Króatía náði langþráðu markmiði sínu um
áramótin og skipti út gjaldmiðli sínum fyrir evru eru
þau orðin 20 Evrópulöndin sem nýta sér þennan næst-
stærsta gjaldmiðil heims til hagsbóta fyrir ríkissjóð
viðkomandi landa, fyrirtæki og heimili. Þá eru ótalin
ríki utan Evrópusambandsins sem nota evru, ýmist
með samningi við ESB eða einhliða.
Á evrusvæðinu búa um 344 milljón borgarar. Frá því
að Evrópusambandið tók upp sameiginlegan gjald-
miðil hefur evrunni margoft verið spáð hrakförum
og jafnvel andláti. Ekki kemur á óvart að spámenn-
irnir hafa oftar en ekki verið úr röðum andstæðinga
Evrópusambandsins og spádómarnir þá ekki síst verið
til heimabrúks.
Raunveruleikinn er sá að notendur evrunnar eru
ánægðir. Það sýna kannanir svo ekki verður um villst.
Hugmyndin um sameiginlegan gjaldmiðil sem flestra
Evrópulanda var vissulega djörf en á þeim ríflega 20
árum sem liðin eru hafa kostirnir verið umtalsvert
meiri og afdrifaríkari en gallarnir. Og hefur þó gengið
á ýmsu þessi ár þar sem fullkomið hrun á fjármála-
mörkuðum og stríð innan Evrópu ber auðvitað hæst.
Af hverju fær almenningur hér á Íslandi ekki að njóta
þeirra kosta sem um 344 milljónir íbúa í nágranna-
löndum okkar sækjast eftir? Það þarf óhemju stóran
skammt af sjálfsblekkingu til að segjast tala fyrir
hagsmunum heimila og fyrirtækja en hunsa um leið
þann óviðunandi viðbótarvaxtakostnað sem íslenska
krónan leiðir af sér um hver einustu mánaðamót. Svo
vinnur það auðvitað beint gegn hagsmunum almenn-
ings þegar ríkissjóður þarf að greiða marga tugi millj-
arða króna á ári í þennan óþarfa viðbótarvaxtakostnað
af skuldum sínum. Þetta dregur svo um munar úr getu
stjórnvalda til að fjárfesta í og reka nauðsynlega innviði
á borð við samgöngur og heilbrigðisþjónustu.
Við erum föst í aðstæðum þar sem vaxtakjörin sem
standa okkur til boða jafnast á við vanskilavexti á
evrusvæðinu. Heildarviðbótarkostnaður er á milli 200
og 300 milljarðar króna. Þetta er bara ekki ásættan-
legt lengur. Ekki fyrir heimili. Ekki fyrir fyrirtæki.
Ekki fyrir ríkissjóð. n
Óásættanlegt fyrir alla
Hanna Katrín
Friðriksson
þingflokksfor-
maður Viðreisnar
Það ætti að vera skylda allra lands-
manna að hlusta á og sjá Guð-
mund Felix Grétarsson tala frá
hjartanu í nýju viðtali á Frétta-
vaktinni á Hringbraut, sem sent
var út í gærkvöld, en er áfram aðgengilegt á
vef blaðsins, frettabladid.is.
Æðruleysi stafar af hverju orði Guðmund-
ar Felix í þessu viðtali þar sem hann lýsir
því af einlægni hvernig hann hefur tekist á
við hlutskipti sitt á síðustu áratugum. Og
þar fer saman þakklæti og kímni, einhver
sú besta blanda sem hugurinn þarf á að
halda í veruleika hversdagsins.
Endurhæfing og bati Guðmundar Felix,
réttum tveimur árum eftir afar f lókna
handaágræðslu á frönskum spítala, hefur
gengið langt framar vonum.
Og það getur engin lifandi sála annað
en hrifist af því þegar kappinn lýsir
væntingum sínum og vonum sem reikað
hafa um huga hans á síðustu árum, bæði
fyrir og eftir aðgerðina. Hann var að öllu
leyti búinn að búa sig undir þau ósköp
að ágræðslan mistækist að mestu eða að
öllu leyti, taka þyrfti nýju handleggina af
honum að hluta eða öllu leyti – og að hand-
langarinn, eins og hann kallaði sjálfan sig
á biðtímanum eftir nýjum handleggjum,
stæði aftur uppi handalaus – og það til
eilífðarnóns.
En þess þá heldur að hann væri fullur
þakklætis þegar hann fyndi fyrir því á
hverjum degi, hverri einustu mínútu, að
mátturinn væri að streyma fram í hend-
urnar og fingurna. Og enda þótt það væri
enn þá svo að þegar hann biti í þumal-
puttann og verkurinn kæmi fram í næsta
fingri til hliðar, væru taugarnar samt að ná
áttum, smám saman – og myndu að öllum
líkindum finna sína leið út í ystu kjúkur á
endanum.
Svo baðaði hann út höndunum í miðju
viðtalinu, klóraði sér í nefinu, sem hann
sagði vera dásamlega hreyfigetu sem hann
hefði saknað í 23 ár, en að svo búnu tók
hann með báðum lófum utan um vatns-
glas á borðinu í myndverinu og lyfti því að
vörum sér og tók góðan sopa.
Það segir alla söguna um sigurgöngu
þessa manns, sem reynt hefur meira á eigin
skinni en langflestir aðrir landsmenn, að
hann fékk að vera einn heima um heila
helgi, fyrir nokkrum vikum, í fyrsta skipti í
aldarfjórðung, einn og óstuddur.
Til hamingju, Guðmundur Felix. n
Til hamingju
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
Skoðun FréTTablaðið 6. janúar 2023 FÖSTuDAGuR