Fréttablaðið - 06.01.2023, Síða 10
Það er gaman að eiga
afmæli á þrettándanum
og ég fæ yfir til mín vini
og vandamenn í fiskisúpu
í dag, að vanda.
Hafmeyjan hafði áður
misst höfuðið þegar það
var sagað af árið 1964.
Þrettándabarnið Þórunn Lárus-
dóttir fagnar fimmtugsafmæli
í dag. Hún segir gaman að eiga
afmæli á þrettándanum en viður-
kennir aðspurð að hún sakni þó
sólarinnar í Sitges.
arnartomas@frettabladid.is
„Ég er rosalegt afmælisbarn og hef alltaf
fagnað hverjum einasta afmælisdegi,“
segir Þórunn Lárusdóttir, söngkona,
leikkona og leikstjóri, sem fagnar fimm-
tíu ára afmæli sínu í dag. „Það er gaman
að eiga afmæli á þrettándanum og ég fæ
yfir til mín vini og vandamenn í fiski-
súpu í dag, að vanda.“
Þórunn og fjölskylda bjuggu um tíma
í Sitges á Spáni en f luttu aftur til Íslands
fyrir einhverju síðan. Saknar fjölskyldan
ekkert Spánar í þessum íslensku vetrar-
hörkum?
„Þú getur rétt ímyndað þér!“ svarar
Þórunn hlæjandi. „Ég sagði einmitt við
dóttur mína um daginn þegar frostið
var sem mest að mig mig langaði svo til
Sitges að ég væri alveg að deyja.“
Samdrættir og söngdívur
Það var einmitt í Sitges þar sem Þórunn
lærði kvikmyndagerð en hún er núna á
fullu að fjármagna bíómynd. „Þetta er
handrit sem ég skrifaði með vinkonu
minni og er að vona að hún geti farið í
framleiðslu í sumar,“ segir hún. „Þetta
er skemmtilegt fjölskylduævintýri, með
nóg af söngi, dansi, gríni og glensi.“
Þá er Þórunn einnig að æfa verkið
Samdrætti eftir enska leikskáldið Mike
Bartlett sem verður frumsýnt í Tjarnar-
bíói í febrúar í leikstjórn Þóru Karítasar
Árnadóttur.
„Þetta er rosalega marglaga verk og
bráðfyndið með djúpum undirtóni.
Algjört konfekt fyrir leikarann,“ segir
Þórunn um Samdrætti sem fjallar að
vissu leyti um eitraða vinnustaðamenn-
ingu. „Það getur bæði verið hálfsúrreal-
ískt og ekki - þetta fær mann til að spyrja
sig spurninga eftir áhorfið.“
Á prjónunum hjá Þórunni eru þá
óupptaldir tónleikar í Salnum í Kópa-
vogi 14. janúar þar sem hún stígur á
stokk ásamt vinkonum sínum Margréti
Eir, Siggu Eyrúnu og Hönsu.
„Þetta eru skemmtilegir dívutónleikar
þar sem við höfum tekið saman okkar
uppáhalds leikhús- og söngleikjamúsík
– ég hlakka rosalega til!“
Grímuball af stærri gerðinni
Þórunn hefur venjulega þann sið að
hlaða í stórt partí á afmælisdeginum en
vegna aðstæðna í dag mun það aðeins
frestast í ár. „Ég ætla ekki að halda upp
á afmælisdaginn heldur afmælisárið,“
segir hún og er með ýmis plön til að
framfylgja því.
Stærsta afmælispartíið til þessa var
fertugsafmæli Þórunnar þegar hún hélt
grímuball af stærri gerðinni.
„Ég fór alveg alla leið og það var ógeðs-
lega gaman,“ minnist hún. „Ég var með
vegleg verðlaun fyrir besta grímubún-
inginn sem gerði það að verkum að fólk
setti þvílíkan metnað í búninginn. Það
er svo gaman að halda svona grímuball
því þá fer fólk að tala saman sem þekkist
ekkert, enda er það líklega ástæðan fyrir
því að þetta er upphaflega gert.“ n
Fiskisúpa á fimmtugsafmælinu
Þórunn Lárudóttir er með bíómynd á prjónunum og efnir líka til tónleika um aðra helgi með vinkonum sínum. Fréttablaðið/Valli
Höfuð litlu hafmeyjunnar, frægustu
styttu Danmerkur og einkennistákns
Kaupmannahafnar, var horfið þann
6. janúar 1998. Þetta var ekki í fyrsta
skipti sem hafmeyjan missti höf-
uðið en það hafði fyrst verið sagað af
árið 1964 og var höfuðið sem nú var
horfið því eftirmynd. Sökudólgarnir í
skemmdarverkinu í þetta skipti fund-
ust aldrei en höfðinu var skilað nafn-
laust og fest aftur á þann 4. febrúar á
sama ári.
Litla hafmeyjan hefur í gegnum tíð-
ina verið algengt skotmark skemmdar-
varga sem hafa meðal annars höggvið
af henni handlegginn, sprengt hana
af stalli sínum, fest á hana gervilim og
málað hana í alls konar litum. Styttan
er eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna
í Kaupmannahöfn og sýnir umbreyt-
ingu hafmeyjunnar í manneskju úr
ævintýri H.C. Andersen. n
Þetta gerðist: 6. janúar 1998
Litla hafmeyjan afhöfðuð
Merkisatburðir
1709 Mesta kuldatímabil í Evrópu í 500 ár hefst og
stendur í þrjá mánuði. Tugþúsundir manna deyja úr
kulda og enn fleiri úr hungri vegna uppskerubrests
um sumarið og haustið.
1902 Í Reykjavík er haldinn grímudansleikur í fyrsta sinn
og þykir góð skemmtun.
1919 Frímúrarareglan á Íslandi stofnuð.
1957 Elvis Presley kemur fram í þriðja og síðasta skipti
í sjónvarpsþætti Eds Sullivan og er aðeins sýndur
fyrir ofan mitti, þar sem mjaðmahreyfingar hans
þykja ósiðlegar.
1986 Hafskipsmálið: Íslenska skipafélagið Hafskip lýst
gjaldþrota.
1990 Sjónvarpsþáttur Spaugstofunnar, 90 á stöðinni,
hefur göngu sína í Ríkisútvarpinu.
arnartomas@frettabladid.is
Heilsuátakið Þurr janúar hefur rutt sér rúms á Íslandi á und-
anförnum árum en þar er öllu áfengi sleppt í janúarmánuði.
Átakið á rætur sínar að rekja til Bretlands en hefur síðan þá
teygt út anga sína til fjölda landa. Á Íslandi eru bindindissam-
tökin IOGT meðal þeirra sem standa að Þurrum janúar og segir
Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri þeirra, að áhugi á
átakinu aukist ár hvert.
„Þetta er þriðja árið sem við höldum þessu úti,“ segir Aðal-
steinn. „0,22 prósent þjóðarinnar notuðu appið okkar – rosa-
lega lág tala en gríðarlega stórt hlutfall á svona sértæku appi.
Það er mun meiri þátttaka hér miðað við aðrar þjóðir.“
Þá eru auðvitað einhverjir sem taka þátt án þess að nota
appið.
Heilsufarslegur ávinningur þess að hætta drykkju alfarið
er títt ræddur en hefur það nokkuð upp á sig að hætta í einn
mánuð?
„Þú verður síður veikur, kynlífið þitt getur batnað, svefninn
batnar, blóðþrýstingurinn lækkar og svo lengi mætti telja,“
segir Aðalsteinn sem bendir fólki á að kynna sér Þurran janúar
nánar á Facebook-síðu átaksins. n
Sleppa búsi í janúar
Sífellt fleiri taka þátt í þurrum janúar ár hvert. Fréttablaðið/Getty
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, sonur,
bróðir, mágur og tengdasonur,
Atli Steinar Stefánsson
Axfjörð
Hólabraut 8, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 30. desember sl.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á reikning nr. 0123-15-086370, kt. 280670-5539.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, 12. janúar kl. 13.00.
Helga Sif Grétarsdóttir
Víkingur Örn Atlason Axfjörð
Kristín Þ. Matthíasd. Axfjörð Stefán Friðrik Ingólfsson
Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir Aðalsteinn Leifsson
Matthías Stefánsson
Herdís Rut Hallgrímsdóttir Grétar Guðmundsson
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
Þorsteinn Svörfuður
Stefánsson
yfirlæknir,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
miðvikudaginn 4. janúar sl.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
miðvikudaginn 11. janúar kl. 13.
Sólveig Þorsteinsdóttir Jorge Palmeirim
Árni Þorsteinsson María Loftsdóttir
Heimir Þorsteinsson Hanna Þóra G. Thordarson
barnabörn og barnabarnabörn
TímamóT FréttabLaðið 6. janúar 2023 FÖSTUDaGUR