Fréttablaðið - 06.01.2023, Síða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 6. janúar 2023
Allt galið gott hjá Palla
Eftir að Páll Óskar Hjálmtýsson kvaddi gamla árið með skemmtilegum smelli í
áramóta-skaupinu skemmti hann Íslendingum á Tenerife og tryllti salinn í brjálaðri
stemmingu. Á sunnudag tekst hann síðan á við gullöldina í Hörpu. 2
Palli hefur notið lífsins á Tenerife þar sem hann tryllti íslenska ferðamenn á Pallaballi. Á sunnudaginn syngur hann með Stórsveit Reykjavíkur í Hörpi.
MYND/STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR
Boðið verður upp á ókeypis skauta-
stund á morgun. MYND/AÐSEND
starri@frettabladid.is
Á morgun, laugardaginn 7. janúar,
verður gestum og gangandi boðið
frítt á skauta og í kaffi og kökur
á milli klukkan 15.15 og 17.15 í
Skautahöllinni í Laugardal.
Tilefnið er 130 ára afmæli
Skautafélags Reykjavíkur en félag-
ið var stofnað þann dag árið 1893
af Axel V. Tulinius.
„Við vonumst eftir að sjá fólk á
öllum aldri skauta hér á morgun,“
segir Anna Gígja Kristjánsdóttir,
íþróttastjóri listskautadeildar
Skautafélags Reykjavíkur.
„Það má búast við miklu fjöri og
góðum tilþrifum hjá byrjendum
sem lengra komnum. Í hléinu
klukkan 16 ætlum við svo að
bjóða upp á veitingar, þar á meðal
afmælisköku auk þess sem list-
hlaupa- og íshokkídeildir félagsins
munu bjóða upp á sýningu.“
Skemmtileg íþrótt
Anna segir skautaíþróttina vera
skemmtilega og hæfa flestu fólki á
öllum aldri.
„Skautaíþróttin er fjölbreytt og
samtvinnast af dansi, stökkum,
píróettum og tjáningu. Að fara
saman á skauta er eitt af því
fáa sem öll fjölskyldan getur
gert saman. Margir hafa farið í
kringum jólin en við hvetjum alla
til að nýta Skautahöllina mun
betur og fara sem oftast yfir árið.“
Nánar á skautafelag.is. n
Notaleg
fjölskyldustund í
Laugardalnum
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is