Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767
| Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is,
s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
elin@frettabladid.is
Fyrsta sólóplata Páls Óskars kom
út fyrir 30 árum, eða árið 1993. Þótt
hann hafi komið áður fram sem
barnastjarna lítur hann þannig á
að ferillinn hafi hafist með fyrstu
eigin plötu sem nefndist Stuð og
átti vel við enda hefur poppstjarn-
an alla tíð haft einlægan áhuga á
diskótónlist. „Ég lít á barnaferilinn
sem undirbúning fyrir allt hitt,“
segir hann en frægðarstjarna hans
rís enn hátt eins og sannaðist um
áramótin, bæði í áramótaskaupinu
og á Pallaballi á Tenerife. „Áður
en þessi mánuður verður á enda
kemur út nýtt lag sem er þegar
tilbúið. „Ég er mjög spenntur fyrir
því,“ segir hann.
Páll Óskar var á leið í sundlaug-
argarðinn við hótelið á Tenerife
þegar við náðum tali af honum.
„Maður verður að tana smá,“ sagði
hann glettinn. Hann þarf að vera
kominn heim á sunnudaginn
þegar Stórsveit Reykjavíkur heldur
sína árvissu nýárstónleika, Gullöld
sveiflunnar, í Eldborg. Fyrir utan
Palla syngja þau Rebekka Blöndal
og Marína Ósk en Sigurður Flosa-
son er kynnir.
Fara í tímavél
Stórsveitin hefur verið með slíka
tónleika frá árinu 2014 en Palli
söng með hljómsveitinni ári síðar,
eða 2015. Hann kom þó fyrst
fram með henni árið 1998 á Hótel
Íslandi. „Tónleikarnir núna eru
með tónlist frá swing-tímabilinu
í kringum 1930–1950. Stórsveitin
flytur upprunalegar útsetningar
laga þekktustu hljómsveita á
þessum tíma eins og Glenn Miller,
Duke Ellington, Count Basie,
Benny Goodman og Tommy
Dorsey, þetta voru poppstjörnur
þeirra tíma,“ segir Palli og bendir
á að þótt söngvararnir syngi með
sínu nefi er hljómsveitin ekkert
að spara til að gera þennan atburð
sem glæsilegastan með því að spila
eftir gömlu upprunalegu nót-
unum. „Þessi lög voru á sínum tíma
gefin út á 78 snúninga plötum.
Áhorfendur fara í tímavél því þetta
er afturhvarf til fortíðar,“ segir
hann. „Það verður stórkostleg upp-
lifun að hlýða á swing með þessum
stóra hópi hljóðfæraleikara sem
allir eru hoknir af reynslu. Þegar
Stórsveit Reykjavíkur hringir og
býður manni að vera með þá er
svarið auðvitað já,“ áréttar Palli.
Fallinn fyrir Tene
Páll Óskar er fallinn fyrir Tenerife
eins og aðrir Íslendingar. Hann
var með Pallaball á gamlárskvöld
þar sem færri komumst að en
vildu. Palli bætti því við öðru á
nýárs kvöldi sem hann segir að
hafi jafnvel verið enn trylltara.
Þar sem margt fjölskyldufólk var á
Skjáskot úr loka
lagi áramóta
skaupsins en
margir hafa
fengið lagið
Bless og búið á
heilann.
Það er alltaf
stuð þar sem
Palli er en fyrir
30 árum kom
út fyrsta sóló
plata hans sem
nefndist Stuð.
Segja má að það
nafn hafi verið
vel til fundið
á sínum tíma.
MYND/STÓRSVEIT
REYKJAVÍKUR
Mér fannst mjög
skemmtilegt að
taka þátt í þessu verkefni
og skaupið eitt það allra
fyndnasta sem ég hef séð.
Ég hló upphátt.
Tenerife gerði hann enn betur og
bauð ókeypis fjölskylduskemmtun
á gamlársdag þar sem börnin nutu
sín vel enda höfðar Páll Óskar til
fólks á öllum aldri. „Þetta var stór-
kostleg upplifun í alla staði. Það
fór bara allt á hliðina enda mikill
fjöldi Íslendinga á staðnum,“ segir
hann.
„Ég kíkti í stutta heimsókn til
Tenerife í fyrsta skiptið í október
til að skoða aðstæður fyrir Palla-
ballið og hvort það væri yfirhöfuð
hægt að gera þetta. Svali Kalda-
lóns, sem býr á Tenerife og er með
ferðaskrifstofuna tenerifeferdir. is,
var mér innan handar en hann
hefur leyfi til að vera með viðburði
á staðnum. Þetta endaði auðvitað
með því að ég þurfti að gera tvö
böll sem haldin voru á Íslendinga-
barnum St. Eugens,“ útskýrir hann.
„Það rann upp fyrir mér um
áramótin að ég hef gert ótrúlegan
fjölda popplaga í þrjátíu ár og
þegar þau koma saman verður
til hljóðrás fyrir þetta ferlíki sem
heitir núna Pallaball. Það er svo
fallegt að finna fyrir því að þessi
lög hafa líka verið eins konar
„soundtrack“ þeirra sem mæta á
böllin mín og snert líf þessa fólks.
Hver einasti sem mætti öskursöng
með lögunum og aldursbilið var
ansi breitt.“
Hleður batteríin
Þegar Palli er spurður hvernig
hann upplifi Tenerife, svarar hann:
„Það er mikið líf hérna, alls staðar
fólk á gangi að nýta birtuna og
góða veðrið. Mér finnst svæðið
skemmtilega skipulagt, breiðar
gangstéttar og þar af leiðandi
nægilegt pláss fyrir gangandi veg-
farendur. Auk þess eru mjög góðir
veitingastaðir. Ég get vel hugsað
mér að gera Pallaball hér á Tene
næstu árin á gamlárskvöld. Við
Svali höfum verið að svipast um
eftir stærri sal til að vera með eitt
stórt Pallaball í lok ársins. Ég er
alveg til í að vera í 25 stiga hita á
þessum árstíma það sem eftir er,“
segir hann. „Maður finnur bæði
andlega og líkamlega vellíðan
við að fá hita og birtu í kroppinn.
Algjör endurhleðsla í gangi,“ segir
hann léttur í bragði eins og ávallt.
„Ég er heldur ekkert óvanur því
að vera fjarri fjölskyldu minni og
vinum á þessum árstíma þar sem
ég var með gamlársball í Sjallanum
á Akureyri tólf ár í röð.“
Þorrablótin taka við
Leiðin liggur þó heim í frostið og
myrkrið en Palli kvíðir því ekki
þar sem mörg verkefni bíða hans.
„Eftir tónleikana með Stórsveitinni
taka þorrablótin við og ég er bók-
aður meðal annars hjá Stjörnunni í
Garðabæ. Síðan taka við árshátíðir
í febrúar og mars. Áður en maður
veit af verða komnir páskar og
þá fer ég í túr í kringum landið.
Tíminn er fljótur að líða og svo
verður komið sumar,“ segir hann
bjartsýnn fyrir nýja árinu.
Bless og búið
Lagið Búið og bless sem var lokalag
áramótaskaupsins með Bríeti,
Palla, Aroni Can og Diddú, hefur
verið á fleygiferð upp vinsældalist-
ann á Spotify og er mikið spilað á
útvarpsstöðvunum. „Þetta lag varð
í alvöru til eftir Gallup-könnun,“
upplýsir Palli. Bríet syngur: Lífið
er núna svo njótum í botn, og Palli
bætir við: Ertu ekki að grínast í
mér, þetta er galið gott.“ Passar vel
við áramótin hans.
„Mér fannst mjög skemmtilegt
að taka þátt í þessu verkefni og
skaupið eitt það allra fyndnasta
sem ég hef séð. Ég hló upphátt.
Þessar kjarnakonur sem stóðu bak
við áramótaskaupið eru búnar
að kveða niður þá mýtu að konur
geti ekki verið fyndnar. Ef einhver
dirfist að halda því fram að konur
séu ekki fyndnar þá verður þessu
áramótaskaupi troðið ofan í kokið
á þeim til eilífðar. Saga Garðars,
Dóra Jóhannsdóttir og Vigdís
Hafliðadóttir eru núna endanlega
búnar að sanna það að konur eru
tryllingslega fyndnar,“ segir Palli.
Palli segist ekki strengja ára-
mótaheit. „Mér líður svo vel að ég
þarf það ekki. Líf mitt er yndislegt
og ég hef ekki þörf fyrir að breyta
neinu. Ég mun minnast ársins 2022
sem tíma sem alltaf var brjálað að
gera eftir tvö mjög róleg ár vegna
Covid. Aflétting er orð ársins en
eftir að allt opnaðist vildu allir fá
partíið sitt. Ég hef aldrei fundið
annað eins álag eftir 30 ára reynslu
í poppinu og er gríðarlega þakk-
látur fyrir það,“ segir Palli og það
er bara til einn slíkur. Palli gerir
hlutina á sinn hátt. Það gerir hann
líka þegar hann flytur lagið My
Way með Stórsveit Reykjavíkur á
sunnudagskvöldið. n
2 kynningarblað A L LT 6. janúar 2023 FÖSTUDAGUR