Fréttablaðið - 06.01.2023, Page 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Frumsýnd:
20. janúar 2023
Aðalhlutverk:
Aubrey Plaza, Hugh Grant, Jas-
on Statham, Euginia Kuzmina,
Cary Elwes og Josh Hartnett
Handrit:
Ivan Atkinson, Marn Davies og
Guy Ritchie
Leikstjórn:
Guy Ritchie
Frumsýnd:
13. janúar 2023
Aðalhlutverk:
Jennifer Lopez, Josh Duha-
mel, Lenny Kravitz, Jennifer
Coolidge, Sonia Braga og
Cheech Marin.
Handrit:
Mark Hammer
Leikstjórn:
Jason Moore
Þegar koma þarf í veg fyrir sölu á
nýrri gereyðingartækni í kapp-
hlaupi við vopnasalann og millj-
arðamæringinn Greg Simmonds
(Hugh Grant) dugar ekkert minna
en að fá súpernjósnarann, Orson
Fortune (Jason Statham) í málið.
Hann lætur tregur til leiðast og
fær í lið með sér einvalalið bestu
útsendara í heiminum. Hann
virkjar líka með sér stærstu stjörn-
una í Hollywood, Danny Francesco
(Josh Hartnett) í leiðangurinn til að
bjarga heiminum.
Málið snýst um að ná aftur
stolnum hlut, sem kallaður er „The
Handle“. Hvorki skuggalega leyni-
þjónustan sem stendur á bak við
aðgerðina né teymið sem á að ná
hlutnum vita hvað þetta andstyggi-
lega fyrirbæri er. Öllum er hins
vegar kunnugt um að verðmiðinn
er tíu milljarðar Bandaríkjadala og
„The Handle“ má alls ekki komast í
hendur óprúttinna aðila.
Leikstjórinn, Guy Ritchie, og
Jason Statham unnu fyrst saman
í myndinni Lock, Stock and Two
Smoking Barrels, sem var frumraun
Ritchies í leikstjórn og myndin
sem gerði Statham að stjörnu. Þeir
unnu líka saman í Snatch, sem sló
heldur betur í gegn, auk þess að gera
saman Revolver og nýlega tryllinn
Wrath of Man.
Í Operation Fortune færa þeir
félagar okkur njósnatrylli sem
heldur betur passar inn í Guy Ritc-
hie-stílinn sem leyfir spennunni
og kímninni að njóta sín þannig að
þær styðja hvor aðra. n
Smárabíó og Háskólabíó
Þegar mikið liggur við
Fjölskyldur þeirra beggja eru
alveg ágætar, já, hreint elskulegar.
Þær hafa bara mjög sterkar skoð-
anir á öllu og eru kannski ekki
alltaf sammála.
Nú eru Darcy (Jennifer Lopez)
og Tom (Josh Duhamel) búin
að stefna fjölskyldum sínum á
framandi stað í brúðkaup sem á
að slá út allt annað sem áður hefur
verið gert í þessum efnum.
Fara þá ekki brúðhjónin sjálf að
fá efasemdir um ágæti ráðahags-
ins! Eins og það sé eitt og sér ekki
nóg til að skyggja á gleðina bætist
við að skyndilega eru allir í bráðri
lífshættu þegar glæpagengi ræðst
inn í veisluna og tekur alla gestina
í gíslingu.
Heitið „í blíðu og stríðu“ tekur
á sig allt aðra og meiri merkingu
í þessari frábæru gamanmynd
þar sem adrenalínið streymir um
æðar í trylltum æsingi þar sem
Darcy og Tom verða að bjarga ást-
vinum og mega helst ekki drepa
hvort annað fyrst.
En, viti menn, í öllum æsingn-
um, þegar þau verða að standa
saman eigi þau að halda lífi, rifjast
upp fyrir þeim hvers vegna þau
hrifust hvort af öðru og urðu ást-
fangin.
Jennifer Lopez er kjörin í
gamanhlutverk af þessu tagi og
Josh Duhamel er svo sem enginn
viðvaningur heldur. Fyrir lengra
komna má nefna að meðal leikara
eru Jennifer Coolidge, Sonia Braga
og Cheech Marin. Góð ástæða til
að mæta í bíó. n
Smárabíó og Háskólabíó
Dregur fram ósvikinn hlátur
Það getur
reynst
skamm-
góður
vermir að
stytta sér
leið og
treysta
óþekktri
tækni.
Frumsýnd:
13. janúar 2023
Aðalhlutverk:
Allison Williams, Violet
McGraw, Amie Donald, Jenna
Davis, Jen Van Epps og Brian
Jordan Alvarez
Handrit:
Akela Cooper og James Wan
Leikstjórn:
Gerard Johnstone
Gemma er vélmennaverk-
fræðingur hjá leikfangafyrirtæki
sem hefur notað gervigreind til
að þróa frumgerð að M3GAN
(stytting á „Model 3 Generative
Android“) sem er brúða í manns-
líki, forrituð til að vera besti
félagi barns og besti bandamaður
foreldris.
Óvænt verður Gemma forráða-
maður átta ára gamallar frænku
sinnar, Cady, þegar foreldrar
hennar deyja í bílslysi. Hún er
algerlega óundirbúin fyrir þetta
skyndilega foreldrahlutverk og er
auk þess undir gríðarlegu álagi í
vinnunni.
Gemma veit vart hvað hún á að
gera en kemst að þeirri niður-
stöðu að best sé að para saman
M3GAN frumgerðina og frænku
hennar. Þannig geti hún fengið
frið til að sinna krefjandi verkefn-
um í vinnunni jafnframt því sem
tryggt sé að Cady sé undir traustri
handleiðslu og gæslu M3GAN.
Þessi ákvörðun dregur dilk á
eftir sér. M3GAN er að miklu leyti
órannsökuð og ekki líður á löngu
þar til hún þróar með sér sjálfs-
vitund og ofverndar Cady með því
að meiða, og jafnvel drepa, hvern
þann sem stendur í vegi fyrir því
að hún geti verndað barnið.
Hún ræðst með afli sínu gegn
hverju þeim sem ógnar Cathy,
fyrst utanaðkomandi, en ekki
líður á löngu þar til jafnvel
Gemmu fer að standa ógn af
M3GAN.
Sannir hrollvekjuaðdáendur
verða ekki sviknir af M3GAN.
Gæti eitthvað svona verið að
gerast í sívaxandi tækniheimi 21.
aldarinnar? n
Laugarásbíó, Sambíóin Álfabakka
og Smárabíó
Hættan af óbeislaðri tækni
Charlie er næstum 300 kílóa
einbúi. Hann er prófessor og
kennir ritlist á netinu en gætir
þess að hafa slökkt á netmynda-
vélinni vegna þess að hann þorir
ekki að láta nemendur sína sjá sig.
Eini vinur Charlie er hjúkrunar-
konan Liz sem annast hann. Hún
reynir að fá hann til að leita sér
hjálpar þar sem hún óttast að
hann eigi alvarlega á hættu að fá
hjartaáfall.
Annar gestur á heimili Charlies
er Thomas, kristniboði á vegum
trúsöfnuðar sem berst gegn sam-
kynhneigð. Hann lítur á það sem
sitt hlutverk að frelsa Charlie.
Mjög andar köldu milli Thomas
og Liz.
Charlie er að reyna að komast
aftur í samband við Ellie, dóttur
sína á táningsaldri, sem hann
hefur ekki séð í átta ár. Hann
býður henni alla sína peninga
fyrir að verja tíma með sér án
vitundar móður hennar. Hún
samþykkir með því skilyrði að
hann hjálpi henni að endurskrifa
skólaritgerð. Charlie fellst á það
en gerir kröfu um að Ellie skrifi í
stílabók sem hann gefur henni.
Í ljós kemur að Liz er ættleidd
dóttir leiðtoga trúsöfnuðarins
sem Thomas gengur erinda fyrir
og tengist Alan, ástmanni Charlie,
sem framið hafði sjálfsmorð
vegna sektarkenndar yfir kyn-
hneigð sinni. Ofát Charlies hafði
byrjað í kjölfar dauða Alans.
Ekki er rétt að rekja atburðarás-
ina lengra hér, en Brendan Fraser
þykir vinna mikinn leiksigur sem
Charlie í þessari stórfenglegu
mynd um mannlega bresti, for-
dóma, hroka, minnimáttarkennd,
væntumþykju, svik og hlýju. n
Laugarásbíó og Háskólabíó
Magnaður tilfinningarússibani
Stórfeng-
legur
leikur
Brendans
Fraser í
mynd sem
fangar
tilfinn-
ingarnar.
Njósnat-
ryllir sem
leyfir
spennunni
og kímn-
inni að
njóta sín.
Heitið „í
blíðu og
stríðu“
tekur á sig
allt aðra og
meiri
merkingu.
Frumsýnd:
27. janúar 2023
Aðalhlutverk:
Brendan Fraser, Sadie Sink,
Ty Simpkins, Hong Chau,
Samantha Morton og Sathya
Sridharan
Handrit:
Samuel D. Hunter
Leikstjórn:
Darren Aronofsky
2 kynningarblað 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURKviKMynDir Mánaðarins