Fréttablaðið - 06.01.2023, Qupperneq 16
Frumsýnd
21. janúar 2023
Aðalhlutverk
Brad Pitt, Margot Robbie,
Diego Calva, Olivia Wilde,
Jean Smart og J.C. Currais
Handrit:
Damien Chazelle
Leikstjórn:
Damien Chazelle
Babylon er saga um gríðarlegan
metnað og ofboðslegt óhóf í Holly-
wood fyrir tæpri öld, þegar þöglu
myndirnar voru á undanhaldi og
talmyndirnar hófu innreið sína.
Í þessari mynd fáum við að sjá
hvernig stjörnurnar sem birtast
okkur á hvíta tjaldinu eiga oftar
en ekki að baki blóð, svita og
tár – brostna drauma og ótrúlega
heppni.
Í byrjun myndarinnar erum
við kynnt fyrir Manny Torres,
Bandaríkjamanni af mexíkóskum
uppruna sem kemur til borgar
englanna í lok tímabils þöglu
myndanna. Hann er að reyna að
koma fíl í truflað Hollywood-partí
– partí þar sem eiturlyf og kynlíf
eru rauði þráðurinn .
Hann kemur auga á Nellie LaRoy
sem er upprennandi stjarna og
þau stinga saman nefjum. Við
erum líka kynnt fyrir Jack Conrad,
glæsilegum stjörnuleikara í þöglu
myndunum sem er í þann mund
að yfirgefa þriðju eiginkonu sína
og reka sig á að frægðin er hverful
þegar talmyndirnar ryðja þeim
þöglu úr vegi.
Umgjörðin er glæsileg og Margot
Robbie í hlutverki Nellie og Diego
Calva sem Manny fá mikið lof. Brad
Pitt í hlutverki fallandi stjörnunnar
Jack Conrad er þó stjarna myndar-
innar.
Babylon er sannkallað stórvirki
á hvíta tjaldinu, tilnefnd til fjölda
Golden Globe verðlauna og búist
er við fjölda tilnefninga til Óskars-
verðlaunanna. n
Sambíóin og Háskólabíó
Blóð, sviti, tár og heppni
Eiturlyf og
kynlíf voru
í fyrirrúmi
í Holly-
wood-
partíunum
fyrir tæpri
öld.
Flugstjóri
svífst
einskis til
að frelsa
farþega
sína og
komast til
dóttur
sinnar.
The
Fabelmans
byggir á
ævi Spiel-
bergs og
kynnum af
kvik-
mynda-
gerð.
Áhorfand-
inn skynj-
ar að hér er
ekki Holly-
wood-
endir í
uppsigl-
ingu.
Árið er 1923 og írska borgarastríð-
inu er að ljúka. Á eyjunni Insherin
við vesturströnd Írlands sinnast
þeim Pádraic og Colm, sem hafa
verið vinir frá barnæsku.
Colm segir Pádraic að honum líki
einfaldlega ekki við hann lengur
og tilkynnir honum að vináttunni
sé lokið. Honum finnst hans gamli
vinur of leiðinlegur til að halda
áfram í vináttuna. Draumar Colms
snúast um að semja tónlist og gera
hluti sem halda muni nafni hans á
lofti um ókomna tíð.
Pádraic er miður sín yfir vinar-
missinum og reynir að laga sam-
bandið og nýtur til þess liðsinnis
systur sinnar, Siobhan, og ungs og
vansæls pilts, Dominic, sem býr við
ofríki föður síns en gefur Siobhan
hýrt auga og gerir hosur sínar
grænar fyrir henni.
Ekki verður Pádraic þó mikið
ágengt og því meira sem hann
reynir að endurnýja vináttuna því
þrjóskari verður Colm og atburða-
rásin vindur sífellt upp á sig.
Colm hótar því að í hvert sinn
sem hans gamli vinur áreiti hann
muni hann klippa af sér einn fingur
vinstri handar. Svo fer að hann
stendur við orð sín.
Myndin er kómedía að vissu
marki en þó með kolsvörtum
undirtónum og áhorfandinn
skynjar vel að væntanlega stefnir
ekki í Hollywood-endi.
Banshees er tilnefnd til mikils
fjölda Golden Globe verðlauna,
auk þess sem búist er við fjölda til-
nefninga til Óskarsverðlaunanna. n
Sambíóin og Bíó Paradís
Kolsvört tragikómedía
Frumsýnd:
13. janúar 2023
Aðalhlutverk:
Colin Farrell, Brendan Glee-
son, Kerry Condon, Pat Shortt
og Barry Keoghan
Handrit:
Martin McDonagh
Leikstjórn:
Martin McDonagh
Plane er runnin undan rifjum
sömu framleiðenda og stóðu að
baki Angel Has Fallen og Green-
land.
Gerard Butler leikur Brodie
Torrance,flugstjóra sem verður að
nauðlenda á einhverjum hættu-
legasta stað á jörðinni eftir að
farþegaflugvél hans verður fyrir
eldingu í miklu óveðri. Hann
lendir snarlega í aðstæðum þar
sem hver sekúnda skiptir máli og
sekúndurnar geta verið það sem
skilur milli lífs og dauða.
Hann er lentur með áhöfn sína
og farþega á stríðshrjáðri eyju og
fljótt verður ljóst að það að lifa af
nauðlendinguna er bara byrjunin.
Hættulegir uppreisnarmenn
taka f lesta farþegana í gíslingu
og Torrance verður að reiða sig
á aðstoð Louis Gaspare, ásakaðs
morðingja sem var farþegi um
borð sem fangi í fangaflutningum
bandarísku alríkislögreglunnar.
Ef takast á að bjarga farþeg-
unum verður Torrance að leysa
Gaspare úr járnum og afhenda
honum skotvopn. Hann kemst að
því að Gaspare leynir heldur betur
á sér.
Þessir ólíklegu bandamenn
takast á við morðóða sjóræningja
og hættulegt landsvæði. Torrance
svífst einskis með nýfundnum
bandamanni sínum. Hann er
staðráðinn í að bjarga farþeg-
unum og komast aftur til dóttur
sinnar.
Butler er kjörinn í hlutverk
mannsins sem bregst ekki þegar
á reynir, heldur gefur allt sitt og
fer langt út fyrir þær skyldur sem
honum ber til að ljúka ætlunar-
verki sínu.
Plane er mynd fyrir þá sem þola
spennu. n
Sambíóin
Spenna af gamla skólanum
Steven Spielberg hefur sagt
að flestar hans myndir byggi
sumpartinn á einhverju sem hann
hefur upplifað. The Fablemans er
hins vegar byggð á hans eigin ævi,
uppvexti og unglingsárum fram á
fullorðinsár.
Þetta er persónulegasta myndin
sem Spielberg hefur gert og að
margra mati sú besta. Hún hefur
verið tilnefnd til fimm Golden
Globe-verðlauna, meðal annars
sem besta myndin, besta hand-
ritið og besta leikstjórn.
Sammy Fabelman fer í fyrsta
sinn í kvikmyndahús 1952 og sér
óskarsverðlaunamynd Cecil B.
DeMille, The Greatest Show on
Earth. Hann heillast af myndinni,
fær áhuga á kvikmyndagerð og
byrjar að taka heimakvikmyndir
með Super 8 vél sem pabbi hans á.
Fljótlega kemur í ljós að Sammy
hefur mikla hæfileika á þessu
sviði og er efnilegur. Við fylgjumst
með því hvernig hann kvik-
myndar og klippir myndir af fjöl-
skyldunni, skóla- og skátafélögum
sínum og áttar sig á því töfratæki
sem kvikmynd er.
Fjölskyldusagan er ekki eintóm-
ur dans á rósum og að því kemur
að foreldrar Sammy skilja vegna
þess að móðir hans tekur saman
við fjölskylduvin. Sammy hafði
áttað sig á því að eitthvað væri í
gangi milli þeirra vegna þess að
hann hafði myndað þau saman í
lautarferð fjölskyldunnar. Hann
klippti eina útfærslu af lautar-
ferðinni til að sýna fjölskyldunni
og svo var til Director’s cut.
The Fabelmans er tilnefnd til
fjölda Golden Globe-verðlauna og
búist er við að hún muni sópa að
sér tilnefningum til Óskarsverð-
launa. n
Sambíóin
Persónulegasta mynd Spielbergs
Frumsýnd:
13. janúar 2023
Aðalhlutverk:
Gerard Butler, Mike Colter,
Yoson An, Daniella Pineda og
Paul Ben-Victor
Handrit:
Charles Cumming og J.P. Davis
Leikstjórn:
Jean-Francois Richet
Frumsýnd:
27. janúar 2023
Aðalhlutverk:
Michelle Williams, Gabriel La-
Belle, Paul Dano, Judd Hirsch,
Seth Rogen og Mateo Zoryan
Handrit:
Steven Spielberg og Tony
Kusner
Leikstjórn:
Steven Spielberg
4 kynningarblað 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURKviKmyndir mánaðarinS