Fréttablaðið - 06.01.2023, Side 18
Unnendur kvik-
mynda og franskrar
tungu og menningar
ganga hér að allsnægta-
hlaðborði. Fram undan
er stórkostleg frönsk
kvikmyndaveisla, brot af
bestu kvikmyndum
ársins!
Franska kvikmyndahátíðin,
elsta erlenda kvikmyndahá-
tíðin á Íslandi, verður haldin
í 23. skiptið í Bíó Paradís
dagana 20. til 29. janúar
2023. Kvikmyndahátíðin
er samstarf Bíó Paradísar,
Alliance Française í Reykja-
vík, franska sendiráðsins á
Íslandi og Institut français.
Opnunarmynd hátíðarinnar í
ár er Final Cut (Coupez !), frá-
bær gamanmynd þar sem hópur
kvikmyndagerðarmanna lendir
í kröppum dansi í tökum á lítilli
uppvakningamynd, en hlutirnir
flækjast þegar alvöru uppvakn-
ingar fara að trufla framleiðsluna.
Myndin, sem var opnunarmynd
Cannes-kvikmyndahátíðarinnar
2022, er endurgerð á hinni stór-
kostlegu One Cut of the Dead
sem sló í gegn í Bíó Paradís. Hún
fer í almennar sýningar að hátíð
lokinni í Bíó Paradís.
Flestar myndirnar á hátíðinni
hafa hlotið mikla athygli á heims-
vísu. Þar má nefna nýju mynd Miu
Hansen Løve, Un Beau Matin, sem
hreppti Europa Cinemas Label
verðlaunin í Cannes á síðasta ári og
St. Omer sem er framlag Frakk-
lands til Óskarsverðlaunanna.
Athygli vekur að flestum mynd-
anna sem sýndar eru á kvikmynda-
hátíðinni í ár leikstýrir ný kynslóð
kvenleikstjóra í Frakklandi eða
frönskumælandi löndum.
Aðrar myndir sem sýndar verða
eru:
Woman at Sea (Grand marin)
Frumsýnd verður kvikmyndin
Woman at Sea sem er frumraun
leikkonunnar Dinaru Drukanova
sem leikstjóra en hún leikur einn-
ig aðalhlutverkið í myndinni.
Myndin, sem gerist við Íslands-
strendur, er framleidd af Benedikt
Erlingssyni og í aukahlutverkum
eru meðal annars Björn Hlynur
Haraldsson og Hjörtur Jóhann
Jóhannsson. Lili hefur yfirgefið allt
til að elta draum sinn um að ferðast
um heiminn og veiða í Norður-
sjónum. Hún verður eini kvenkyns
meðlimurinn í áhöfn íslensks fisk-
veiðibáts og fær gælunafnið Þröstur
(e. Sparrow) en bak við saklaust
og viðkvæmt andlitið er járnkona.
Myndin er að miklu leyti tekin upp
á Íslandi.
One Fine Morning
(Un beau matin)
Ung móðir sem býr með átta ára
dóttur sinni er á tímamótum þar
sem hún þarf að sinna föður sínum
sem er með taugahrörnunarsjúk-
dóm. Hún er í miðjum klíðum að
reyna koma honum á hjúkrunar-
heimili þegar hún rekst á gamlan
vin og þau hefja samband, en hann
er þó fyrir í öðru sambandi.
One Fine Morning er nýjasta
kvikmynd leikstýrunnar Miu
Hansen-Løve með Léu Seydoux
(Blue is the Warmest Color, No
Time to Die) sem sló í gegn á kvik-
myndahátíðinni í Cannes 2022 þar
sem hún vann Europa Cinemas
Label verðlaunin. Léa Seydoux,
Pascal Greggory og Melvil Poupaud
fara með aðalhlutverkin.
Suprêmes
Ævisaga um franska hipphopp-
dúettinn Supreme NTM. Sagan af
því hvernig úthverfi Parísar, mót-
mæli og lögregluofbeldi skapaði
tónlist JoeyStarr and Kool Shen.
Menntaskólanemar sem eru að
læra frönsku völdu myndina sér-
staklega fyrir hátíðina.
Audrey Estrougo leikstýrði en
Théo Christine, Sandor Funtek og
Félix Lefebvre fara með aðlahlut-
verkin.
The Five Devils (Les cinq diables)
Vicky er ung stúlka sem býr hjá
foreldrum sínum. Þegar föðursystir
hennar kemur inn á heimilið eftir
fangelsisdvöl breytist allt og óút-
skýrðir hlutir eiga sér stað þar sem
fortíðin er dregin fram í dagsljósið
á ofbeldisfullan hátt.
Leikstjóri er Léa Mysius og Adèle
Exarchopoulos, Swala Emati og
Sally Dramé fara með aðalhlut-
verkin.
Saint Omer
Rama er skáldsagnahöfundur sem
mætir á réttarhöldin yfir Laurence
Coly hjá Saint Omer-dómstólnum.
Hún ætlar að nota sögu hennar til
að skrifa nútímalega aðlögun að
fornu goðsögunni um Medeu, en
ekki fer allt eins og ráðgert var.
Alice Diop er fyrsta svarta konan
til að vera fulltrúi Frakklands í
Óskarskapphlaupinu, leikstjóri
sem teflir hér fram einni bestu
mynd ársins. Kayije Kagame,
Guslagie Malanda og Valérie Dré-
ville fara með aðalhlutverkin.
The Worst Ones (Les pires)
Við fylgjumst með kvikmynda-
gerðarmönnum í úthverfi einu í
norðurhluta Frakklands þar sem
fjórir unglingar fá tækifæri til að
leika hlutverk. Heimamönnum
kemur á óvart að þeir „verstu“ hafi
landað hlutverkunum.
Myndin hlaut Un Certain Reg-
ard-verðlaunin á kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes 2022. Lise Akoka
og Romane Gueret leikstýra og
Mallory Wanecque, Timéo Mahaut
og Johan Heldenbergh fara með
aðalhlutverkin.
Hundurinn Óþefur, Líf í París!
(Chien Pourri, la vie à Paris!)
Stórskemmtileg teiknimynd sem
fjallar um hundinn Óþef sem
ferðast um stræti Parísarborgar
með vini sínum Chaplapla. Sama
í hvaða vandræðum hann lendir í,
alltaf nær hann að koma sér út úr
þeim, heill á húfi.
Stórkostleg ævintýri sem gefa
ungum áhorfendum innsýn í ljóð-
rænu borgarinnar, hinnar einu
sönnu Parísar. Nemi í frönsku við
Háskóla Íslands þýddi íslenska
textann fyrir hátíðina. Stéphane
Aubier, Davy Durand og Vincent
Patar leikstýra en Andrew Danish,
Jean-Christophe Dollé og Camille
Donda eru aðalleikraddir myndar-
innar.
Kuessipan
Tvær ungar stúlkur eru bestu vin-
konur og hafa heitið því að standa
saman í gegn um súrt og sætt. En
einn daginn breytist allt þegar
önnur þeirra fellur fyrir dreng sem
er hvítur á hörund.
Leikstjóri er Myriam Verreault
og fara Ariel Fontaine St-Onge,
Katinen Grégoire-Fontaine og Joe
Fontaine með aðalhlutverkin.
The Wages of Fear
(Le salaire de la peur)
Í suðuramerísku þorpi er hópi
manna heitið ríflegri áhættuþókn-
un fyrir að flytja í skyndi farm af
nítróglyseríni gegnum torfæran
skóg. Vörubílarnir eru illar búnir til
flutninga á svo hættulegum farmi.
Á milli vörubílstjóranna myndast
rígur um það hverjir þeirra koma
farminum á áfangastað. Gríðarleg
spenna myndast þegar ekið er yfir
lélegar hengibrýr og drullusvöð en
ekkert fær stöðvað mennina sem
eiga allt undir því að hljóta laun
fyrir að takast á við ómennskan
óttann, komist þeir alla leið.
Myndin hlaut Gullpálmann í
Cannes og Gullbjörninn í Berlín
árið 1953. Hún er eitt af snilldar-
verkum leikstjórans Henri-Georges
Clouzot og gerði aðalleikarann
Yves Montand að einni af skærustu
stjörnum kvikmyndanna.
Pacifiction
Við erum stödd á Tahítí, Frönsku-
Pólýnesíu, þar sem einn æðsti emb-
ættismaður frönsku ríkisstjórnar-
innar skoðar sig um og mátar sig
við allt það besta sem eyjan hefur
upp á að bjóða. Hann blandar geði
við eyjarskeggja sem byrja að tor-
tryggja veru hans á staðnum.
Nýjasta kvikmynd katalónska
kvikmyndaleikstjórans Albert
Serra keppti um Gullpálmann
á kvikmyndahátíðinni Cannes
2022. Benoît Magimel, Sergi López
og Lluís Serrat fara með aðalhlut-
verkin.
Myndin er lokamynd Franskrar
kvikmyndahátíðar, en fer í
almennar sýningar að hátíð
lokinni.
Unnendur kvikmynda og franskrar
tungu og menningar ganga hér að
allsnægtahlaðborði. Fram undan
er stórkostleg frönsk kvikmynda-
veisla, brot af bestu kvikmyndum
ársins! n
Frönsk veisla fyrir alla í Bíó Paradís
6 kynningarblað 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURKviKmyndir mánaðarins