Fréttablaðið - 06.01.2023, Síða 28
James Dean (1931–1955)
Leikarinn James Dean var aðeins
24 ára þegar hann lést í bílslysi
30. september 1955 þegar nýi
Porsche Spyder sportbíllinn hans
lenti í árekstri við Ford Tudor
fólksbíl á gatnamótum. East of
Eden hafði þá þegar verið frum-
sýnd en hinar myndirnar tvær
sem gerðu hann að stórstjörnu,
Rebel Without a Cause og Giant,
voru frumsýndar að honum
látnum. Bílslysið batt snöggan
enda á það sem hefði getað orðið
enn glæsilegri leikferill en gerði
hann um leið að goðsögn: „Too
Fast to Live, Too Young to Die.“
Hetjuheppnin er
ekki öllum gefin
Ofurhetjuleikarinn Jeremy
Renner virðist góðu heilli
ætla að sleppa með skrekk-
inn frá lífshættulegu slysi við
snjóruðning. Saga Hollywood
geymir þó því miður mörg
átakanleg dæmi um að frægð
og frami eru ekki öruggari
slysa- og líftryggingar en þær
sem sauðsvörtum almúg-
anum standa til boða.
toti@frettabladid.is
Leikarinn Jeremy Renner státar
af tveimur Óskarsverðlaunatil-
nefningum, fyrir The Hurt Locker
og The Town, en hefur í seinni tíð
verið frekastur til fjörsins í Marvel-
kvikmyndaheiminum sem bog-
fimi-hefnandinn Hawkeye. Þá hefur
hann komist í hann krappan í The
Bourne Legacy og ýmsum hasar
öðrum þar sem persónur og leik-
endur hafa tilhneigingu til að sleppa
lygilega vel úr bráðum lífsháska.
Ofurhetjuheppnin
var greinilega með
h i nu m 51 á r s
gamla Renner á
fyrsta degi árs-
ins þegar hann
var að r yðja
heimkeyrsluna
með tæplega 7
tonna snjóplóg
þegar ekki vildi
betur til en svo
að hann varð undir
tækinu sem gerði
honum lífshættulega
áverka á bringu og fæti auk
þess sem hann missti mikið blóð.
Hann er meðal annars talinn
eiga líf sitt að þakka skjótum og
réttum viðbrögðum nágranna sem
hlúðu að honum þar til þyrla f lutti
hann á gjörgæslu. Hann liggur enn
á sjúkrahúsi en virðist allur vera að
koma til og það lofar góðu að hann
hefur sýnt ágætis lífsmörk á Insta-
gram. n
Jayne Mansfield (1933–1967)
Leikkonan, ljóshærða
þokkagyðjan og Holly-
wood-goðsögnin
Jayne Mansfield lést
samstundis þegar
hún var farþegi í bíl
sem ók aftan á trukk á
Route 90 austur af New
Orleans í Louisiana.
Bílstjórinn Ronald B.
Harrison og Samuel S. Brody,
lögmaður Mansfield og unnusti, létust einnig í slys-
inu. Börnin hennar þrjú; Mickey, átta ára, Zoltan,
sex ára, og þriggja ára dóttirin Mariska, sem voru
sofandi í aftursætinu, slösuðust en lifðu slysið af.
Mariska lagði leiklistina síðar fyrir sig og á að baki
glæstan 24 ára feril sem kynferðisbrotalöggan
Olivia Benson í Law&Order: SVU. Þættirnir eru þeir
langlífustu í bandarískri sjónvarpssögu en úthald
þeirra er ekki síst þakkað Marisku og vinsældum
hennar í aðalhlutverkinu.
Paul Walker (1973–2013)
Svo kaldhæðnislega vill til að þegar leikarinn Paul
Walker lést, aðeins fertugur að aldri, í bílslysi á
hraðskreiðri Porsche-bifreið, hafði hann fest sig
rækilega í sessi sem einn aðalleikarinn í fáránlega
vinsælum og endingargóðum hasarmyndabálk-
inum sem kenndur er við Fast and the Furious.
Walker var farþegi en vinur hans og reyndur öku-
þór, Roger Rodas, var undir stýri þegar hann missti
einhverra hluta vegna stjórn á Porsche Carrera
GT bifreiðinni sem hafnaði á tré. Við áreksturinn
kviknaði í bílnum og vinirnir létust báðir.
Anton Yelchin (1989–2016)
Leikarinn Anton Yelchin fæddist í Sovétríkjunum
en fluttist sex mánaða gamall til Bandaríkjanna þar
sem hann hóf leikferilinn sem barnastjarna. Hann
var á góðri siglingu og naut ekki síst vinsælda sem
Chekov í endurræstum Star Trek-myndaflokknum.
Yelchin var aðeins 27 ára þegar vinir hans komu
að honum látnum þar sem hann var kraminn milli
Grand Cherokee-bifreiðar sinnar og öryggisgirð-
ingar heimilis hans í Los Angeles.
Talið er að átakanlega einkennilegt banaslysið
hafið orðið þegar Yelchin fór út úr bílnum til þess
að kanna læsingu hliðsins og sækja póstinn en
bílinn hafi þá runnið á eftir honum með þessum
hörmulegu afleiðingum.
Anne Heche (1969–2022)
Leikkonan Anne Heche var 53
ára þegar hún lést 14. ágúst á
síðasta ári eftir að hafa verið
haldið sofandi í öndunarvél eftir
að hún ók á hús með skelfilegum
afleiðingum.
Lítið hafði sést til Heche, sem
var lengi í sambandi með Ellen
DeGeneres, í seinni tíð en hún
lék meðal annars í myndunum
Donnie Brasco, Six Days, Seven
Nights og Wag the Dog.
Heche ók bíl sínum á hús í Los
Angeles þannig að það kviknaði
bæði í því og bíl leikkonunnar.
Aðstæður á slysstað voru því
með versta móti og það tók 45
mínútur að ná Heche úr brenn-
andi flakinu. Áverkar hennar voru
það miklir að lífslíkur hennar
voru litlar sem engar og hún lést
nokkrum dögum síðar af völdum
reyk eitr unar og brunasára án
þess að komast til meðvitundar.
Harrison Ford með Heche í Six Days, Seven Nights en
heppinn hefur hann lifað nokkur misalvarleg flugslys.
Hawkeye sleppur oft naumlega og heppni hans elti Renner yfir í raunveruleikann. Mynd/InstagraM
toti@frettabladid.is
Sveinn Waage, markaðsstjóri og
fyrirlesari, hefur slegið hressilega
í gegn með fagnaðarerindi sitt um
mikilvægi húmors fyrir heilsuna,
atvinnulífið og tilveruna alla í fyrir-
lestrinum Húmor virkar.
„Húmor er auðvitað alls konar og
ég æpi yfir einhverju sem öðrum
finnst ófyndið,“ segir Sveinn. „En
þessi yfirferð yfir virkni húmors í
sínum fjölbreyttu myndum virðist
alla vega virka. Boðskapurinn er svo
dásamlegur.“
Sveinn bendir á að á milli þess
sem hann steig fyrst fram í janúar
í fyrra á Læknadögum í Hörpu og
Heilsuþingi heilbrigðisráðuneytis-
ins í nóvember hafi áhuginn og
eftirspurnin verið ævintýri líkust.
Hann segir fyrirspurnir og bók-
anir fyrir þetta ár benda til þess að
hann muni hafa enn meira að gera
2023. Þá séu ýmis sér- og samstarfs-
verkefni í undirbúningi en sem
fyrr verði fyrirlesturinn hryggjar-
stykkið.
„Hann er uppfærður
reglulega en alltaf með
sama fallega og mikil-
væga boðskapinn
u m m a g n a ð a
virkni byggðum
á akademísk um
g r unni, rey nslu
og dásamleg um
dæmum sem hreyfa
við öllum.“
Sveinn bætir við að meðbyrinn
sé slíkur að hann heiti því að rukka
ekki fyrir fyrirlesturinn ef svo
ólíklega vilji til að húmorinn virki
ekki. „Kannski er gamli
markaðsmaðurinn
að laumast að með
þetta skilyrði um
að ekkert verði
greitt fyrir enga
ánægju,“ segir
Sveinn og er,
a ld rei þe s su
vant, ekki að
grínast.
„Við munum
samt standa við þetta ef til þess
kemur enda er ekkert eins ömur-
legt og að rukka fyrir fyrirlestur
eða hvaða gigg sem er ef það virkar
ekki.“
Aðspurður segist Sveinn ekki hafa
miklar áhyggjur af því að fólk muni
gera sér upp óánægju til þess að fá
fyrirlesturinn ókeypis. „En ef það
er planað að sitja yfir heilum fyrir-
lestri og hafa ekki gaman þá nýtist
það klárlega sem efni í fyrirlestur-
inn,“ segir Sveinn og hlær áður en
hann laumar að netfanginu humor-
virkar@gmail.com fyrir þá sem vilja
láta reyna á þetta tilboð hans. n
Sveinn rukkar ekki nema húmorinn virki
Sveinn Waage,
markaðsstjóri
og fyrirlesari
16 Lífið 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURFréttablaðiðLíFið Fréttablaðið 6. janúar 2023 FÖSTUDAGUR