Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Telur þú mikilvægt að ráðast
í breytingar á kjördæma-
kerfinu?
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
prófessor í
stjórnmálafræði
„Ég er að vísu alls
ekki með sömu
nálgun og Ólafur,
og það er líklega vegna þess, að
við beitum ólíkum lýðræðishug-
tökum,“ segir Hannes Hólmsteinn
Gissurarson um þau orð kollega
síns, Ólafs Þ. Harðarsonar, prófess-
ors emeritus, í fréttum RÚV fyrr í
vikunni, að mikilvægt sé að breyta
kjördæmakerfinu ekki seinna en
strax.
„Hann vill að Alþingi endurspegli
sem best úrslit kosninga, almanna-
viljann. Þetta er lýðræðishugtak
Rousseaus. Ég tel hins vegar, að
mestu máli skipti stöðugleiki og
festa í stjórnarfari,“ heldur Hannes
áfram en Ólafur benti á að ríkis-
stjórnin væri, í krafti kjördæma-
skipunar, með 30 þingmenn í stað
29 þar sem Vinstri græn fengju
inn þingmann á landsbyggðinni á
kostnað þingmanns Viðreisnar.
„Mín hugmynd um lýðræði er,
að það sé friðsamleg aðferð til
að skipta um valdhafa, þegar við
erum óánægð með þá. Þetta er
lýðræðishugtak Schumpeters
og Poppers. Þess vegna væru
einmenningskjördæmi í rauninni
rökréttust,“ heldur Hannes áfram
og vísar til Bretlands.
„Þá yrði væntanlega til tveggja
flokka kerfi, tveir skýrir kostir að
velja um. Núna vita kjósendur
mjög lítið um, hvaða kött þeir
kaupa í sekknum, þegar þeir ganga
inn í kjörklefann.“ n
Einmenningskjördæmi rökrétt
n Sérfræðingurinn
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Endurvinnslan leggur ekki
lengur afrakstur dósasöfnun-
ar beint og samstundis inn á
greiðslukort. Pepp, grasrótar-
samtök fólks í fátækt, telja
þetta koma illa við þau sem
minnst hafa milli handanna
og hafa dósir og flöskur sem
einhvers konar neyðarsjóð.
toti@frettabladid.is
Endurvinnslan leggur ekki lengur
skilagjald af f löskum og dósum
samstundis og milliliðalaust inn á
greiðslukort og upphæðin skilar sér
nú næsta virka dag í gegnum snjall-
forrit.
„Þótt þetta sé bara sólarhringur
sem tekur peninginn að skila sér
til fólks þá getur það verið mjög
óheppilegt ef þú ert á þeim stað að
vera búin að safna f löskum til að
bjarga þér með einhverjar nauð-
þurftir,“ segir Ásta Dís Skjalddal,
samhæfingarstjóri Pepps, gras-
rótar fólks í fátækt og félagslegri
einangrun, um áhyggjur þeirra af
því að breytingin muni koma illa
við þau sem síst skyldi.
Fjallabaksleið að neyðarsjóði
Ásta Dís segir vel þekkt að margir
treysti á flösku- og dósasöfnun sem
ákveðinn neyðarsjóð sem oftar en
ekki er gripið til þegar bjarga þarf
nauðsynjum; mat, mjólk, bleyjum
og öðru sem þarf að kaupa sam-
dægurs.
„Það voru nokkur atriði sem
komu upp þegar við ræddum þetta
og eitt var hversu algengt það er
að fólk með flöskupoka fái ekki að
fara með þá í strætó,“ segir Ásta Dís
og víkur að eina staðnum til að fá
greiðsluna samdægurs, hjá gjaldkera
Endurvinnslunnar í Knarrarvogi.
„En ef þú ert ekki bílandi og átt ekki
heima í nágrenni við Knarrarvoginn
þá kemstu ekkert með pokana þína í
strætó til þess að fara þangað til þess
að fá peninginn strax.“
Alltaf út undan
Ásta Dís minnir síðan á nýlega
andstöðu ráðuneyta fjármála og
umhverfis við tveggja króna hækk-
un skilagjalds vegna hugsanlegra
neikvæðra áhrifa á verðbólguþróun.
„Maður fylgist með umræðunni
og heyrir alltaf um þau sem hafa
það þokkalegt og betra en í alvöru
umræðu er aldrei horft til þess að
hérna er hópur sem kemur einhvern
veginn alltaf út úr þessu á skjön við
hina,“ segir Ásta Dís.
„Þess vegna er svo ofsalega sárt
þegar ráðamenn tala yfir þjóðinni
um hitt og þetta meðaltalið og að
allt sé svo gott. Vegna þess að það
eru ákveðnir hópar í samfélaginu
sem hafa það virkilega gott en svo
er það hópurinn sem fær aldrei að
vera með þegar þjóðin er ávörpuð.
Það er svo erfitt fyrir sjálfsmatið,
sem er lágt fyrir, að fá alltaf þessa
umræðu þar sem þú ert ekki tal-
inn með og ekki þess virði að vera
nefndur í sömu andrá og aðrir þjóð-
félagsþegnar.“ n
Erfitt fyrir fátækt fólk að fá
ekki dósapeninginn strax
Ásta Dís telur það geta orðið fólki í fátækt erfitt að bíða til næsta dags eftir dósapeningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Pepp Ísland
Pepp Ísland, grasrót fólks í fá-
tækt, er grasrótarstarf EAPN
á Íslandi og er öllum opið
sem hafa reynslu af fátækt
og félagslegri einangrun og
vilja taka þátt í öflugu starfi
til að breyta aðstæðum fólks
sem býr við fátækt og við-
horfum samfélagsins til þess.
Greiðslukerfi lokað
Endurvinnslan harmar á
heimasíðu sinni að þurfa að
loka gamla kortagreiðslu-
kerfinu á flöskumóttöku-
stöðvum sínum vegna
breytinga á grunnkerfum
kortafærslna.
Í stað kortagreiðslukassa
er viðskiptavinum boðið upp
á að sækja smáforrit í snjall-
síma og fá skilagjaldið greitt
með því.
Fyrst um sinn er millifært á
reikninga næsta virka dag en
vonir standa til að hægt verði
að stytta útgreiðslutímann
niður fyrir klukkustund á
næstu mánuðum.
18 Lífið 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURFréttablaðið