Fréttablaðið - 06.01.2023, Side 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing Torg ehf.
2022 - 2025
Nýju ári fylgja ný markmið.
Oftast. Fjöldi landsmanna heitir
því að verða mjórri, ríkari, sætari,
hlaupa lengra eða ferðast meira.
Lifa til fulls. Verða besta útgáfan
af sjálfum sér. Það er reyndar
fáheyrt áramótaheit að verða
versta mögulega útgáfan af
sjálfum sér, kannski sem betur fer.
Markmið nýs árs snúa oft
að ytra byrði manneskjunnar.
Útliti, líkamsþyngd, getunni
til að kaupa hluti og upplifanir
sem verðskulda góðan póst á
Instagram. Enda hendir kona í
feita stöðufærslu taki hún upp á
ferðalögum á framandi slóðir, svo
ég tali nú ekki um hlaup, allt um
eða yfir 10 kílómetra verðugt birt-
ingarefni! Því er þó ekki að neita
að bestu útgáfurnar, ofurfólkið
sem hleypur maraþon í dögun og
fastar meginhluta sólarhringsins,
á aðdáun okkar skilið. Afköst og
árangur. Brjálað að gera og allir
sætir og mjóir. Samt verið að
#lifaognjóta.
En af hverju erum við ekki nógu
góð? Hvað þarf að sanna, fyrir
hverjum og hvers vegna? Mæli-
kvarði verðleika þjóðarinnar
hefur löngum falist í dugnaði. Er
ekki brjálað að gera? Jú! Gott að
heyra!
Fólk sem hefur ekki brjálað að
gera er líklega húðlatt og stærri
synd er vart hægt að fremja.
Við metum verðleika okkar og
stundum tilverurétt út frá títt-
nefndum en misskildum dugnaði.
Mín (ég viðurkenni, írónísku)
áramótaheit eru þess vegna að
vera duglegri í ræktinni, taka
gönguskíðin alla leið, hlaupa nátt-
úruhlaup, hætta að borða brauð,
drekka bara gulrótar- og sellerís-
safa fyrir hádegi og lesa 52 bækur.
Svo dugleg að #lifaognjóta! n
Lifa og njóta
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
lyaver.is
Netapótek
Lyavers
Þrettándasalan er opin í dag um allt
land. Okkar styrkur skiptir máli!
flugeldar.is
Þrettándasala