Vörn - 10.11.1940, Qupperneq 1
I. árg.
1. tölublað.
Vör n
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafur Magnússon.
10. nóv.
1940.
Opið bréf til Alþýðuflokksmanna á ísafirði.
Ávarp.
Blaði því, er hér kemur íýrir
almennings sjónir, er ekki ætl-
að langra lífdaga.
Það fæðist, vinnur sitt ætl-
unarverk og deyr síðan drottni
sínum, eins og flest annað í
þessum heimi.
En ætlunarverk þess er það,
að skýra afstöðu mína til marg-
umræddrar kosningar í gjald-
kerastöðu Sjúkrasamlags Isa-
fjarðar.
Ég hefi, í þessu máli, ekki
getað orðið sammála ýmsum
góðkunningjum mínum og
helstu leiðtogum Alþýðuflokks-
ins hér í bæ.
í sambandi við þennan á-
greining hefi ég hlotið ámæli
ýmsra flokksmanna minna og
ásökun um margföld svik og
lygar, svo að ég tel brýna ástæðu
að skýra afstöðu mína opin-
berlega.
Ég hefi farið fram á það við
ritstjóra blaðsins Skutuls, hr.
professor Guðm. G. Hagalín,
að hann léði mér rúm í blað-
inu til að skýra afstöðu mína
og leitast við að hreinsa mig af
þessum áburði, en hann hefir
tjáð mér, að um þetta mál
verði ekki skrifaður einn stafur
í blaðið meðan hann er rit-
stjóri.
Ég hefi spurt, bæði hann og
þingmann flokksins hér í bæ,
hr. Finn Jónsson, hvort ég
ekki mundi fá að skýra frá
málinu á flokksfélagsfundi, en
þeir hafa talið að það kæmi
ekki til mála.
Mér skilst því, að ég ekki
eigi að fá að njóta þeirra rétt-
inda innan flokksins, sem jafn-
vel verstu glæpamönnum er
tryggður í siðuðum þjóðfélög-
um.
Ég veit að til eru þeir menn,
Aðdragandi.
Stjórn Sjúkrasamlags ísafjarð-
ar skipa 5 menn. Voru 4 þeirra
kosnir af bæjarstjórn, eftir síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar,en
formaður var skipaður af ráð-
herra.
Upphaflega var ekki gert ráð
fyrir neinum varastjórnarmönn-
um í lögunum um Alþýðutrygg-
ingar, en úr því var bætt á
síðasta Alþingi.
Gjaldkeri Sjúkrasamlagsins
hér sagði upp stöðunni í haust
og var hún þá auglýst til um-
sóknar og veitt Jóni A. Jóhanns-
syni, með hlutkesti, sem svo
skömmu síðar fékk lausn sam-
kvæmt ósk sinni. Var nú stað-
an enn auglýst til umsóknar
frá 1. nóv. og skyldi umsókn-
arfrestur vera til 30. okt.
Hinn 30. okt. heldur bæjar-
stjórn Isafjarðar fund og kýs
4 varamenn í stjórn Sjúkra-
samlagsins, af A-lista þá Ólaf
Magnússon og Helga Hannes-
son og af B-lista þá Óskar
sem fellt liafa dóm í máli þessu,
án þess að vilja hlusta á máls-
vörn mína og kann að vera
að þessi orð breyti þeim dómi.
Hina, sem enn þá hafa engan
dóm fellt, en láta sig málið
einhverju skifta, bið ég að lesa
eftirfarandi orð, áður en þeir
fella dóm sinn.
Borg og Matthías Ásgeirsson.
Um kl. 11 á fimtudagsmorg-
un hinn 31. okt. s.l., eða dag-
inn eftir þessa kosningu, hringir
Guðm. G. Kristjánsson formað-
ur Sjúkrasamlags ísafjarðar til
mín og segir mér að ég hafi
verið kosinn fyrsti varamaður
í stjórn Samlagsins íyrir Al-
þýðuflokkinn og boðar mér
jafnframt fund þá um kvöldið
kl. 9 til þess m. a. að veita
gjaldkerastöðu þá, sem auglýst
hafði verið laus frá 1. nóv.
Skýrði hann mér frá, að hann
og Grímur Kristgeirsson hefðu
komið sér saman um að kjósa
Baldvin Þórðarson og spyr
hvort ég mundi ekki vera til
með að taka þátt í því kosn-
ingabandalagi. Bað ég hann þá
fyrst, að skýra mér frá, hverjir
hefðu sótt um stöðuna og gerði
hann það, en í þeirri upptaln-
ingu var eins umsækjandans,
H. Aspelund, ekki getið.
Sagði ég þá að það gæti vel
komið til mála, og að ég skyli
Afstaða mín til veitingar gjaldkerastöðu
Sjúkrasamlags ísafjarðar.