Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 2
Nú spilar þú á fetilgítar, hvað er það?
Ég kynntist fetilgítar fyrir um fjórum árum og varð ástfang-
inn af þessu hljóðfæri. Þetta er „slæd“-gítar en honum er
stjórnað að miklu leyti með pedulum og hnéstífum. Það sem
er öðruvísi en gítar er að það er hægt færa til nótur innan
hljóms og svo ná dýpri túlkun með mismunandi víbratói. Hljóð-
færið er þekktast fyrir að vera notað í kántrímúsík. Fyrstu
árin fóru í það að ná grunntökum á hljóðfærinu og svo
fór mikill tími í að reyna að finna mína rödd á fetal-
gítarnum. Síðan fór ég að skoða hvað mig langaði
að gera með það og fór þá að útsetja á það gömul
íslensk sönglög frá 1930 til 1960, lög sem hafa
fylgt þjóðarsálinni í gegnum tíðina.
Ætlarðu að gefa lögin út á plötu?
Já, ég útsetti þessi lög á hljóðfærið. Ég tók þau
svo upp á vormánuðum með Matthíasi Hemstock
á slagverk og Tómasi Jónssyni á píanó og hljóm-
borði. Við bjuggum til hljóðheim sem hentaði
hljóðfæraskipuninni. Platan heitir Ómar fortíðar og
kemur út rétt fyrir tónleikana á Jazzhátíð Reykja-
víkur. Þetta eru þá í raun útgáfutónleikar.
En verður einhver spuni
á tónleikunum?
Já, það kemur inn á milli. Með svona tónlist er allt
opið og fer eftir hvernig okkur líður í salnum og
með fólkinu.
Er djass í uppáhaldi?
Ég hef aldrei verið í grunninn djassisti, en hef
alltaf viljað hafa hlut-
ina opna og skapa
einhverja áhættu.
Hvað viltu að
áhorfendur
upplifi á tón-
leikunum?
Ég vona að þeir
upplifi ferðalag
á nýjar lendur.
ÓMAR GUÐJÓNSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Ómar fortíðar
S
kammt er nú stórra högga á milli á fjölmiðlunum en með nokkurra daga
millibili hafa tveir úr fjölmiðlastéttinni látið gott heita eftir að hafa
staðið fréttavaktina í hálfa öld. Um mánaðamótin ákvað Ágúst Ingi
Jónsson að láta staðar numið á Morgunblaðinu og á dögunum var tilkynnt að
Edda Andrésdóttir hefði lesið fréttirnar í síðasta sinn á Stöð 2.
Það er óneitanlega merkilegt að ná hálfri öld í sama starfinu, hvort sem
það er á fjölmiðlunum eða annars staðar, og þar af leiðandi skiljanlegt að um
það sé fjallað. Ég er ekki þeirrar
skoðunar að fréttamennska sé merki-
legra en önnur störf og stundum hef-
ur manni þótt nóg um þegar fjöl-
miðlafólk fjallar um annað
fjölmiðlafólk. En þau Ágúst Ingi og
Edda hafa sannarlega unnið fyrir því
að á þessi tímamót sé minnst. Ágúst
Ingi var fréttastjóri í áratugi og til
að mynda á velmegunartíma blaðs-
ins. Ljóst er að álagið hefur oft verið
mikið og unnið á öllum tímum sólar-
hringsins. Eddu þekki ég ekki per-
sónulega en hef séð samstarfsfólk
hennar ausa hana lofi síðustu daga.
Ég hef aldrei heyrt nokkurn mann
hallmæla henni, jafnvel þótt hún hafi
verið á skjánum áratugum saman hjá fámennri þjóð þar sem þjóðaríþróttin
virðist vera að baktala þekkt fólk. Líklega segir það nokkuð um Eddu.
Þegar ég var að velta fyrir mér þessum langa starfsaldri þá kom einhverra
hluta vegna upp í hugann fyrsti starfsmaðurinn í fyrirtæki, sem faðir minn
rak vestur á fjörðum. Þegar hann var að koma á fót trésmíðaverkstæði á
sjötta áratugnum fékk hann Hrólf, kunningja sinn, til að aðstoða sig. Hrólfur
starfaði hálfan daginn fyrst um sinn og hálfan daginn í öðru. Fljótlega varð
þetta að fullu starfi hjá Hrólfi sem var laginn á verkstæðinu og kunni ágæt-
lega við sig. Ég sé ekki fyrir mér að þeir félagarnir hafi verið uppteknir af
miklum formlegheitum varðandi samninga. Það kann þó að vera en ég gæti
ímyndað mér að handabandið hafi verið látið duga, enda treystu menn slíku í
þá daga. Fyrirtækið stækkaði utan um þá félaga og starfsfólk bættist við á
skrifstofu sem sá um starfsmannahaldið. Stilla mátti klukku eftir Hrólfi þeg-
ar hann kom og fór og missti nánast aldrei dag úr vinnu í áratugi. Vann sitt
starf af kostgæfni en vildi ekki láta hafa mikið fyrir sér. Dag einn mætti
Hrólfur ekki og fór faðir minn að hafa áhyggjur þegar ekki fréttist hvers
vegna. Hringdi hann í Hrólf og fiskaði eftir því hvers vegna Hrólfur hefði
ekki mætt á verkstæðið. Ekki stóð á svarinu: „Nú, ég er kominn á aldur.“
Láta staðar numið
eftir hálfa öld
Pistill
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
’
Stundum hefur
manni þótt nóg um
þegar fjölmiðlafólk fjallar
um annað fjölmiðlafólk.
En þau Ágúst og Edda
hafa sannarlega unnið
fyrir því að á þessi tíma-
mót sé minnst.
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022
Laugarnar í Reykjavík
w w w. i t r. i s
Frá og með 1. ágúst verður frítt
í sundlaugar Reykjavíkurborgar
fyrir börn þar til þau ljúka grunnskóla
– það er 1. ágúst árið sem þau verða 16 ára
Margrét Jónasdóttir
Ég ætla í skóla, að skipta um vinnu
og fara til Danmerkur, Svíþjóðar og
Grænlands í vinnuferðir.
SPURNING
DAGSINS
Hvað ætlar
þú að gera í
haust?
Lúðvík Kristinsson
Ég vinn í útlöndum og held því
áfram en ég vinn við að fljúga fyrir
Air Atlanta út um allan heim.
Sigurbjörg Gunnarsdóttir
Ferðast til Ítalíu, vinna og njóta
lífsins.
Alex Lúðvíksson
Fara í skólann og spila fótbolta.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Ljósmynd/Spessi
Sunnudag 14. ágúst
klukkan 19.30 verða
útgáfutónleikarnir
Ómar fortíðar í
Kaldalóni í Hörpu.
Ómar leikur á fetil-
gítar melódíur úr ís-
lenskri fortíð ásamt
Tómasi Jónssyni og
Matthíasi Hemstock.
Miðar fást á tix.is og
á reykjavikjazz.is.