Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 32
SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2022 Epli og appelsínur verða til sölu fyrir túkall í Aðalstræti í Reykjavík laugardaginn 20. ágúst frá klukkan 10 til 14. Ávext- irnir verða í boði fyrir utan Aðalstræti 10, þar sem verslun Silla og Valda var til húsa. Ávaxtasalan er í tengslum við sýninguna Reykjavík … sagan heldur áfram og er hluti af því sem í boði verður upp á Menning- arnótt, að degi til. Sýningin er auglýst frá klukkan 10 til klukkan 20 og teygir sig neðanjarðar frá Landnámssýningunni í Að- alstræti 16 yfir í elsta hús Kvosarinnar, sem er Aðalstræti 10. Sýningin er framhald af Landnámssýningunni og rekur sögu byggðar í Reykjavík allt frá landnáminu til samtímans. Áhersla er lögð á að draga fram þætti úr sögu Reykjavíkur, varpa ljósi á daglegt líf íbúanna og tíðarandann í aldanna rás. Sýningunni er ætlað að vekja áhuga og spurningar – og koma á óvart, með fjöl- breyttri miðlun og upplifun. Aðalstræti 10 í Reykjavík. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ávextir fyrir túkall Stúlka afgreiðir í verslun Silla og Valda árið 1976. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Sýning í Aðalstræti á laugardaginn um þróun Reykjavíkur frá býli til borgar Morgunblaðið segir frá Íslands- mótinu í fallhlífarstökki í ágúst árið 1977. Var mótið haldið á Melgerðismelum í Eyjafirði 6. ágúst 1977 og voru fjórtán kepp- endur með í mótinu. Norðangola gerði kepp- endum erfitt fyrir og báðir keppendurnir í kvennaflokki hættu keppni eftir tvö stökk. Gera varð hlé á keppninni um tíma vegna veðurs. Á ýmsu gekk og munaði litlu að einn kepp- andinn lenti á bifreið áhorfenda samkvæmt frásögn blaðsins. Auk þess lenti annar í heyflekk og var meðfylgjandi mynd af því atviki. Akureyringurinn Sigurður Bjarklind varð Íslandsmeistari í fallhlífarstökki en hann hafði einnig orðið Íslandsmeistari árið á undan. Næstir komu Reykvík- ingarnir Þorsteinn Guðbjörns- son og Haukur Sigurðsson. Keppnin fór fram með þeim hætti að hver keppandi fékk þrjú stökk úr 1.000 metra hæð. Reyndu keppendur að lenda eins nærri punkti á jörðinni og hægt var. Mesta nákvæmni í einstöku stökki sýndi Haukur Sigurðsson þegar hann var aðeins 35 cm frá punktinum. GAMLA FRÉTTIN Norðan- golan erfið viðureignar Keppandi nýlentur í heyflekk eftir að hafa borið af leið. Morgunblaðið/sisi ÞRÍFARAR VIKUNNAR Sylvía Ösp Símonardóttir nemi í heilbrigðisverkfræði Jennifer Morrison bandarísk leikkona María Ellingsen íslensk leikkona

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.