Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2022
Epli og appelsínur verða til sölu fyrir túkall í Aðalstræti í
Reykjavík laugardaginn 20. ágúst frá klukkan 10 til 14. Ávext-
irnir verða í boði fyrir utan Aðalstræti 10, þar sem verslun Silla
og Valda var til húsa.
Ávaxtasalan er í tengslum við sýninguna Reykjavík … sagan
heldur áfram og er hluti af því sem í boði verður upp á Menning-
arnótt, að degi til. Sýningin er auglýst frá klukkan 10 til klukkan
20 og teygir sig neðanjarðar frá Landnámssýningunni í Að-
alstræti 16 yfir í elsta hús Kvosarinnar, sem er Aðalstræti 10.
Sýningin er framhald af Landnámssýningunni og rekur sögu
byggðar í Reykjavík allt frá landnáminu til samtímans. Áhersla
er lögð á að draga fram þætti úr sögu Reykjavíkur, varpa ljósi á
daglegt líf íbúanna og tíðarandann í aldanna rás. Sýningunni er
ætlað að vekja áhuga og spurningar – og koma á óvart, með fjöl-
breyttri miðlun og upplifun.
Aðalstræti 10
í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ávextir fyrir túkall
Stúlka afgreiðir í verslun Silla og Valda árið 1976.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Sýning í Aðalstræti á laugardaginn um
þróun Reykjavíkur frá býli til borgar
Morgunblaðið segir frá Íslands-
mótinu í fallhlífarstökki í ágúst
árið 1977. Var mótið haldið á
Melgerðismelum í Eyjafirði 6.
ágúst 1977 og voru fjórtán kepp-
endur með í mótinu.
Norðangola gerði kepp-
endum erfitt fyrir og báðir
keppendurnir í kvennaflokki
hættu keppni eftir tvö stökk.
Gera varð hlé á keppninni um
tíma vegna veðurs. Á ýmsu gekk
og munaði litlu að einn kepp-
andinn lenti á bifreið áhorfenda
samkvæmt frásögn blaðsins.
Auk þess lenti annar í heyflekk
og var meðfylgjandi mynd af því
atviki.
Akureyringurinn Sigurður
Bjarklind varð Íslandsmeistari í
fallhlífarstökki en hann hafði
einnig orðið Íslandsmeistari árið
á undan. Næstir komu Reykvík-
ingarnir Þorsteinn Guðbjörns-
son og Haukur Sigurðsson.
Keppnin fór fram með þeim
hætti að hver keppandi fékk þrjú
stökk úr 1.000 metra hæð.
Reyndu keppendur að lenda eins
nærri punkti á jörðinni og hægt
var. Mesta nákvæmni í einstöku
stökki sýndi Haukur Sigurðsson
þegar hann var aðeins 35 cm frá
punktinum.
GAMLA FRÉTTIN
Norðan-
golan erfið
viðureignar
Keppandi nýlentur í heyflekk eftir að hafa borið af leið.
Morgunblaðið/sisi
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Sylvía Ösp Símonardóttir
nemi í heilbrigðisverkfræði
Jennifer Morrison
bandarísk leikkona
María Ellingsen
íslensk leikkona