Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 19
Hestar eru góð módel
Elisa ólst upp við hestamennsku í Hollandi og
hafði því góða reynslu. En annað áhugamál
kviknaði þegar hún flutti til Íslands.
„Ég hafði aldrei snert myndavél áður en ég
kom hingað. En hér var svo fallegt að ég var
stöðugt að taka myndir á símann minn sem ég
sendi á vini mína eða setti á instagramreikning
minn @elisa_in_iceland. Svo eftir ár á Íslandi
datt mér í hug að kaupa mér alvörumyndavél.
Ég byrjaði að mynda, aðallega hesta, sem eru
góð módel, en einnig landslag. Ég fór að pósta
ljósmyndunum á instagram og seinna opnaði ég
vefsíðuna elisainiceland.com þar sem fólk getur
keypt eftir mig myndir, en einnig læt ég prenta
á lyklakippur og símahulstur. Þetta er meira til
gamans gert; ég verð ekkert rík af þessu,“ segir
hún og hlær.
„Ég er með sautján þúsund fylgjendur á insta-
gram þannig að það eru þó nokkrir. Ég vinn ekki
sem áhrifavaldur; það hefur aldrei verið mitt
markmið, en ég hef verið í viðræðum við Icewear
um að fara í samstarf við þau. En sem stendur er
ég mjög upptekin í ýmsum störfum. Ég vil ná til
fólks í gegnum instagram en ég hef líka verið að
selja mikið af íslenskum lopapeysum sem ég hef
sjálf prjónað,“ segir Elisa og segist aldrei hafa
snert prjóna fyrr en hún kom hingað.
Prjónaði 45 peysur á einu ári
„Ég lærði að prjóna á Íslandi, en amma mín
kenndi mér að prjóna þegar ég var átta ára og
ég prjónaði þá pínulitla prufu og aldrei neitt
meira. Á Íslandi fór ég að prófa mig áfram og
byrjaði á treflum og svo ákvað ég að prófa
peysu. Ég féll alveg fyrir prjónaskap og ég
prjónaði 45 peysur á einu ári,“ segir hún og
skellihlær.
„En þetta var líka á Covid-tímum og ég hafði
lítið annað að gera. Ég prjónaði allan veturinn
og seldi, en oftast prjónaði ég eftir pöntun. Ég
var algjörlega háð prjónaskap og því gott að mér
tókst að selja eitthvað,“ segir hún og segist
smátt og smátt hafa farið að hanna sín eigin
mynstur.
„Ég nota instagram til að selja mínar afurð-
ir, en er líka farin að ráðleggja fólki í gegnum
myndsímtöl hvað það eigi að gera á Íslandi. Þá
getur fólk spurt mig beint og ég rukka þá fyrir
tímann,“ segir hún og segist í raun vera leið-
sögumaður í netheimum.
Aldrei sungið en syngur í kirkjukór
Það virðist vera nóg að gera hjá þér!
„Já, í augnablikinu er brjálað að gera. Ég er
eins og Íslendingur sem er í mörgum vinnum,“
segir hún og hlær.
Hvernig er að búa í sveitinni?
„Það er mjög gott. Ég er bara tíu mínútur frá
Akureyri og því stutt að fara að hitta vini þar. Ég
hef eignast marga vini hér og held að það sé auð-
veldara að eignast vini úti á landi en í höfuðborg-
inni. Svo syng ég líka í íslenskum kirkjukór; enn
eitt sem ég hélt ég myndi aldrei taka upp á! Ég
hef aldrei áður sungið og er ekkert góð en hef
eignast góða vini í kórnum,“ segir hún og hlær.
„Annað sem ég hafði aldrei gert er að fara á
róðrarbretti. Það er ansi margt nýtt sem ég
hef gert á Íslandi!“
Klósettlokið á að vera uppi!
Nú sérðu hlutina með gestsaugum og póstar
stundum um þau mál. Segðu mér frá málinu
með klósettlokin?
Elisa skellihlær.
„Ég hafði aldrei leitt hugann að þessu áður
en ég kom hingað, en í Hollandi setur enginn
klósettlokið niður en hér gera það allir. Mér
finnst það mjög pirrandi!“ segir hún og hlær.
„Ég veit að fólk hér vill hafa klósettin lokuð.
Heima í Hollandi er eitthvað að ef lokið er
niðri. Þá veit maður að klósettið er stíflað og
þar er eitthvað sem maður vill ekki sjá. Þannig
að í mínum huga held ég það sama þegar ég sé
lokuð klósett hér,“ segir hún.
„Það er mjög slæmt ef ég er á bar, aðeins í
því, og fer á klósettið, því þá man ég ekki að
lokið er niðri og sest á það. Það er ekki góð til-
finning!“ segir hún og hlær dátt.
Og þú byrjar að pissa eða?
„Nei, ég hef ekki lent í því sem betur fer en
tvær erlendar vinkonur mínar hafa lent í því.
Það var heldur ekki skemmtilegt!“
Hvað fleira er skrítið hér á landi?
„Mér finnst skrítið hvað fólk hér byrjar ungt
að eignast börn, oft um tvítugt. Í Hollandi er
nánast vonlaust að vera í námi og eignast börn
á sama tíma,“ segir hún.
„Svo eru fjölskyldubönd hér mun sterkari
en í Hollandi. Annað sem ég hef tekið eftir er
að það er minna mál að skilja og hefja nýtt
samband; hér er fólk lítið að spá í slíkt,“ segir
hún og nefnir annan mun á Hollendingum og
Íslendingum.
„Hollendingar segja hlutina beint út en hér
forðast fólk átök. Þannig að hér eru stundum
ósagðir hlutir sem maður fréttir eftir öðrum
leiðum.“
Þorrablót er nokkuð sem fyrirfinnst ekki í
heimalandinu og er í uppáhaldi hjá Elisu.
„Ég algjörlega elska þorrablót, það er besta
partí ársins þótt maturinn sé skelfilegur. Ann-
ars finnst mér maturinn yfirleitt ágætur og
ekkert svo ólíkur því sem ég á að venjast.“
Hér er ég hamingjusöm
Nú ertu búin að búa hér í sex ár, hvað finnst
fólkinu þínu um það?
„Foreldrar mínir voru ekkert glöð í byrjun
en þau sjá hvað ég er hamingjusöm hér þannig
að þau hafa lært að lifa með því. Þau koma
tvisvar á ári í heimsókn, nema auðvitað í Cov-
id. Og bræður mínir hafa komið nokkrum sinn-
um. Það skilja ekki allir af hverju ég vil vera
hér; hér er ekki beint Tenerife-veður, en ég
elska þetta loftslag,“ segir Elisa.
„Ég elska Akureyri og Hörgársveit og
myndi ekki vilja búa annars staðar. Ég hef
keypt mér smá landskika og ætla að byggja
þar kúluhús,“ segir Elisa og segist vel geta
hugsað sér að búa hér til frambúðar.
„Ég get ekki ímyndað mér að ég vilji fara,
en aldrei að segja aldrei.“
Ljósmyndir/Elisa
Elisa myndar oft landslag.
Hér myndaði hún Fláa-
jökul í allri sinni dýrð.
’
Svo syng ég líka í íslensk-
um kirkjukór; enn eitt sem
ég hélt ég myndi aldrei taka
upp á! Ég hef aldrei áður
sungið og er ekkert góð en hef
eignast góða vini í kórnum.
14.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19