Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 19
Hestar eru góð módel Elisa ólst upp við hestamennsku í Hollandi og hafði því góða reynslu. En annað áhugamál kviknaði þegar hún flutti til Íslands. „Ég hafði aldrei snert myndavél áður en ég kom hingað. En hér var svo fallegt að ég var stöðugt að taka myndir á símann minn sem ég sendi á vini mína eða setti á instagramreikning minn @elisa_in_iceland. Svo eftir ár á Íslandi datt mér í hug að kaupa mér alvörumyndavél. Ég byrjaði að mynda, aðallega hesta, sem eru góð módel, en einnig landslag. Ég fór að pósta ljósmyndunum á instagram og seinna opnaði ég vefsíðuna elisainiceland.com þar sem fólk getur keypt eftir mig myndir, en einnig læt ég prenta á lyklakippur og símahulstur. Þetta er meira til gamans gert; ég verð ekkert rík af þessu,“ segir hún og hlær. „Ég er með sautján þúsund fylgjendur á insta- gram þannig að það eru þó nokkrir. Ég vinn ekki sem áhrifavaldur; það hefur aldrei verið mitt markmið, en ég hef verið í viðræðum við Icewear um að fara í samstarf við þau. En sem stendur er ég mjög upptekin í ýmsum störfum. Ég vil ná til fólks í gegnum instagram en ég hef líka verið að selja mikið af íslenskum lopapeysum sem ég hef sjálf prjónað,“ segir Elisa og segist aldrei hafa snert prjóna fyrr en hún kom hingað. Prjónaði 45 peysur á einu ári „Ég lærði að prjóna á Íslandi, en amma mín kenndi mér að prjóna þegar ég var átta ára og ég prjónaði þá pínulitla prufu og aldrei neitt meira. Á Íslandi fór ég að prófa mig áfram og byrjaði á treflum og svo ákvað ég að prófa peysu. Ég féll alveg fyrir prjónaskap og ég prjónaði 45 peysur á einu ári,“ segir hún og skellihlær. „En þetta var líka á Covid-tímum og ég hafði lítið annað að gera. Ég prjónaði allan veturinn og seldi, en oftast prjónaði ég eftir pöntun. Ég var algjörlega háð prjónaskap og því gott að mér tókst að selja eitthvað,“ segir hún og segist smátt og smátt hafa farið að hanna sín eigin mynstur. „Ég nota instagram til að selja mínar afurð- ir, en er líka farin að ráðleggja fólki í gegnum myndsímtöl hvað það eigi að gera á Íslandi. Þá getur fólk spurt mig beint og ég rukka þá fyrir tímann,“ segir hún og segist í raun vera leið- sögumaður í netheimum. Aldrei sungið en syngur í kirkjukór Það virðist vera nóg að gera hjá þér! „Já, í augnablikinu er brjálað að gera. Ég er eins og Íslendingur sem er í mörgum vinnum,“ segir hún og hlær. Hvernig er að búa í sveitinni? „Það er mjög gott. Ég er bara tíu mínútur frá Akureyri og því stutt að fara að hitta vini þar. Ég hef eignast marga vini hér og held að það sé auð- veldara að eignast vini úti á landi en í höfuðborg- inni. Svo syng ég líka í íslenskum kirkjukór; enn eitt sem ég hélt ég myndi aldrei taka upp á! Ég hef aldrei áður sungið og er ekkert góð en hef eignast góða vini í kórnum,“ segir hún og hlær. „Annað sem ég hafði aldrei gert er að fara á róðrarbretti. Það er ansi margt nýtt sem ég hef gert á Íslandi!“ Klósettlokið á að vera uppi! Nú sérðu hlutina með gestsaugum og póstar stundum um þau mál. Segðu mér frá málinu með klósettlokin? Elisa skellihlær. „Ég hafði aldrei leitt hugann að þessu áður en ég kom hingað, en í Hollandi setur enginn klósettlokið niður en hér gera það allir. Mér finnst það mjög pirrandi!“ segir hún og hlær. „Ég veit að fólk hér vill hafa klósettin lokuð. Heima í Hollandi er eitthvað að ef lokið er niðri. Þá veit maður að klósettið er stíflað og þar er eitthvað sem maður vill ekki sjá. Þannig að í mínum huga held ég það sama þegar ég sé lokuð klósett hér,“ segir hún. „Það er mjög slæmt ef ég er á bar, aðeins í því, og fer á klósettið, því þá man ég ekki að lokið er niðri og sest á það. Það er ekki góð til- finning!“ segir hún og hlær dátt. Og þú byrjar að pissa eða? „Nei, ég hef ekki lent í því sem betur fer en tvær erlendar vinkonur mínar hafa lent í því. Það var heldur ekki skemmtilegt!“ Hvað fleira er skrítið hér á landi? „Mér finnst skrítið hvað fólk hér byrjar ungt að eignast börn, oft um tvítugt. Í Hollandi er nánast vonlaust að vera í námi og eignast börn á sama tíma,“ segir hún. „Svo eru fjölskyldubönd hér mun sterkari en í Hollandi. Annað sem ég hef tekið eftir er að það er minna mál að skilja og hefja nýtt samband; hér er fólk lítið að spá í slíkt,“ segir hún og nefnir annan mun á Hollendingum og Íslendingum. „Hollendingar segja hlutina beint út en hér forðast fólk átök. Þannig að hér eru stundum ósagðir hlutir sem maður fréttir eftir öðrum leiðum.“ Þorrablót er nokkuð sem fyrirfinnst ekki í heimalandinu og er í uppáhaldi hjá Elisu. „Ég algjörlega elska þorrablót, það er besta partí ársins þótt maturinn sé skelfilegur. Ann- ars finnst mér maturinn yfirleitt ágætur og ekkert svo ólíkur því sem ég á að venjast.“ Hér er ég hamingjusöm Nú ertu búin að búa hér í sex ár, hvað finnst fólkinu þínu um það? „Foreldrar mínir voru ekkert glöð í byrjun en þau sjá hvað ég er hamingjusöm hér þannig að þau hafa lært að lifa með því. Þau koma tvisvar á ári í heimsókn, nema auðvitað í Cov- id. Og bræður mínir hafa komið nokkrum sinn- um. Það skilja ekki allir af hverju ég vil vera hér; hér er ekki beint Tenerife-veður, en ég elska þetta loftslag,“ segir Elisa. „Ég elska Akureyri og Hörgársveit og myndi ekki vilja búa annars staðar. Ég hef keypt mér smá landskika og ætla að byggja þar kúluhús,“ segir Elisa og segist vel geta hugsað sér að búa hér til frambúðar. „Ég get ekki ímyndað mér að ég vilji fara, en aldrei að segja aldrei.“ Ljósmyndir/Elisa Elisa myndar oft landslag. Hér myndaði hún Fláa- jökul í allri sinni dýrð. ’ Svo syng ég líka í íslensk- um kirkjukór; enn eitt sem ég hélt ég myndi aldrei taka upp á! Ég hef aldrei áður sungið og er ekkert góð en hef eignast góða vini í kórnum. 14.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.