Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Side 2
Nú spilar þú á fetilgítar, hvað er það? Ég kynntist fetilgítar fyrir um fjórum árum og varð ástfang- inn af þessu hljóðfæri. Þetta er „slæd“-gítar en honum er stjórnað að miklu leyti með pedulum og hnéstífum. Það sem er öðruvísi en gítar er að það er hægt færa til nótur innan hljóms og svo ná dýpri túlkun með mismunandi víbratói. Hljóð- færið er þekktast fyrir að vera notað í kántrímúsík. Fyrstu árin fóru í það að ná grunntökum á hljóðfærinu og svo fór mikill tími í að reyna að finna mína rödd á fetal- gítarnum. Síðan fór ég að skoða hvað mig langaði að gera með það og fór þá að útsetja á það gömul íslensk sönglög frá 1930 til 1960, lög sem hafa fylgt þjóðarsálinni í gegnum tíðina. Ætlarðu að gefa lögin út á plötu? Já, ég útsetti þessi lög á hljóðfærið. Ég tók þau svo upp á vormánuðum með Matthíasi Hemstock á slagverk og Tómasi Jónssyni á píanó og hljóm- borði. Við bjuggum til hljóðheim sem hentaði hljóðfæraskipuninni. Platan heitir Ómar fortíðar og kemur út rétt fyrir tónleikana á Jazzhátíð Reykja- víkur. Þetta eru þá í raun útgáfutónleikar. En verður einhver spuni á tónleikunum? Já, það kemur inn á milli. Með svona tónlist er allt opið og fer eftir hvernig okkur líður í salnum og með fólkinu. Er djass í uppáhaldi? Ég hef aldrei verið í grunninn djassisti, en hef alltaf viljað hafa hlut- ina opna og skapa einhverja áhættu. Hvað viltu að áhorfendur upplifi á tón- leikunum? Ég vona að þeir upplifi ferðalag á nýjar lendur. ÓMAR GUÐJÓNSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Ómar fortíðar S kammt er nú stórra högga á milli á fjölmiðlunum en með nokkurra daga millibili hafa tveir úr fjölmiðlastéttinni látið gott heita eftir að hafa staðið fréttavaktina í hálfa öld. Um mánaðamótin ákvað Ágúst Ingi Jónsson að láta staðar numið á Morgunblaðinu og á dögunum var tilkynnt að Edda Andrésdóttir hefði lesið fréttirnar í síðasta sinn á Stöð 2. Það er óneitanlega merkilegt að ná hálfri öld í sama starfinu, hvort sem það er á fjölmiðlunum eða annars staðar, og þar af leiðandi skiljanlegt að um það sé fjallað. Ég er ekki þeirrar skoðunar að fréttamennska sé merki- legra en önnur störf og stundum hef- ur manni þótt nóg um þegar fjöl- miðlafólk fjallar um annað fjölmiðlafólk. En þau Ágúst Ingi og Edda hafa sannarlega unnið fyrir því að á þessi tímamót sé minnst. Ágúst Ingi var fréttastjóri í áratugi og til að mynda á velmegunartíma blaðs- ins. Ljóst er að álagið hefur oft verið mikið og unnið á öllum tímum sólar- hringsins. Eddu þekki ég ekki per- sónulega en hef séð samstarfsfólk hennar ausa hana lofi síðustu daga. Ég hef aldrei heyrt nokkurn mann hallmæla henni, jafnvel þótt hún hafi verið á skjánum áratugum saman hjá fámennri þjóð þar sem þjóðaríþróttin virðist vera að baktala þekkt fólk. Líklega segir það nokkuð um Eddu. Þegar ég var að velta fyrir mér þessum langa starfsaldri þá kom einhverra hluta vegna upp í hugann fyrsti starfsmaðurinn í fyrirtæki, sem faðir minn rak vestur á fjörðum. Þegar hann var að koma á fót trésmíðaverkstæði á sjötta áratugnum fékk hann Hrólf, kunningja sinn, til að aðstoða sig. Hrólfur starfaði hálfan daginn fyrst um sinn og hálfan daginn í öðru. Fljótlega varð þetta að fullu starfi hjá Hrólfi sem var laginn á verkstæðinu og kunni ágæt- lega við sig. Ég sé ekki fyrir mér að þeir félagarnir hafi verið uppteknir af miklum formlegheitum varðandi samninga. Það kann þó að vera en ég gæti ímyndað mér að handabandið hafi verið látið duga, enda treystu menn slíku í þá daga. Fyrirtækið stækkaði utan um þá félaga og starfsfólk bættist við á skrifstofu sem sá um starfsmannahaldið. Stilla mátti klukku eftir Hrólfi þeg- ar hann kom og fór og missti nánast aldrei dag úr vinnu í áratugi. Vann sitt starf af kostgæfni en vildi ekki láta hafa mikið fyrir sér. Dag einn mætti Hrólfur ekki og fór faðir minn að hafa áhyggjur þegar ekki fréttist hvers vegna. Hringdi hann í Hrólf og fiskaði eftir því hvers vegna Hrólfur hefði ekki mætt á verkstæðið. Ekki stóð á svarinu: „Nú, ég er kominn á aldur.“ Láta staðar numið eftir hálfa öld Pistill Kristján Jónsson kris@mbl.is ’ Stundum hefur manni þótt nóg um þegar fjölmiðlafólk fjallar um annað fjölmiðlafólk. En þau Ágúst og Edda hafa sannarlega unnið fyrir því að á þessi tíma- mót sé minnst. Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 Laugarnar í Reykjavík w w w. i t r. i s Frá og með 1. ágúst verður frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar fyrir börn þar til þau ljúka grunnskóla – það er 1. ágúst árið sem þau verða 16 ára Margrét Jónasdóttir Ég ætla í skóla, að skipta um vinnu og fara til Danmerkur, Svíþjóðar og Grænlands í vinnuferðir. SPURNING DAGSINS Hvað ætlar þú að gera í haust? Lúðvík Kristinsson Ég vinn í útlöndum og held því áfram en ég vinn við að fljúga fyrir Air Atlanta út um allan heim. Sigurbjörg Gunnarsdóttir Ferðast til Ítalíu, vinna og njóta lífsins. Alex Lúðvíksson Fara í skólann og spila fótbolta. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Ljósmynd/Spessi Sunnudag 14. ágúst klukkan 19.30 verða útgáfutónleikarnir Ómar fortíðar í Kaldalóni í Hörpu. Ómar leikur á fetil- gítar melódíur úr ís- lenskri fortíð ásamt Tómasi Jónssyni og Matthíasi Hemstock. Miðar fást á tix.is og á reykjavikjazz.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.