Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Page 14
Morgunblaðið/Ásdís A ð sjá eldgos í návígi með berum augum er sjón sem seint gleymist. Í fyrsta sinn sem fólk ber það augum vakna alls kyns tilfinningar. Sumir skríkja af kæti, hoppa jafnvel upp og niður, aðrir sýna undrun og einhverjir fella jafnvel tár. Náttúran í öllu sínu veldi sýnir hvers hún er megnug og hversu lítil við mannfólkið erum gagnvart henni. Það er nákvæmlega ekkert sem við getum gert til að stöðva gos, né stjórna rennsli glóandi hraunsins. Móðir náttúra ræður þar för og spyr engan álits. Lotning fyrir náttúrunni vaknar innra með manni. Krafturinn frá gosinu með tilheyrandi gusum og fljótandi kviku er gjörsamlega dáleiðandi að horfa á. Það er auðvelt að gleyma stað og stund þar sem maður situr í brekkunni í ylnum frá gosinu og starir inn í eldinn. Tíminn stendur í stað; maður og náttúra verða eitt. Morgunblaðið/Ásdís Magnað sjónarspil Eldgosið í Meradölum er stórbrotið og lætur engan ósnortinn. Ljósmyndarar mynda það nú í gríð og erg frá mörgum sjónarhornum, úr lofti og af landi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Ljósmynd/Arnar Ástráðsson Í MYNDUM 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.