Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 18
E
lisa býr í Hörgársveit, nálægt höfuð-
stað Norðurlands, og vill hvergi
annars staðar vera. Hún er frá Hol-
landi en hefur búið hér á landi í sex
ár við leik og störf. Í dag vinnur
hún bæði á leikskóla og í ferðaþjónustu, en
ástríðan liggur í ljósmyndun, hestum og prjóna-
skap. Við Elisa áttum stefnumót yfir netið í vik-
unni þar sem hún leiddi blaðamann í allan sann-
leikann um hvað lokkaði hana hingað, lífið á
Íslandi og af hverju hún fór að prjóna og taka
myndir. Við ræddum einnig menningarmun
landanna, en Elisu finnst til að mynda afleitt að
Íslendingar setji alltaf klósettlokið niður.
Kolféll fyrir landinu
„Ég bý núna í Skjaldarvík, en það er gistiheimili
þar sem ég vinn og fer með gesti í reiðtúra. En
ég vinn líka á leikskóla, enda er hér lokað yfir
vetrarmánuðina,“ segir Elisa og nefnir að hún
læri mikið í íslensku af börnunum.
„Ég er alin upp í Suður-Hollandi en fór svo í
skóla í Groningen og flutti svo þaðan til Utrecht
þar sem margir Íslendingar fara í tónlistarnám.
Ég lærði amerísk fræði í háskóla, sem hefur
ekkert sérlega mikið notagildi nema ég tala þá
góða ensku,“ segir hún og brosir.
„Í Hollandi var ég að vinna hjá ríkisútvarp-
inu og við spiluðum mikið íslenska tónlist, eins
og Ásgeir Trausta sem ég elskaði að hlusta á.
Af því við spiluðum hann svona mikið datt mér í
hug að fara í frí til Íslands árið 2015. Ég kolféll
fyrir landinu og hugsaði stanslaust um hvernig
og hvenær ég gæti komið aftur. Ég hafði þá
unnið í fimm, sex ár á útvarpinu og fannst kom-
inn tími til að breyta til og gera eitthvað nýtt.
Vinnan var stressandi og mig langaði í eitthvað
rólegra þannig að mér datt í hug að ég gæti ver-
ið leiðsögumaður í reiðtúrum. Ég elska að fara
á hestbak og mér finnst gaman að vinna með
túristum, þannig að mér fannst það gott plan og
ég sótti um hér. Upphaflega ætlaði ég að vera í
sex mánuði en er hér enn.“
Hér er heimurinn á
hvolfi í skemmtilegri
landslagsmynd Elisu.
„Ég féll alveg fyrir prjónaskap og ég
prjónaði 45 peysur á einu ári,“ segir El-
isa Hanssen sem klæðist einmitt einni af
sínum peysum á myndinni.
Elisa veit fátt skemmtilegra en að mynda hesta. Hún vinnur einnig við að fara með fólk í reiðtúra. Hestar lenda líka oft á peysum Elisu.
Eins og Íslendingur
í mörgum vinnum
Hin hollenska Elisa Hanssen féll fyrir Íslandi og er sest hér að. Elisa fer með ferðamenn á
hestbak, syngur í kirkjukór og vinnur bæði á gistiheimili og á leikskóla. Hún hafði hvorki
stundað ljósmyndun né prjónaskap áður en hún flutti til Íslands, en veit nú fátt skemmtilegra.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Fjaðrir páfugls eru hér notaðar í mynstur.Þessi fallegi lundi hafði heldur betur veitt í matinn þegar Elisa náði mynd af honum.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022
LÍFSSTÍLL