Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.08.2022, Síða 24
Þ egar barn stundar nám í skóla reynir mikið á hug þess og heila og segja má að kennarar séu að vinna með og þjálfa heila nemenda í skólanum. Því er mikilvægt að veita því at- hygli hvernig heilinn þroskast og þróast hjá börnum til þess að þau byggi upp þá færni sem þeim er ætlað að ná. Í þróunarverkefninu Kveikjum neistann sem starfrækt er við Grunnskóla Vestmannaeyja er stuðst við kenningar nokkurra fremstu vísindamanna heims og hafa nokkrum þeirra verið gerð skil í pistlum hér í Morgun- blaðinu. Að brjóta lestrarkóðann Í þessum pistli viljum við vekja athygli á einum þeirra vísinda- manna sem Kveikjum neistann styðst við en það er hinn franski Stanislas Dehaene sem er prófess- or við Collége de France og einn fremsti fræðimaður í heiminum á sviði heilastarfsemi og færniþró- unar. Til marks um hve virtur vísindamaður Dehaene er þá hefur hann birt á milli 600 og 700 al- þjóðlegar vísindagreinar og er með yfir 150.000 tilvitnanir sem þýðir hve oft hefur verið vísað í greinar hans í öðrum vísinda- greinum. Norski nóbelsverðlauna- hafinn á sviði lífeðlis- og lækn- isfræði, Edvard Moser, sagði árið 2014 að Stanislas Dehaene væri sá fremsti í heiminum á sviði heila- starfsemi og færni (e. brain and skill). Dehaene er helsti ráðgjafi Frakka á sviði lestrarmála og hafa rannsóknir hans og skrif meðal annars bent á að í lestrarkennslu verður að byrja með bókstafa- hljóða-kennslu eða hljóðaaðferðina (e. phonics) eins og við köllum hana. Hljóðaaðferðin, frá eind til heildar, er aðferð þar sem unnið er út frá því að heilinn læri fyrst bókstafina og hljóð þeirra (eind- irnar) og í kjölfarið setji heilinn saman hljóðin í orð. Fyrst tvö og tvö hljóð saman, svo þrjú og þrjú, þar næst fjögur og fjögur o.s.frv. Til útskýringar þá þarf heilinn fyrst að læra stafina „í“ og „s“ og hljóð þeirra til að geta lesið orðið „ís“. Þjálfun í lestri gerir það svo að verkum að barn nær að lesa sí- fellt lengri orð. Barn brýtur lestrarkóðann, eins og við köllum það, þegar það hefur náð að tengja saman nægan fjölda bók- stafa við hljóð og getur það verið misjafnt eftir tungumálum hve marga bókstafi og hljóð þarf að tengja saman til að hafa brotið lestrarkóðann. Því má segja að þegar lestrarkóðinn hefur verið brotinn, og aðeins þá, hafi grunn- urinn verið lagður fyrir lestr- arnám barns. Þannig er bókstafa- hljóða-kunnátta alger lykill að því að komast af stað í lestrarnámi og þá er mikilvægt að við taki mark- viss þjálfun og aftur þjálfun sem gengur út á lestur bóka, lestur texta, skapandi skrif, örvandi mál- skilningsumhverfi og framsögn. Norskt stöðumatspróf Fyrir nokkrum árum vildi annar undirritaðra (Hermundur Sig- mundsson) skoða stöðu í lestri hjá börnum sem voru að hefja skóla- göngu í Noregi. Athugunin fólst í að skoða hvernig bókstafa-hljóða- kunnátta væri hjá börnum, hvort þau gætu lesið einstök orð, lesið setningar eða samfelldan texta. Hermundur fór í samstarf með akademískum fræðimönnum við kennaradeild háskólans í Þránd- heimi og komst að því að til væri norskt stöðumatspróf, Bokstaf- testen, sem þróað hafði verið árið 1992 af Gretu Ofteland en hún var kennari í 40 ár í norskum grunn- skólum. Hermundur hafði sam- band við Gretu og hóf samstarf við hana og fékk meðal annars að nota stöðumatsprófið hennar í tengslum við doktorsverkefni eins nemanda síns. Samstarfið skilaði þremur vís- indagreinum sem birtar voru í virt- um tímaritum. Greta býr yfir gríðarlegri reynslu sem lestr- arkennari ungra barna. Árið 2002-2003 fylgdi hún eftir 530 nemendum á þeirra fyrsta skólaári og fylgdist grannt með þróun lestrarnáms þeirra. Eftir alla þessa reynslu og upp- lifun með þúsundum norskra grunnskólabarna er það niður- staða Gretu að til að brjóta lestr- arkóðann þurfi barn að kunna 18- 19 bókstafi og hljóð (af 29 bók- stöfum í norska stafrófinu). Nemendur fá þjálfun Með verkefninu Kveikjum neist- ann er ætlunin að einblína á áður- nefndar aðferðir og gera foreldra og kennara markvisst meðvitaða um stöðu barnsins í lestrarnám- inu. Fyrsti nemendahópur verk- efnisins hefur lokið við fyrsta bekk og eftir skólaárið var staðan góð hjá nemendum. Allir nem- endur gátu lesið orð, sem sagt höfðu brotið lestrarkóðann, 96% gátu lesið setningar og 88% lesið samfelldan texta. Lykillinn að þessum árangri er markviss vinna með aðferðir LESTU-nálgunar- innar sem byggist á hljóðaaðferð, frá eind til heildar, í anda Stanislas De- haenes. Annar lykilþáttur er stöðumat og eftirfylgni þar sem nemendur fá þjálfun í skól- anum miðað við færni sína á hverjum tíma. Nemendur og for- eldrar barna í Kveikjum neistann eru mjög vel upplýst um hver staðan er hverju sinni hvað varðar að brjóta lestrarkóðann, ná að lesa orð eða ná að lesa texta. Í framhaldinu verður unnið að þró- un þessarar aðferðar með kenn- urum, nemendum og foreldrum og við bætist enn meiri þjálfun í lestri bóka, skapandi skrifum og framsögn. Hermundur Sigmundsson, prófessor við Norska tækni- og vísindaháskólann og Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar, Háskóla Íslands Einar Gunnarsson, aðstoðarskólastjóri við grunnskólann í Vestmannaeyjum Stanislas Dehaene – frá eind til heildar „Þjálfun í lestri gerir það svo að verkum að barn nær að lesa sífellt lengri orð,“ segir Hermundur. Colorbox ’ Því má segja að þegar lestrarkóðinn hefur verið brotinn, og aðeins þá, hafi grunn- urinn verið lagður fyr- ir lestrarnám barns. Úr ólíkum áttum Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is Einar Gunnarsson 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.8. 2022 MENNTUN ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.