Fréttablaðið - 18.01.2023, Blaðsíða 10
Það er orkusölum í
sjálfsvald sett hvernig
verðlagningu verður
háttað.
Jóhann Snorri
Sigurbergsson,
forstöðumaður
viðskiptaþróun-
ar hjá HS Orku
Þetta evrópska kerfi er
eina opinbera vott-
unarkerfið sem við
höfum.
Ragnhildur
Sverrisdóttir,
upplýsingafull-
trúi Landsvirkj-
unar
Verðið fyrir vottunina
mun fljótlega fara að
endurspegla markaðs-
verð upprunaábyrgða,
og við vitum ekki
hvernig það þróast.
Berglind Rán
Ólafsdóttir,
framkvæmda-
stýra Orku
náttúrunnar
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Samkvæmt breytingu á sölu-
kerfi upprunaábyrgða þurfa
íslenskir raforkusalar nú að
greiða orkuframleiðendum
fyrir græn upprunavottorð.
Upplýsingafulltrúi Lands-
virkjunar segir einungis um
bókhaldskerfi að ræða sem
hugsað er fyrir samtengdan
evrópskan markað.
Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, telur
ólíklegt að breytingar á af hend-
ingu upprunavottorða komi til
með að hækka raforkuverð heimila
á Íslandi. Hún segir hins vegar að
það sé alltaf ástæða til að vera á
varðbergi og fylgjast vel með öllum
mögulegum verðhækkunum.
Landsvirkjun hætti um áramótin
að afhenda græn vottorð til smásala
raforku á Íslandi án endurgjalds og
verða vottorðin þess í stað seld á
evrópskum markaði. Það þýðir að
íslenskir raforkusalar, eins og Orka
náttúrunnar og HS Orka, munu ekki
geta markaðssett þá orku sem keypt
er af Landsvirkjun sem græna nema
fyrirtækin greiði fyrir það.
Sölukerfi upprunaábyrgða var
upphaflega hannað fyrir evrópsk-
an orkumarkað, sem er allur sam-
tengdur. Tilgangurinn er að hvetja
til grænnar orkuvinnslu með því
að verðlauna græna framleiðendur
með ákveðnu bókhaldskerfi sem
gerir þeim kleift að fá meiri peninga
fyrir vöru sína, hvort sem varan sjálf
er afhent eða ekki.
Fy rirtæk i á Spáni hefur til
dæmis tækifæri til að kaupa upp-
runaábyrgð frá norskri vindmyllu
þó svo að spænska fyrirtækið noti
kol. Norski orkuframleiðandinn
fær þar með meiri peninga fyrir
framleiðslu sína á endurvinnan-
legri orku og spænska fyrirtækið
getur sýnt fram á að það styðji
græna orku.
Mismunandi útreikningar
Ragnhildur segir raforkuverðið
sjálft einungis vera fjórðung af
þeirri upphæð sem kemur fram á
rafmagnsreikningnum. Meirihluti
reikningsins sé flutningur, dreifing
og skattar og þýðir það að stefnu-
Ekki útlit fyrir verðhækkanir á raforku
Íslenskir
raforkusalar
þurfa héðan í
frá að greiða
fyrir vottun til
markaðssetja
orku sína sem
græna.
fréttablaðið/
stefán
breytingin sjálf ætti ekki að koma
til með að hafa stórfelld áhrif.
„Við höfum reiknað það út að
meðalheimili gætu kannski upp-
lifað 140 króna hækkun á mánuði
og það er einungis hjá þeim sem
kjósa að kaupa upprunaábyrgð.
Það er bara spurning hvort sölu-
fyrirtækin bjóði upp á vottun með
rafmagninu eða ekki,“ segir Ragn-
hildur og leggur áherslu á að kaup
upprunaábyrgða séu með öllu val-
kvæð. Það heimili sem ekki vilji
upprunaábyrgðir sleppi því einfald-
lega að kaupa þær.
„Í umræðunni undanfarið hefur
fólk kastað fram tölum um 15 og
jafnvel 20 prósenta hækkun á raf-
orkureikning. Það er töluverð sam-
keppni á þessum markaði á sölu
rafmagns til heimila. Samt er það
svo að verðmunurinn á milli fyrir-
tækjanna sem bjóða lægsta og hæsta
verð er átta sinnum meiri á mánuði
en sem nemur hugsanlegum kostn-
aði við upprunaábyrgðir.“
Berglind Rán Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastýra Orku náttúrunnar,
segir Landsvirkjun selja upp-
runaábyrgðir til raforkusala fyrir
árið 2023 á afslætti og er auka-
gjaldið fyrir upprunaábyrgðir allt
að fjögur til fimm prósent af raf-
magnsverðinu. Hlutfallið er lægra
ef hækkunin er reiknuð með því
að taka rafmagnsflutning og dreif-
ingu með rafmagnsverðinu þar sem
rafmagnskostnaður er einungis
þriðjungur af heildarkostnaði raf-
magnskaupa. Ef enginn afsláttur
hefði verið veittur fyrir árið 2023
miðað við markaðsverð þá hefði
aukagjaldið verið allt að 15 prósent
ofan á rafmagnið eingöngu.
„Tíminn mun leiða í ljós hvernig
þetta þróast og aukagjaldið getur
bæði orðið hærra en 15 prósent og
lægra en fimm prósent til lengri
tíma,“ segir Berglind.
Þróun málsins óljós
Berglind segir að fyrirtækið hafi
þegar sett sig í samband við við-
skiptavini sína og af samtölunum
að dæma virðist vera lítill áhugi á
málinu. Þau sem hafa hins vegar
áhuga á málefninu eru með skiptar
skoðanir.
„Líklegast þykir mér að þróunin
verði í þá átt að rafmagn á almenn-
um markaði verði óvottað, að öll
sem kaupa rafmagn geti valið vott-
un og greiði sérstaklega fyrir hana.
Nú þegar markaðsverð uppruna-
ábyrgða hefur hækkað mikið und-
anfarið, þá tel ég þetta ekki óeðli-
lega þróun. Verðið fyrir vottunina
mun fljótlega fara að endurspegla
markaðsverð upprunaábyrgða, og
við vitum ekki hvernig það þróast,“
segir Berglind.
Jóhann Snorri Sigurbergsson,
forstöðumaður viðskiptaþróunar
hjá HS Orku, segir að árið í ár verði
aðlögunarár. Eftir það mun orku-
sölum eingöngu standa til boða að
kaupa upprunavottanir frá Lands-
virkjun á markaðsverði, til notkun-
ar fyrir viðskiptavini sína frá 2024.
„Það er orkusölum í sjálfsvald sett
hvernig verðlagningu verður háttað
en þar sem þessar vottanir fylgdu
áður frítt með verða einhverjar
verðhækkanir líklegar fyrir vottaða
raforku,“ segir Jóhann.
Borga meira fyrir betri vöru
Ragnhildur Sverrisdóttir segir
þróunina ýta undir endurnýjanlega
orkuvinnslu og vera í samræmi við
vilja fólks til að kaupa gæðavöru.
„Fólk vill oft borga meira fyrir betri
vöru og styðja við umhverfisvænni
framleiðslu. Það er til dæmis fólk
sem kaupir ekkert annað en lífrænan
mat úti í verslun sem er oft dýrari
vara, en það veit þá hvað það er að
borga aukalega fyrir.“
Þó svo fyrirtæki sem starfa á
Íslandi noti vissulega græna orku,
þá segir hún að sum þeirra sjái sér
hag í að kaupa upprunaábyrgðir.
Sem dæmi megi nefna að bæði fyrir-
tæki í landeldi á laxi og gagnaver
kaupi upprunaábyrgðir og geti þar
með sýnt viðskiptavinum sínum á
erlendum mörkuðum svart á hvítu
hvaðan orka þeirra kemur.
„Það eru 28 ríki innan EES sem
telja að það sé ástæða til að hafa
þetta svona. Kerfinu er fyrst og
fremst ætlað að hvetja til aukinnar
vinnslu á orku úr endurnýjanlegum
auðlindum. Við vitum öll að hér á
landi er græn orka, en þetta evrópska
kerfi er eina opinbera vottunarkerfið
sem við höfum,“ segir Ragnhildur. n
Helgi Steinar
Gunnlaugsson
helgisteinar
@frettabladid.is
10 markaðurinn FRÉTTABLAÐIÐ 18. jAnúAR 2023
miðVikuDaGur