Fréttablaðið - 18.01.2023, Blaðsíða 17
Það sem stóð
kannski upp úr
þessa bikarhelgi, og
gerði hana að meiri og
stærri upplifun heldur
en í fyrra, var klárlega að
fá að spila í Höllinni
aftur.
Bætiefnið Comfort-U frá
Good Routine er öflug vörn
fyrir þvagfærakerfið og
byggir á fjórum virkum
innihaldsefnum sem hafa
þekkta eiginleika til þess
að koma í veg fyrir blöðru-
bólgu/þvagfærasýkingu.
„Comfort-U er sérhannað fyrir fólk
sem vill koma í veg fyrir blöðru-
bólgu/þvagfærasýkingu, sem er
ein algengasta bakteríusýkingin
og algengari hjá konum en körlum.
En ein af hverjum fimm konum
upplifir að minnsta kosti eina þvag-
færasýkingu á ævinni,“ segir Freydís
Hjálmarsdóttir, næringarfræðingur
að mennt, með BSc og meistara-
gráðu í næringarfræði.
„Einstaklingur sem hefur fengið
þvagfærasýkingu er í aukinni
hættu á að fá sýkingu aftur og talið
er að um fjórðungur fái endur-
tekna sýkingu innan sex mánaða
og þriðjungur innan árs. Þar af
leita hundruð sýklalyfjameðferðar
við þvagfærasýkingum á Íslandi
á hverju ári. Yfir 80% þvagfæra-
sýkinga eru taldar vera af völdum
þarmabakteríunnar e.coli, en aðrar
bakteríur, sveppir og sníkjudýr geta
líka valdið þvagfærasýkingum.“
Fyrirbyggjandi er lykilatriði
Þvagfærasýkingar geta verið afar
óþægilegar en eru þó oftast skað-
lausar að sögn Freydísar. „Einstaka
sinnum nær sýkingin til efri þvag-
færa eins og nýrna, en það er afar
óalgengt. Til að mynda verða 30%
þvagfærasýkinga einkennalausar á
innan við viku án meðferðar. Hins
vegar getur verið erfitt að eiga við
síendurteknar sýkingar. Þótt þær
séu meðhöndlaðar á áhrifaríkan
hátt með sýklalyfjum, getur óhófleg
notkun sýklalyfja leitt til skaðlegra,
heilsufarslegra afleiðinga.
Til að forðast of mikla útsetningu
fyrir sýklalyfjum leita margir til
fæðubótarefna og náttúrulyfja.
Rannsóknir þar að lútandi eru af
skornum skammti og sumar mis-
vísandi, en nokkur fæðubótarefni
gefa góða raun þegar kemur að
því að koma í veg fyrir þvagfæra-
sýkingu.“
Fjögur virk efni
Comfort-U inniheldur fjögur efni
sem rannsóknir hafa sýnt fram
á að geti hjálpað til við að fyrir-
byggja þvagfærasýkingar. Það eru
einsykran D-mannóse, þarma-
gerillinn Lactobacillus rueteri og
svo virku efnin í trönuberjum og
sortulyngslaufum (e. bearberry
leaf). „Trönuberin eru frægust, en
eitt virku efnanna í þeim er ein-
mitt „D-mannóse“. Sortulyngslauf
þekkja flestir undir nafninu uva
ursi og „Lactobacillus rueteri“ er
einn af góðgerlunum sem finna má
til dæmis í AB-mjólk.
Af þessum fjórum efnum hefur
D-mannóse komið hvað best út úr
þeim rannsóknum sem hafa verið
gerðar með tilliti til forvarna vegna
þvagfærasýkinga. Rannsóknir á
D-mannóse sýna fram á marktæka
minnkun á endurteknum þvag-
færasýkingum hjá þeim sem fá þær
reglulega. Til þess að sýking nái
fótfestu í þvagfærum þarf e.coli eða
önnur örvera að ná að festast við
blöðruvegginn. Virkni D-mannóse
er sú að bindast til dæmis e.coli
bakteríum, skola þeim út með þvagi
og koma þannig í veg fyrir sýkingu.
Trönuber innihalda meðal
annars D-mannóse, hippúrsýru
og anthósýanín, sem eru talin
torvelda e.coli að festast við þvag-
blöðruvegginn. Þrátt fyrir að ekki
séu allir á eitt sáttir, sýnir saman-
tekt margra rannsókna fram á
verndandi áhrif D-mannósa gegn
þvagfærasýkingum hjá konum sem
fá þær reglulega. Ekki skemmir fyrir
að trönuber hafa líka marga aðra
heilsubætandi kosti.
Lauf sortulyngs, (önnur nöfn:
uva ursi, bjarnaber, fjalla-trönuber)
hafa í árþúsund verið notuð til að
meðhöndla þvagfærasýkingar. Nú
benda rannsóknir til þess að það sé
svo sannarlega eitthvað til í því og
kallað hefur verið eftir fleiri rann-
sóknum. Sortulyngið inniheldur
örverueyðandi efnasambönd
sem vinna gegn óvingjarnlegum
bakteríum og hjálpa við upptöku
á efnum úr trönuberjum. Efna-
sambönd í laufunum, svo sem
Arbutinin, eru talin vinna gegn
útbreiðslu e.coli meðal annars og
trufla viðloðun bakteríunnar við
blöðruvegginn,“ segir Freydís.
Hjálplegar örverur
Jafnvægi í þvagkerfisflórunni er
svo viðhaldið með hjálp gagn-
legu bakteríunnar Lactobacillus
rueteri. „Hjálplegu örverurnar í
líkamanum kallast góðgerlar og er
fjöldinn allur af þeim í meltingar-
kerfinu. Við getum bætt um betur
með trefjaríku fæði, ab-mjólk og
skyldum vörum, súrsuðum mat og
bætiefnum.
Sumir góðgerlar viðhalda
jafnvægi í þvagi, leggöngum og
meltingarvegi með því að fram-
leiða efnasambönd sem leyfa ekki
óvinveittum bakteríum að vaxa. Sá
stofn sem er talinn hvað mikilvæg-
astur fyrir þvagfærakerfið er Lacto-
bacillus rueteri. Þessi bakteríustofn
getur endurheimt náttúrulegt
örverujafnvægi í þvagfærum og
getur myndað efnasambönd sem
leyfa ekki óvinveittum bakteríum
að vaxa og dafna.“
Fjölþætt fyrirbyggjandi virkni
Í Comfort-U koma saman þrjú virk
innihaldsefni sem eru studd af
rannsóknum, ásamt Lactobacillus
rueteri-stofni. Saman eru þessi efni
talin geta stutt heilbrigði þvag-
færa og veitt fjölþætta vörn gegn
þvagfærasýkingum. „Til eru margir
mismunandi stofnar góðgerla og
fjöldi þeirra í hverjum skammti
er merktur með einingunni CFU
sem stendur fyrir „colony forming
unit“, eða nýlendumyndandi
stofn. Í Comfort-U er réttur stofn í
nægilegu magni til að hafa tilskilin
áhrif án þess að valda skaða, enda
er þetta verðlaunuð formúla. Com-
fort-U er náttúrulegt bætiefni sem
kemur í pillu- og belgjaformi.
Forvörn er alltaf best og Com-
fort-U hefur það fram yfir sýklalyf
að vera laust við aukaverkanir
eins og ógleði og magaeinkenni.
Comfort-U skaðar ekki vinveittu
þarmaflóruna sem er einn helsti
ókostur sýklalyfja. Hins vegar er
sýklalyfja alltaf þörf ef sýking er
staðfest í efri hluta þvagfæra eins og
nýrum og ávallt skal fylgja læknis-
ráði. Þegar stór hluti kvenna er með
endurteknar þvagfærasýkingar,
fögnum við því þegar vara á borð
við Comfort-U kemur á markað.“ n
Good Routine fæst í Lyfjum og
heilsu, Apótekaranum, Hagkaup og
Krónunni.
Fjölþætt og fyrirbyggjandi vörn gegn þvagfærasýkingum
Freydís fagnar því að vara eins og
Comfort-U sé komin á markað fyrir
íslenskar konur. Myndir/aðsendar
Comfort-U inni-
heldur fjögur
efni sem rann-
sóknir hafa sýnt
fram á að geti
hjálpað til við
að fyrirbyggja
hinar hvimleiðu
þvagfærasýk-
ingar.
Haukakonan Sólrún Inga
Gísladóttir var valin besti
leikmaður bikarúrslitaleiks-
ins í körfubolta um síðustu
helgi þegar lið hennar varð
bikarmeistari 3. árið í röð.
starri@frettabladid.is
Kvennalið Hauka varð bikarmeist-
ari í körfubolta þriðja árið í röð um
síðustu helgi þegar það lagði sterkt
lið Keflavíkur 94–66. Sólrún Inga
Gísladóttir var valin besti leikmað-
ur leiksins en hún skoraði 20 stig,
gaf sjö stoðsendingar og tók sjö
fráköst. „Það var frekar súrrelískt
augnablik að vera valin besti leik-
maður leiksins,“ segir Sólrún. „Ég
var eiginlega ekki að búast við því
þar sem margar aðrar í liðinu áttu
frábæran leik. En þetta er klárlega
eitthvað sem mig dreymdi um
þegar ég var yngri, að vera valin
leikmaður leiksins í stórum leik í
meistaraflokki.“
Hún segir bikarhelgina alltaf
vera jafn stórkostlega upplifun.
„Það er einhvern veginn allt önnur
stemning og allir leikmenn svo
hungraðir. Það sem stóð kannski
upp úr þessa bikarhelgi, og gerði
hana að meiri og stærri upplifun
heldur en í fyrra, var klárlega að fá
að spila í Höllinni aftur. Við vorum
allar tilbúnar í slaginn frá fyrstu
mínútu og héldum baráttunni út
allan leikinn.“
Erfitt að stöðva liðið
Fyrsti stóri bikarinn er kominn í
hús og stefnan sett á Íslandsmeist-
aratitilinn. „Stefnan er alltaf sett á
þann stóra, það er eitt af markmið-
Stefnan er alltaf sett á þann stóra
„Það væri líka
gaman að fá
þann heiður
að spila fyrir
A-landsliðið
einn daginn,“
segir Sólrún Inga
Gísladóttir úr
Haukum sem
varð bikar-
meistari um
síðustu helgi.
Mynd/aðsend
Spurt og svarað:
Hvernig kemur þú þér í gírinn fyrir leik?
Það er bara þetta klassíska eins og að hlusta
á tónlist. Annars er ekki almennilegur leikdagur
nema ég borði með Evu Margréti og Lovísu Björt
liðsfélögum mínum þar sem farið er yfir komandi
leik.
Hver er erfiðasti mótherjinn á æfingum og í
leikjum?
Erfiðasti mótherjinn á æfingum er Eva Mar-
grét. Ég er búin að dekka hana á æfingum vegna
meiðsla hjá framherjunum okkar og það eru alltaf
hörkuæfingar. Þegar kemur að öðrum liðum er
það lið Keflavíkur sem hefur verið erfiður and-
stæðingur í vetur.
Hver er uppáhaldsæfingin og hver er í minnstu
uppáhaldi?
Uppáhaldið mitt á æfingum er að spila sem
mest. Svo förum við alltaf í blak eftir sigurleiki og
það stendur líka upp úr. Minnst skemmtilegasta
æfingin er þegar Finnur Atli styrktarþjálfari mætir
í salinn. Þá vitum við að við eigum von á góðri
hlaupaæfingu.
Hvað finnst þér gott að fá þér í kvöldmat?
Ég borða oftast kvöldmat eftir æfingar og þá
finnst mér best að fá mér eitthvað næringarríkt.
Ef máltíðin inniheldur kjöt og grænmeti þá er ég
sátt.
Hvað finnst þér gott að fá þér í millimál?
Í millimál á ég alltaf skyr og prótein pönnu-
kökur. Einnig finnst mér gott að fá mér alls konar
ávexti.
Hvernig hugsar þú um andlegu heilsuna?
Það er að vera umkringd fólki sem þykir vænt
um mig og heilsuna mína. Þetta er fólk sem ég get
rætt við um allt og gert skemmtilega hluti með
sem eru ótengdir körfunni. Ég reyni líka að passa
upp á að vera úthvíld þar sem ég er oft á nætur-
vöktum og hvíli mig oft á öðrum tímum.
Hverjar eru helstu fyrirmyndir þínar?
Helena Sverrisdóttir hefur verið og verður alltaf
fyrirmyndin mín í boltanum. Hún er svo sterk
andlega og lætur ekkert stoppa sig. Í lífinu eru
foreldrar mínir helstu fyrirmyndirnar. Þau eru svo
frábærir og jákvæðir karakterar og alltaf tilbúin að
gera allt fyrir alla og styðja okkur krakkana í hverju
sem er. Þau settu standardinn hátt og markmiðið
er verða eins og þau þegar ég verð „stór“.
unum sem við sem lið setjum fyrir
hvert tímabil. Það sem við þurfum
að gera er að mæta ákveðnar og
með klikkaða orku fyrir hvern
einasta leik og þá verður erfitt að
stöðva okkur.“
Persónulegt markmið Sól-
rúnar fyrir veturinn var að verða
stöðugri leikmaður. „Því hef ég
lagt áherslu á að leggja mig alltaf
fram og hjálpa liðinu á þann hátt
sem vantar hverju sinni. Stundum
er það stigaskor, stundum eru
það fráköst eða varnarleikur.“
Utan þess er stefnan sett á að
halda áfram að styrkja veikleika
sína og verða betri leikmaður.
„Það væri líka gaman að fá þann
heiður að spila fyrir A-landsliðið
einn daginn. Fyrir utan körfuna
er stefnan sett á nám en ég er ekki
alveg ákveðin í hvað mig langar að
læra akkúrat núna en það kemur í
ljós seinna meir.“ n
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 18. janúar 2023