Fréttablaðið - 18.01.2023, Page 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Danielle Rodriguez sneri aftur í
boltann á nýju leiktímabili í sept-
ember 2022 eftir kærkomið tveggja
ára hlé. „Ég spilaði körfubolta í
Háskólanum í Utah í Bandaríkj-
unum á meðan ég stundaði þar
nám í markaðsfræðum. Eftir það
flutti ég til Íslands árið 2016 því
ég vildi reyna fyrir mér í atvinnu-
mennskunni. Fjórum árum síðar,
2020, ákvað ég að það væri kominn
tími til að ég tæki mér hlé, enda þá
búin að spila af kappi í átta ár.
Þetta er auðvitað heilmikið álag
á líkamann enda er háskólaboltinn
eins og 100 prósent vinna með
náminu. Ég var að spila að meðal-
tali um 38 mínútur af 40 í hverjum
leik. Rúmlega tvítugur líkami á
mun auðveldara með að spila 40
mínútna leik og er mun fljótari
að ná sér eftir það heldur en 26
ára gamall líkami. Ég var farin
að finna vel fyrir því daginn eftir
leiki. Stundum var eins og ég hefði
orðið undir bíl og þurfti á þessum
tímapunkti sárlega á andlegri og
líkamlegri hvíld að halda,“ segir
Danielle.
Fann til í öllum líkamanum
Hún tók sér því rúmlega tveggja
ára hlé, f lutti til Bandaríkjanna og
æfði körfubolta á menntaskóla- og
háskólastigi í San Diego. „Fyrst um
sinn saknaði ég þess ekki að vera
ekki að spila, en ég hafði endur-
komuna á völlinn þó alltaf bak
við eyrað. Eftir tvö ár, orðin 28 ára
gömul og í skrifstofustarfi, sá ég
fram á að ég gæti vel hugsað mér að
byrja aftur að spila. Ég ákvað því
í mars að skrá mig á samning hjá
Grindavík og byrjaði að spila með
þeim í september síðastliðnum.“
Í byrjun síðasta árs var Danielle
enn í fullu starfi og hóf að æfa með-
fram því. Þá hafði hún lítið sem
ekkert æft í eitt og hálft ár. „Þetta
var því nokkuð stórt stökk hjá mér.
Í apríl, þegar ég kláraði uppsagnar-
frestinn í vinnunni, gat ég svo
hellt mér út í æfingar þrisvar á dag.
Það var óneitanlega mikið álag á
líkamanum frá mars til júlí og það
var ný reynsla að skipuleggja allar
æfingar sjálf. Ég fann til í öllum
líkamanum eftir æfingar, og þá sér-
staklega í liðum, hásinum, hnjám
og ökklum.
Ég heyrði af kollageni og Joint
Rewind frá Feel Iceland á sam-
félagsmiðlum og vissi til þess að
margt afreksfólk í íþróttum væri
að taka þetta inn. Ég ákvað því að
taka af skarið og prófa, enda var
ég tilbúin í allt sem gæti hjálpað
frammistöðunni svona fyrsta árið
eftir hlé. Ég vissi líka að ég þyrfti að
taka þetta inn í um þrjá mánuði til
að finna árangurinn.“
Líður betur í kroppnum nú
en fyrir fjórum árum
Danielle tekur kollagenduft og
Joint Rewind kollagenhylki frá
Feel Iceland daglega. „Stundum
blanda ég þessu út í smoothie
eða kaffið mitt á morgnana. Mér
finnst þó best að taka þetta inn
strax eftir æfingu og þá hentar mér
að blanda því út í vatn. Ég hafði
fyrst áhyggjur af því að það væri
eitthvert eftirbragð af þessu en ég
hafði kynnst því í öðrum vörum
sem hjálpa til við endurheimt. En
ég kann vel að meta að það er ekk-
ert skrítið eftirbragð af þessu.
Ég viðurkenni alveg að ég hef
gleymt að taka þetta inn endrum
og eins og þegar ég fór til Banda-
ríkjanna fyrir stuttu tók ég það
ekki með mér. Ég missti því úr
skammt í tvær vikur. Fyrst um sinn
hugsaði ég með mér hvort þetta
væri nú að gera eitthvað, en svo
eftir tvær vikur fann ég að ég þyrfti
nú að byrja aftur að taka þetta sem
allra fyrst,“ segir Danielle.
„Í dag get ég sagt með nokk-
urri vissu að mér líður betur í
líkamanum heldur en áður en ég
tók mér hvíld frá boltanum árið
2020, þrátt fyrir að vera nú orðin
nokkrum árum eldri. Sumt kemur
hægt eða aldrei aftur og þegar ég
var yngri gat ég tekið hnébeygjur
með mun meiri þyngd en ég geri í
dag. Ég spila líka að meðaltali einni
mínútu styttra í hverjum leik en
áður.
Mesti munurinn sem ég finn
fyrir er daginn eftir leik. Hér áður
fyrr átti ég erfitt með að standa
upp úr rúminu og gat illa gengið
Danielle segist oft hissa á því hve miklu sprækari hún sé daginn eftir leik-
daga, miðað við fyrir nokkrum árum. Eitt af því sem hjálpar til við endur-
heimtina er kollagenið frá Feel Iceland. FRéttABLAðið/VALLi
Danielle blandar yfirleitt kollagenduftinu út í vatnsbrúsann eftir æfingar.
Það var óneitan-
lega mikið álag á
líkamanum frá mars til
júlí og það var ný reynsla
að skipuleggja allar
æfingar sjálf. Ég fann til í
öllum líkamanum eftir
æfingar, og þá sérstak-
lega í liðum, hásinum,
hnjám og ökklum.
Danielle Rodriguez
vegna verkja og stirðleika. Það
tók mig nær allan daginn að ná
mér. Í dag líður mér mun betur
í kroppnum og get jafnvel tekið
létta skot æfingu daginn eftir leik.
Það var óhugsandi áður.
Mánudags- og þriðjudags-
morgna byrja ég á lyftingaæfingu
og tek skotæfingu í kjölfarið. Áður
en ég fer svo á æfingu seinni-
partinn skipulegg ég daginn, fæ
mér að borða og fæ mér kríu ef ég
hef tíma. Þjálfarastarfið bætir um
þremur tímum við vinnudaginn
og það er síður en svo kyrrsetu-
starf. Fimmtudagar og föstudagar
eru svipaðir og svo eru leikdagar
á miðvikudögum. Á laugardögum
vakna ég fyrr en vanalega og tek
vel á því út daginn, en tek svo hvíld
á sunnudögum. Ég finn að ég á
orðið mun auðveldara með að ná
mér á milli æfinga, og er oft hissa á
mér hversu spræk ég er á fimmtu-
dögum eftir leikdaga.“
Nýtur sín betur en áður
á vellinum
„Það helst auðvitað margt í hendur
við að bæta andlega og líkamlega
líðan: kollagenið, Joint Rewind
hylkin, en líka að borða vel og fá
nægan svefn. Ég finn líka að hléið
gerði mér gott, bæði að æfa ekki
jafn stíft og áður og að spila ekki í
leikjum. Ég hef einnig öðlast nýja
sýn og get með sanni sagt að ég
nýt þess mun betur í dag að spila
körfubolta heldur en fyrir 3–4
árum. Það er oftast mjög gaman
hjá mér á vellinum. Ég sé
fram á að geta spilað í
takmarkaðan fjölda ára
í viðbót og vil því njóta
þess tíma sem ég á eftir
á vellinum.“ n
Feel Iceland vörurnar
fást meðal annars á
eftirtöldum stöðum:
Lyfju, Heilsuhúsinu,
Lyfjum og heilsu, Hag-
kaup, Fjarðarkaupum,
Apótekaranum, Frí-
höfninni og Nettó. Sjá
nánar á feeliceland.
com
2 kynningarblað A L LT 18. janúar 2023 MIÐVIKUDAGUR