Fréttablaðið - 18.01.2023, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Láru G.
Sigurðardóttur
bakþankar |
„Ég þrái frelsið,“ er algengt svar frá
fólki sem hneppt er í fjötra fíkni-
efna. Enn sem komið er hef ég ekki
hitt þá manneskju sem ætlaði sér
markvisst að ánetjast fíkniefni. Yfir-
leitt byrjar þetta með fikti og áður
en maður veit af hefur fíkniefnið
náð heljartökum á heilabúinu. Hjá
langflestum gerist þetta fyrir 25 ára
aldur – áður en framheilinn hefur
tekið út fullan þroska til að hafa vit
fyrir okkur.
Ásamt áfengi er nikótín algeng-
asta fíkniefnið sem fólk ánetjast,
enda hvort tveggja löglegt. Síðustu
ár hafa nikótínpúðar sveimað
um skólahverfin líkt og lúsmýið í
sumarbústaðahverfunum. „Íslenski
draumurinn“ er orðinn að veru-
leika. Kaupsýslumenn mala gull
líkt og Tóti í bíómyndinni. Sala á
búlgörsku sígarettunum gaf svo vel
að Tóti keypti sér íbúð, Range Rover
og jakkaföt. En peningar eiga það til
að byrgja sýn á það sem rétt er, enda
þekkt að eina fólkið sem neitar
skaðsemi nikótíns eru framleið-
endur og sölumenn þess. Ákveðin
tímamót urðu þó í fyrra þegar raf-
sígarettuframleiðandinn Juul játaði
sök. Juul sættist á að borga sem sam-
svarar 62 milljörðum króna fyrir að
beina markaðssetningu nikótíns
til barna undir lögaldri og gera lítið
úr skaðsemi þess. Þetta voru smá-
peningar fyrir Juul.
Ljóst er að fíkniefnið nikótín sem
nú herjar á börnin er ekkert að fara
á næstunni. Líkt og í bíómyndinni
„Íslenski draumurinn“ bjóða sölu-
menn nikótíns sífellt fram nýjar og
spennandi vörur. Því er mikilvægt
að vera upplýstur og klukkan 20 í
kvöld verður málþing í Hörpu um
áhrif nikótíns á heilastarfsemi og
heilsu barna. Það er okkar fullorðna
fólksins að vísa unga fólkinu veginn
að frelsi frá fíkninni. Verið hjartan-
lega velkomin! n
Íslenski
draumurinn
1. sætið í ánægju-
voginni
6 ár
í röðTAKK