Víkurfréttir - 01.06.2022, Qupperneq 10
Sölufólk óskast
í Hrím Leifsstöð
Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu af
sölustörfum og fína tungumálakunnáttu.
Umsóknir sendast á tinna@hrim.is
Jóhann Alexander gengur marga kílómetra á viku með mynda-
vélina í fanginu og tekur myndir á för sinni um bæinn. „Þetta eru
um tveir til sex kílómetrar á dag en ég hef alveg farið allt upp
í sextán kílómetra,“ segir Jóhann. Jafnaldrar hans nota alla
jafna farsíma sína til að taka myndir en Jóhanni segist líða vel
með myndavélina í hönd. „Alltaf þegar ég er með myndavélina
í hendinni líður mér vel. Svo fær maður ekki eins góð gæði í
gegnum símann og í myndavélinni. Með myndavélinni nær maður
ákveðinni dýpt sem er ekki hægt að ná með símanum.“
En hvar kviknaði áhugi hans á ljós-
myndun?
„Áhuginn kemur frá móður minni.
Ég fékk hugmyndina af svona ljós-
myndun í gegnum YouTube. Áður
en ég fékk myndavélina var ég enda-
laust að skoða myndbönd og horfði
mest á myndbönd um „street pho-
tography“. Ég ákvað að prófa það til
að byrja með þegar ég var að læra
hvernig myndavélin virkaði,“ segir
Jóhann.
Jóhann deilir myndum sínum á
Instagram síðu sinni undir nafninu
Johnsfots. Aðspurður hvað hann
vilji gera við myndirnar segir hann:
„Ég veit það ekki, ég hef reynt að
selja þær á netinu en það hefur ekki
gengið. Kennarinn minn kom með
þá hugmynd að halda ljósmynda-
sýningu, ég var bara ekki alveg viss
með það en það mun kannski gerast
einhvern tímann.“
Jóhann er í björgunarsveitinni
Ægi í Garðinum en hann segir
ljósmyndun vera fyrst og fremst
áhugamál. Jóhann segir að draumur
hans sé að taka myndir á björgunar-
vettvangi. „Það væri alveg geggjað
að taka myndir á vettvangi fyrir allt
sem fellur undir 112 en það myndi þá
vera bara sem áhugamál. Til dæmis
ef eitthvað væri í gangi hjá lögreglu,
björgunarsveitinni, landhelgisgæsl-
unni eða slökkviliðinu þá væri ég til í
að taka myndir af þeim í starfi,“ segir
Jóhann.
Frístundin:
Myndar hvers-
dagslega hluti
Jóhann Alexander Þorsteinsson er sautján ára og
kemur úr Garðinum í Suðurnesjabæ. Jóhann fer
reglulega í göngutúra um Reykjanesbæ og tekur
ljósmyndir af hversdagslegum athöfnum fólks.
Hann segir það skemmtilegasta við að taka
ljósmyndir vera að fylgjast með hvernig fólk
hegðar sér í daglegu amstri.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
10 // víkurFrÉttir á SuðurnESjuM