Víkurfréttir - 16.11.2022, Síða 4
Erla Ósk Pétursdóttir er
FKA kona mánaðarins
Við hvað starfar þú og hvar? Ég
er framkvæmdastjóri hjá Marine
Collagen í Grindavík sem vinnur
gelatín og kollagen úr fiskroði.
Hver eru helstu verkefni? Í okkar
unga fyrirtæki eru verkefnin marg
vísleg og daglegur rekstur og fram
tíðarplön keppast um athyglina frá
degi til dags. Hjá fyrirtækinu starfar
samheldinn og lausnamiðaður
hópur sem gerir vinnuna alla mjög
skemmtilega.
Er eitthvað sem gerir verkefnið
eða fyrirtækið einstakt, forvitni-
legt? Í mínum huga er Marine
Collagen frábært dæmi um hvað
sé hægt að gera þegar fyrirtæki
ákveða að vinna saman. Með sam
vinnu og útsjónarsemi íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja hefur
Marine Collagen aukið innlenda
verðmætasköpun, enda erum við
í harði samkeppni við vinnslur
erlendis – en við erum rétt að byrja
og hlökkum til að halda áfram að
þróa íslenskar vörur úr okkar frá
bæra hráefni.
Eitthvað áhugavert sem þú ert að
gera? Ég verð að viðurkenna að ég
er ekki að gera margt þessa dagana
annað en að vinna og sinna fjöl
skyldunni og skólanum. Við hjónin
eigum þrjá stráka og einn hund og
því nóg að gera á okkar heimili, sem
maðurinn minn sinnir að mestu
leyti á meðan ég klára skólann.
Hvað hefur þú verið að gera, hvað
ertu að gera núna, framtíðarplön?
Mér líður best þegar ég hef nóg að
gera. Mér finnst gaman að hreyfa
mig, reyni að vera dugleg í ræktinni
eða fara út að hlaupa eða hjóla. Ég
er líka Kundalini jógakennari og
hugleiðsla er mitt haldreipi þegar
það verður of mikið að gera. Svo
hef ég gaman af söng og er tiltölu
lega nýbyrjuð í golfi. Framtíðar
plönin eru þannig séð óráðin, ætli
ég haldi ekki bara áfram að gera
það sem mér finnst skemmtilegt.
Reynsla: Eftir menntaskólann fór
ég í háskólanám til Bandaríkjanna
og mitt fyrsta starf eftir nám var
hjá ráðgjafafyrirtæki í Minneapolis.
Eftir þrjú ár þar fór ég til sjávar
útvegsfyrirtækis á Nýfundnalandi
í Kanada og var þar í eitt og hálft
ár. En eftir hrunið á Íslandi leitaði
hugurinn heim og ég flutti til Ís
lands í byrjun árs 2009. Ég vann
lengi hjá fjölskyldufyrirtækinu Vísi,
fór svo til Codland og aftur til Vísis
þar sem ég vann síðast sem mann
auðsstjóri. Í fyrra söðlaði ég svo um
og fór til Marine Collagen og fæ þar
að fylgja eftir verkefninu sem ég
vann að þegar ég var hjá Codland.
Hversu lengi hefur þú búið á Suð-
urnesjum? Ég ólst upp í Grindavík
en flutti til Reykjavíkur þegar ég
var sextán ára og fór í MR. Ég flutti
aftur til Grindavíkur árið 2010
þegar við stofnuðum fjölskyldu,
enda hvergi betra að vera með
börn, og hef búið þar síðan.
Hverjir eru kostir þess að búa á
Suðurnesjum? Það er yndislegt
að búa á Suðurnesjum og helstu
kostirnir eru frelsið sem börnin
okkar búa við og svo nálægðin við
náttúruna. Hvort tveggja kom svo
bersýnilega í ljós í Covid, enda frá
bært að geta farið með fjölskylduna
í ævintýraferðir á svæðinu, t.d. Þor
björn, Selskóg, Sólbrekkuskóg, Sela
tanga og þannig mætti lengi telja.
Hvernig líst þér á nýja félagið
okkar, FKA Suðurnes? Mér finnst
frábært að við séum að tengjast
betur hér á Suðurnesjum. Það
hefur verið gaman að mæta á við
burði og kynnast konum hér á
svæðinu. Að heyra hvað hinar kon
urnar eru að gera gefur manni líka
tækifæri til að styðja hvor aðra og
læra hver af annarri.
Hvað varð til þess að þú skráðir
þig í FKA? Í fyrstu voru það við
burðirnir hjá FKA sem mér fannst
áhugaverðir og voru ástæða þess
að ég skráði mig í félagið. Sérstak
lega finnst mér áhugavert hvernig
félagið vinnur markvisst í því að
auka sýnileika kvenna í fjölmiðlum.
Hvað finnst þér FKA gera fyrir
þig? Síðustu ár hef ég tekið eftir
því hversu mikinn styrk það veitir
að hafa öflugt tengslanet, og það
er það sem ég tek mest út úr því
að vera í FKA. Svo er líka bara
svo svakalega gaman með þessum
konum, sérstaklega þessum í
golfinu 😉
Heilræði/ráð til kvenna á Suður-
nesjum? Á mínum fyrsta FKA
viðburði vorum við hvattar til að
skiptast á símanúmerum við þær
konur sem við kynntumst, því
markmiðið var að geta slegið á
þráðinn seinna meir. Þetta hefur
sko komið mér að góðum notum
og miðla ég því hér með áfram til
kvenna á Suðurnesjum. Þó við
séum tengdar á alls kyns miðlum,
þá er símanúmer fyrsta flokks
tenging.
Markmið með verkefninu er að vekja athygli á FKA konum í
atvinnulífinu á Suðurnesjum, fyrirtækjunum þeirra eða verkefnunum
sem þær sinna og sýna hversu megnugar og magnaðar þær eru.
Nafn: Erla Ósk Pétursdóttir
Aldur: 42 ára
Menntun: BA í hagfræði og tölvunar-
fræði og er á seinna ári í MBA námi
við Háskólann í Reykjavík.
Þó við séum tengdar á alls kyns miðlum,
þá er símanúmer fyrsta flokks tenging
Jólagleði
Kvenfélags Keflavíkur og
Félags eldri borgara á Suðurnesjum
verður haldin á Nesvöllum
laugardaginn 12. nóvember klukkan 18:00
Súpa, gleði og dans.
Verð 3.000 kr.
Vínveitingar.
Upplýsingar hjá
Sigurlaugu síma 699 3569
Katrín Lilju síma 661 8525
Miðasala á Nesvöllum 23. nóvember kl. 13:00.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Akurskóli – Umsjónarkennari á yngsta stigi
Háaleitisskóli - Kennari í Nýheima
Stapaskóli - Kennari á leikskólastigi
Stapaskóli - Náms- og starfsráðgjafi
Umhverfissvið - Verkefnastjóri fráveitu
Hefur þú áhuga á að starfa við liðveislu?
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM