Víkurfréttir - 16.11.2022, Qupperneq 9
Jólalýsing
í Kirkjugörðum Keflavíkur 2022
KIRKJUGARÐAR
KEFLAVÍKUR
Verð á lýsingu á aðventu og fram á þrettándann
er kr. 5.000,- fyrir einn kross, kr. 3.500,- umfram það
Opnunartímar Kirkjugarða Keflavíkur vegna móttöku lýsingargjalda og til að
aðstoða þá sem á aðstoð þurfa að halda við uppsetningu krossa verður:
Miðvikudagur 23. nóvember kl: 13-17
Fimmtudagur 24. nóvember kl: 13-17
Föstudagur 25. nóvember kl: 13-17
Laugardagur 26. nóvember kl: 10-15
Sunnudagur 27. nóvember kl: 13-15
Frá 29. nóvember til 20. desember verður opið þriðjudaga og fimmtudaga frá kl: 15 til 17.
ATH. Posi á staðnum.
Leigu- og sölukrossar verða á staðnum
Það þarf að vera búið að fjarlægja skreytingar og ljós af leiðum eigi síðar en
31. janúar eftir það munu starfsmenn garðanna fjarlægja það af leiðum.
Jólaljósin verða tendruð
fyrsta sunnudag í aðventu, 27. nóvember.
Við minnum á reglur kirkjugarðanna sem eru á vefslóð
http://www.keflavikurkirkja.is/kirkjugardar/
Nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður Kirkjugarða Keflavíkur,
Friðbjörn Björnsson í síma 824-6191 milli kl: 10-16 alla virka daga.
Kirkjugarðar Keflavíkur
orðið fólk og þá er ég að tala um 18 ára
og eldri. Á þinginu getur fólk séð hvað
er í boði og hvar er hægt að vera virkur,
því það tengist svo vel að vera virkur
einhversstaðar og líða vel. Þannig
kannski er markmiðið bara að okkur
líði öllum vel.“
Hilma segir markmiðið einnig hafa
verið að virkja samstarf milli félaga
samtaka á svæðinu. Þorvarður Guð
mundsson, forstöðumaður Fjölsmiðj
unnar á Suðurnesjum, tekur undir með
henni og segir þingið hafa opnað augu
hans fyrir nýjum tækifærum. „Ég vissi
ekki hvað við værum að fara út í en
þessi viðburður hefur farið fram úr öllu
því sem maður átti von á. Mér finnst
rosalega mikilvægt að halda svona þing,
vegna þess að ég, sem forstöðumaður,
sé tengingar hér sem ég get nýtt mér
í minni starfsemi. Það er það sem við
þurfum meira af, að vinna meira saman
og einstaklingsmiða okkar starfsemi
fyrir hvern og einn,“ segir Þorvarður.
Virkni og vellíðan Suðurnesjafólks
Pólskri menningu fagnað HS Orka og Sæbýli rekstur ehf.
hafa undirritað viljayfirlýsingu
um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði
HS Orku. Sæbýli hefur á þessu
ári verið að byggja upp ungviða-
eldisstöð í Grindavík sem byggir
hlýsjávareldi sitt á jarðvarma og
grænni orku frá virkjun HS Orku
við Svartsengi.
Sæbýli er eldisfyrirtæki sem hefur
á síðastliðnum fimmtán árum þróað
eigin klakstofn, tækni og framleiðslu
aðferð við eldi á sæeyrum á Íslandi.
Uppsetning eldisins er einstök á
heimsvísu og sú fyrsta sinnar teg
undar en hún byggir á lóðréttu hillu
kerfi og vatnsendurnýtingu. Sæeyru
sem á ensku kallast „abalone“ eru í
raun sæsniglar og ein verðmætasta
eldistegund í heimi sem með nýtingu
einstakra auðlinda á Íslandi er mögu
legt að rækta með hlýsjávareldi hér
á landi.
Fyrirtækið hefur undanfarið rekið
klakstöð í Grindavík til að rækta upp
ungviði en hyggst byggja upp áfram
eldi í Auðlindagarðinum þar sem það
hyggst nýta græna raforku og varma
á Reykjanesi. Áform Sæbýlis eru í
fyrstu að byggja upp 200 tonna eldi
sem svo er mögulegt að fimmfalda
á næstu tíu árum. Sæeyrnastofninn
sem ræktaður er má rekja til Japans
en í Asíu er þessi skelfiskur eftirsótt
matvæli og hefur Sæbýli í hyggju að
flytja vöruna á erlenda markaði.
Sigurður Pétursson, stjórnarfor-
maður Sæbýlis: „Einstakar náttúru
auðlindir á Íslandi, með jarðvarma,
hreinum borholusjó og grænni raf
orku, gera Sæbýli, í samvinnu við HS
Orku, mögulegt að þróa umhverfis
vænt skelræktarverkefni. Bæði fé
lögin leggja áherslu á umhverfisvænt
hringrásarkerfi og erum við því mjög
ánægð hjá Sæbýli að ná þessum
áfanga í uppbyggingu félagsins.“
Ásgeir Guðnason, stofnandi og
framkvæmdastjóri Sæbýlis: „Ýmsir
velta fyrir sér hvort það taki mörg ár
að hefja eldi á nýrri eldistegund og
einfalda svarið er: „Já!“ Grunnurinn
snýr að byggja upp klakstofn og við
höfum náð þeim áfanga og lögðum
því í það verkefni á árinu að byggja
ungviðaeldisstöð í Grindavík. Þessi
viljayfirlýsing með HS Orku tekur
okkur fleiri skref áfram í því mark
miði að byggja upp einstakt eldi á
verðmætustu eldistegund í heimi
hér á Íslandi.“
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
HS Orku: „Við erum afar spennt
fyrir þessu samstarfi við Sæbýli. Þeir
búa yfir mikilli þekkingu og reynslu
við uppbyggingu á eldisrekstri og
við teljum þetta verkefni vera góða
viðbót við þá flóru eldisfyrirtækja
sem eru að byggjast upp í Auðlinda
garðinum. Framleiðsla á sæeyrum
fellur vel að hugmyndafræði Auð
lindagarðsins, nýtir bæði grænt raf
magn og varma við framleiðsluna,
ekki síst lítum við jákvæðum augum
á þá möguleika sem sæeyrna
eldið opnar á fyrir möguleg frekari
samlegðaráhrif eldisfyrirtækja á
svæðinu.“
Frá vinstri: Arnþór Gústavsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Sæbýli, Ásgeir Guðnason, stofnandi
og framkvæmdastjóri Sæbýlis, Sigurður Pétursson, stjórnarformaður Sæbýlis, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
HS Orku, og Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og Auðlindagarðs hjá HS Orku.
Viljayfirlýsing um sæeyrna-
eldi í Auðlindagarði HS Orku
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 9