Víkurfréttir - 16.11.2022, Síða 13
MENNTUN OG SKEMMTUN KENNARA
Menntun kennara er margvísleg og
misformleg. Sumir eru nánast fæddir
kennarar en aðrir ná ekki tökum á
því starfi þrátt fyrir kennaranám.
Fyrstu áratugina voru guðfræðingar
hvað best menntuðu kennararnir.
Vísir að formlegri kennaramenntun
varð fyrst til eftir að Thorkilliibarna
skólinn (1872) hafði starfað í áratug
og var það nokkurra vikna viðbót
við gagnfræðanám. Síðan kom til
sögunnar tveggja ára kennaraskóli
35 árum seinna. Nú þarf fimm ára
háskólanám til að mega kalla sig
kennara, enda er kennslan í dag
margþætt og vandasöm.
Kennarastarfið hefur verið lög
verndað frá því á níunda áratugnum.
Ef skólastjóra tekst ekki að ráða
neinn með kennarapróf getur hann
sótt um undanþágu til að ráða ófag
lærðan aðila. Gildir sú ráðning í ár,
kallast starfsmaðurinn leiðbeinandi
og er á heldur lægri launum. Nokkuð
er fjallað um kennaramenntun í 20.
og 25. þætti.
Auk grunnáms hafa lengi verið
ýmis konar námskeið fyrir kennara.
Sumarnámskeið voru algeng meðan
sumarleyfi nemenda var þrír, fjórir
mánuðir og gátu kennarar hækkað
um launaflokk ef þeir sóttu tiltekinn
fjölda viðurkenndra námskeiða. Það
breyttist snemma á 21. öld, við tóku
stutt námskeið á skólatíma og einnig
varð algengara að leiðbeinendur
lykju kennaranámi á nokkrum árum
í fjarnámi.
Í aðalnámskrá grunnskóla sem
kom út 2011 voru skilgreindir sex
grunnþættir menntunar: Læsi; sjálf
bærni; lýðræði og mannréttindi; jafn
rétti; heilbrigði og velferð; og sköpun.
Haldin voru stutt námskeið um
þessa þætti í skólum landsins, m.a.
í StóruVogaskóla. 2. apríl 2013 var
fræðsla um grunnþáttinn Heilbrigði.
Þá skráði undirritaður hjá sér eftir
farandi minnisatriði:
• Heilsuefling – velferð – lífsleikni.
Förum úr forvörnum í heilsu
eflingu.
• Heilsuefling er það að auðvelda
fólki að ná betri stjórn á eigin
heilsu.
• Jákvæð sjálfsmynd er besta
vörnin gegn áhættuhegðun.
• Frekar en að banna eigum við
að hampa ákveðnum leiðum.
• Ein áhættuhegðun kallar á aðra.
• Hvaða hegðun kallar gosdrykkja
á? Eða próteínduft?
• Illskárra er að vera ögn í of
þyngd en vannærður. u.þ.b. 30
kg bil er eðlilegt. BTstuðull:
18–26.
• Verst er að safna fitu um mittið.
Mittismál er góður mælikvarði.
• Dvítamín: Mælt með að fara
fimmtán mínútur út í sólina,
setja svo á sig sólarvörn! RDS
(ráðlagður dagskammtur) hefur
heldur hækkað. Ein matskeið af
lýsi gefur tvöfalt RDS.
Úr hliðstæðu námskeiði um jafnrétti
hafði höfundur m.a. glósað þetta:
• Ungt fólk er íhaldssamara
en fyrir tuttugu árum. Fegr
unarkröfur og klámvæðing hafa
aukist.
• Um 1970 luku álíka margar
stelpur og strákar stúdentsprófi,
síðan keyrðu stúlkurnar fram úr.
• Stúlkur ná mun betri árangri
í 10. bekk, eru þar með þeim
bestu í heimi!
• Stærsti ójöfnuður í íslensku
skólakerfi er kynjamunur.
• Kynjajafnrétti er stór hluti af
mannréttindum og lýðræði.
• Strákar hugsa mest um
ávinning af störfum en stelpur
virðingu og starfsánægju.
Kjörorð StóruVogaskóla á 21. öld eru
vinátta – virðing – velgengni.
Í byrjun 20. aldar var innleitt
SOSagastjórnunarkerfi, SMTkerfi
og Olveusaráætlun til að bæta líðan
og starfsanda í skólanum, fyrirbyggja
og uppræta einelti og var samin ein
eltisáætlun fyrir skólann.
Eftir að lög voru sett um að allir
ættu rétt til skólagöngu í sinni
heimabyggð hófu nemendur með
alvarleg frávik eða fötlun nám við
skólann. Þá fengu starfsmenn stutt
námskeið um hvernig best væri að
aðstoða þá.
Á einhverfu og aspergernám
skeið 6/11 2014 var okkur ráðlagt
að setja fyrir skýr verkefni og skipu
leggja allar aðstæður. Kennarinn þarf
að vera vel skipulagður og börnin
þurfa að þekkja það skipulag og
ganga að því sem vísu. Frjáls tími og
frímínútur skapa angist. „Þú ræður
sjálfur“ skapar mikinn kvíða. Fé
lagslegt spjall er mjög erfitt en við
reynum að kenna þeim að spjallið
hefur gildi fyrir hinn aðilann. Við
gætum vel að raddbeitingu og erum
ekki höstug. Við segjum fólki hvað
það eigi að gera, ekki hvað það á ekki
að gera, forðumst að nota orðin ekki
og nei.
Kennari þarf að vera bæði fróður
og góður. Hann þarf að valda starfinu
og líða vel og smita aðra af áhuga
sínum og starfsgleði. Ýmislegt er gert
til að viðhalda góðum starfsanda og
bæta hann. Skólastjórnendur og
starfsfólk gerir margt uppbyggilegt
og skemmtilegt saman. Reynt er að
halda uppi félagslífi og þar er starfs
mannafélag í fararbroddi. Farið er
í ferðalög, bæði til að fræðast og
gleðjast. Höfundi eru minnisstæðar
dagsferðir innanlands, t.d. í Land
mannalaugar, Árnessýslu, Reykjavík,
um Suðurnes o.fl.
Snæbjörn Reynisson var ötull að
skipuleggja slíkar ferðir. Eitt sinn
fékk hann Guðnýju Snæland, matráð
í skólanum, og mann hennar, Haf
stein Snæland, til að skipuleggja
óvissuferð fyrir allt starfólkið á
rútu sem Hafsteinn ók. Var farið til
Reykjavíkur og komið þar víða við.
Um þá ferð orti höfundur:
Húmorinn í hávegum
er Hafsteinn skemmti fljóðum.
Hann ekur jafnt á óvegum
sem eðlalstrætum góðum.
Guðný mjög er göfuglynd,
gaf hún mola sína.
Okkur hefur hún nú sýnt
höfuðstaðinn fína.
Þetta var nú þeysireið
þökkum við allt saman.
Héldum uppfrædd heimáleið.
Helvíti var gaman!
Vorið 1994 fóru kennarar skólans í
fyrsta sinn í kynnisferð til útlanda.
Var farið til Danmerkur, þar sem
flestir gistu í sumarbústað ættingja
eins kennarans. Voru leigðir tveir
bílar og ekið í skólaheimsóknir í
fimm mjög ólíka skóla, einn á dag.
Einn skólinn var óhefðbundinn, á
búgarði þar sem nemendur sem ekki
gekk vel í hefðbundnu námi, lærðu af
bústörfum, t.d. stærðfræði með því
að vigta og skammta fóður. Í kaffi
stofunni héngu landakort á veggjum.
Út frá þeim var rætt um heimsins
lönd í kaffitímanum, o.s.frv.
Á efri myndinni er hópurinn að
leggja í hann í Flugstöð Leifs Eiríks
sonar en á þeirri neðri á ferð til að
skoða elstu eik Danmerkur.
Um áratug síðar fór kennaraliðið
til bæjarins Gent í Belgíu, einkum til
að kynnast þjónustu Belga við inn
flytjendabörn en þar hafa þeir langa
reynslu. Voru heimsóttir skólar,
gengið um gróin innflytjendahverfi
og kíkt á krár á kvöldin. Tæpum
áratug síðar var haldið til New York,
m.a. í Harlemhverfið, veröld sem er
býsna ólík okkar. Vorið 2018 var svo
haldið til Parísar í skólaheimsóknir,
mikla athygli vatki skóli fyrir inn
flytjendur.
Heimildir: Almenningsfræðsla á Íslandi. Fundagerðir kennarafunda 19811989. Aðal-
námskrá grunnskóla 2011. Upplýsingar frá Inger Christensen, Höllu Jónu Guðmunds
dóttur, Jóni Inga Baldvinssyni og Særúnu Jónsdóttur. Glósur og minningar höfundar úr
starfi við skólann 2000–2016.
Leiðrétting
Þorvaldur Örn Árnason.
Í erindi sem Eiríkur Hermannsson
flutti á 150 ára afmælishátíð Gerða
skóla 7. október sl. og birtist í heild
í Víkurfréttum eru staðreyndavillur
sem hér verður leitast við að leið
rétta.
Eiríkur sagði – og skrifaði:
„Gerðaskóli er ein elsta mennta
stofnun á landinu og að margra mati
næstelsti barnaskóli sem starfað
hefur samfleytt, aðeins barnaskólinn
á Eyrarbakka á sér lengri sögu.“
Síðar í ræðunni og greininni segir
Eiríkur: „Skólastarf í Gerðaskóla
hófst 7. október 1872 og starfsemi
skólans á Vatnsleysuströnd skömmu
seinna.“
Undirritaður hefur birt í Víkur
fréttum vikulega allt þetta ár þætti
úr skólasögu Vatnsleysustrandar
hrepps og Sveitarfélagsins Voga. Þá
er hægt að lesa á www.vf.is/pistlar,
á www.vogar.is og á https://www.
storuvogaskoli.is/150-ara/thaettir-
ur-sogu-skolans.
Í fyrstu þáttunum, sem birtust í
byrjun árs, eru dregin fram í dags
ljósið gögn um það að skóli er form
lega stofnaður á Vatnsleysuströnd
12. september 1872 á opnum fundi í
nýbyggðu skólahúsi og hófst kennsla
þar 1. október það ár, viku á undan
stofnun Gerðaskóla. Um það vitnar
handskrifuð eftirgerð fundargerðar
stofnfundarins, sjá mynd. Þar
kemur fram að þá þegar sé búið
að að byggja húsið og ráða fyrsta
kennarann, Cand theol Oddg. Guð
mundsson. Oddgeir lýsir skólanum
og starfinu í grein í Þjóðólfi í jan.
1873 á miðjum fyrsta kennsluvetr
inum. Presturinn hóf söfnun 1870,
viðar var aflað í húsið og keypt undir
það jörð 1871 og það byggt sum
arðið 1872. Skólabörnin eru þrjátíu
þennan fyrsta vetur og tíu þeirra
heimilisföst í skólanum.
Eiríkur sagði – og skrifaði enn
fremur:
„Fyrsti barnaskólinn í Reykjavík
starfaði á árunum 1830–1846 og
aftur upp úr 1860. Ekki er alveg
ljóst hvort starfsemin var óslitin í
Reykjavík eftir það.“
1830 var stofnaður barnaskóli í
Reykjavík (í Aðalstræti) með átján
börnum, þar sem öll kennsla fór
fram á dönsku, en sum voru börn
danskra kaupmanna. Skólagjald
einhverra barna var greitt úr Thor
killiisjóði. Að auki greiddi sjóðurinn
halla á rekstri skólans, u.þ.b. 100 rd
á ári. Það þótti ekki samræmast
reglum sjóðsins, hætti sjóðurinn
að styrkja skólann 1849 og var þá
rekstrargrundvellinum kippt burt
og lagðist skólinn niður. Síðan líður
áratugur uns Alþingi setti, eftir ára
langt þjark og m.a. forgöngu Jóns
Sigurðssonar, lög um barnaskóla í
Reykjavík 1859. Sá skóli hóf starf
semi í Hafnarstræti í Reykjavík
1862. Fyrsti skólastjórinn var Helgi
E. Helgason. Hann er sagður hafa
markað spor í skólastefnu Reykja
víkur í 30 ár og var einn af stofn
endum hins Íslenska Kennarafélags
1889. Þjóðólfur 30.1.1869 skýrir svo
frá að Thorkillisjóðurinn megi veita
fátækum bömum, er ganga í barna
skólann í Reykjavík, 10 rd. hverju í
skólapeninga og var sex börnum í
Reykjavík veittir 10 rd.
Ég hef engar heimildir séð um
annað en að Barnaskóli Reykja
víkur, eini lögbundni barnaskólinn
á 19. öld, hafi starfað óslitið frá 1862
og sem forveri grunnskóla Reykja
víkurborgar. Eiríkur virðist véfengja
það í umræddu ávarpi og grein. Hafi
Eiríkur fundið ein
hverjar heimildir
um að rof hafi
verið á starfsemi Barnaskóla Reykja
víkur frá 1862 er hann hér með vin
samlega beðinn um að benda á þær.
Það má til sanns vegar færa að
Gerðaskóli sé þriðji til fjórði elsti
barnaskóli landsins sem starfað
hefur samfleytt. Þeir prestarnir og
frændurnir Sigurður B. Sívertsen
og Stefán Thorarensen, sem voru
driffjaðrir stofnunar barnaskóla árið
1872, hvor í sinni sveit, undirbjuggu
það mál í nokkur ár og svo hófst
starfsemin sama haustið hjá báðum.
Munaði þar aðeins viku. Að Gerða
skóli sé næstelsti barnaskóli landsins
sem starfað hefur samfleytt stenst
engan veginn. Það er beinlínis rangt.
Heimildir
150 ára Gerðaskóli. Ávarp Eiríks Hermannssonar, fv. skólastjóra Gerðaskóla. 150 ára Gerðaskóli - Víkurfréttir (vf.is).
Þættir úr 150 ára skólasögu Vatnsleysustrandarhrepps og Sveitarfélagsins Voga 18722022, www.vf.is/pistlar, á www.vogar.is eða á
https://www.storuvogaskoli.is/150-ara/thaettir-ur-sogu-skolans.
Yfirlit sögu skóla í Vatnsleysustrandarhreppi birtist í Faxa 1990: Skólar á Suðurnesjum: Brunnastaðaskóli, Faxi 1990 Faxi - 1. tölublað
(01.01.1990) - Tímarit.is (timarit.is).
Skúli Magnússon: Byggðu skóla fyrir almenn samskot á Brunnastöðum, Faxi 01.05.1979.
St. Thorarensen. 1873. Auglýsing (jörð, kennari). Þjóðólfur 14.3. 1873. Innihaldsrík auglýsing.
Oddgeir Guðmundsen. 1873. Barnaskólinn á Vatnsleysuströnd. Þjóðólfur, 25.árg. 21. jan. 1873 bls. 4849.
St. Thorarensen. Skýrsla til stiftsyfirvalda um ástand og athafnir skólans árið 187374, hluti skýrslunnar er birtur í Víkverja 18.4.1874.
St. Thorarensen. Skýrsla um skólahald 18761879. Ísafold. 29.3.1879. Ítarleg skýrsla í léttum dúr. Segist áður hafa skrifað um skólann í
blöðin 1877, en Google finnur það ekki undir St.Thorarensen.
St. Thorarensen. Skýrsla um skólahald 18751876. Þjóðólfur 8.5. 1876. M.a. um góðan skóla í Hákoti í Njarðvík þar sem Pjetur Pjetursson
kenndi 16+2 börnum í 6 mánuði.
Stefán Thorarensen. Sóknarmannatal Kálfatjarnar og Njarðvíkur 1865 – 1876.
Gunnar M. Magnúss. Jón Skálholtsrektor. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1959.
Eitthvað af elstu skýrslum um skólann á Vatnsleysuströnd, elsta bréfa og gjörðabók hans og elsta reikningabók, hefur ekki fundist, en
varðveist hefur áðurnefnd fundargerð stofnfundar skólans í nýbyggðu húsnæði hans 12. september 1872 og einnig handskrifuð reglu
gerð um hann í 30 greinum, sem byggð var á reglugerð skólans sem tók til starfa í Reykjavík 1862. Frá fyrstu áratugunum eru til greinar
í blöðum sem hægt er að lesa á timarit.is, sjá dæmi hér ofar. Hægt er að lesa á netinu nöfn nemenda og einkunnir fyrstu starfsár skólans,
í sóknarmannatali Kálfatjarnar og Njarðvíkur 18651876 eftir sr. Stefán Thorarensen. Til er samfelld Gjörðabók skólanefndar 1907 –
1969, reikninga og sjóðsbækur 19071936, dagbækur skólans frá 19171932, prófabók 19141932 o.fl. Vitað er hverjir kenndu og stýrðu
skólanum öll 150 ár hans. Í dagbókunum og prófabókinni eru birt nöfn nemenda þessi ár. Fyrstu öldina var skólaárið 6 mánuðir, frá 1. okt
og fram í byrjun apríl, með stuttu jóla og páskafríi. Hægt er að slá því föstu að skóli hefur starfað samfleytt í Vatnsleysustrandarhreppi /
Sveitarfélaginu Vogum frá 1. okt. 1872.
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast
vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu.
Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann,
tekur saman með góðra manna hjálp.
43. ÞÁTTUR
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 13