Draupnir - 01.12.1939, Síða 4

Draupnir - 01.12.1939, Síða 4
4 D R A U P N I R Upp yfir fjöllin háu. T OFTIÐ var lieiðskírt og kyrrt, veðrið lygnt og bjart. Jörðin var orðin (lögg- vot eftir hita liins milda og fagra júlídags. Kvöld var kom- ið og fólk allt gengið til náða nema ég. Ég sat í glugghúsinu og mændi út í hlíðina. Kvíærnar dreifðu sér um græna teiga hlíðarinn- ar. Tvævetlurnar voru alveg hættar að taka sig út úr. Þær voru orðnar vanar þessari gæzlu á kvöldin. En hvað þess- ar stundir voru lengi að líða, hræðilega lengi! Ég hafði ekki einurð á að gera mér neitt til skemmtunar. Ég sat og mændi á eitt og ann- að og hugsaði. Skrýtið var það að vera kominn liingað í þenn- an mjóa dal. Mér fannst hann vera svo þröngur, að ég gæti varla rétt út hendurnar án þess að rekast í fjöllin. En svona voru víst flestir dalir hérna á Vestfjörðum — löng, mjó dæld, á rennur eft- ir henni miðri, örfá býli og risahá fjöll til beggja handa í nokkurra metra fjarlægð. Það var munur cða fyrir sunnan, þar sem ég átti heima. Þar var víðsýnið, breið flatneskja, sást út á sjóinn og inn til kaupstað- arins. Þar var skemmtilegt að eiga heima. Ég leit á úrið mitt. Hvað var þetta? Það voru ekki liðnar nema nokkrar mínútur. Og mér fannst ég hafa setið þarna svo fjarska lengi og hugsað svo margt og mikið. Ætti ég að syngja? Nei, ónei, það álti varla við. Það var ekki viðkunnan- legt að í’júfa kyrrð kvöldsins með söng, ekki fegri en hann var nú, söngurinn minn. Auk þess gat ég vakið fólkið. — Nú dalt mér ráð í hug. Húsfreyjan hafði eitt sinn látið þau orð falla, að óhætt væri, þegar fram í sækti og ærnar væru teknar að spekjast, að ég tæki mér bók í hönd og læsi. Nú var tækifærið. Ég stóð upp. A-liæ! Ég var stirður í skrokknum eftir að hafa staðið við slátt allan dag- inn. Svona var ég alltaf fyrstu dagana. Ég læddist inn göngin, opn- aði stofuna og fór inn. Það féll skuggi á bókahilluna. Ég ætl- aði ekki að vera lengi, taka bara einhverja bók. Dönsk orðabók. Æ, hana mátti ég til að láta í hilluna aftur. Nú tók ég eftir því, að á eina bókina féll dálítill Ijósdepill. Þessa bók næstum hrifsaði ég. Yær- ingjar. „Væringjar". endurtók ég, „gott nafn að minnsta kosti.“ Aftur var ég setztur í glugg- húsið og var nú strax niður- sokkinn í að lesa, svo að ég gleymdi mér alveg. ,,Ég er hann, — ég er hann,“ sagði ég upphátt án þess að taka eftir því, að Ingi stóð fyr- ir framan mig. „Hver segist þú vera?“ sagði hann. „Ég er Ásgeir ungi. Þessi hofundur er snillingur,“ sagði ég með hita og otaði að hon- um bókinni. „.Tá, hann segir vel frá,“ sagði Ingi með rósemi hins reynda manns. „En líttu á ærnar, drengur,“ bætti liann við. „Það er alveg satt,“ sagði ég og þaut af stað út í hlíð. Ærnar voru komnar niður fvrir Lambabyrgi. Svona var að svíkjast um. Ég fann þó brátt allar ærnar. En hugurinn var ekki við þær. Enn var ég undir áhrifum bókarinnar. Væringi, væringi! Þetta orð ólgaði í liug' mér. Og útþráin bertók mig alveg. Hér var tilveran litils virði, hér gat maður ekki notið lífs- ins. Út, út ætlaði ég, yfir höf og lönd, ferðast og framast, verða væringi. Ég kvíaði ærnar. Hljóðlát nóttin lagðist yfir bin nálægu fjöll. Sem snöggvast fannst mér þessi þrengjandi fjöll ógna útþrá minni. — En litlu síðar var ég lagzt- ur á koddann, og þá hamlaði ekkert liugsun minni. Og inn- an skamms var hann horfinn, þessi þröngi dalur, og ég sveif yfir lönd og höf. Sijgni. Iþróttir Flensborgara y IÐ FLENSBORGARSKÓL- ANN hefir leikfimi mik- ið verið stunduð um langt skeið, enda er hún eina íþróttagreinin, sem neinend- um gefst tækifæri til að stunda sér til gagns og g'leði eftir tilsögn kennara. Þeim nemendum, sem eru á þroska- skeiði og vaxa mjög ört, er nauðsynlegt að stunda leik- fimi, þvi að annars getur vaxt- arlagi þeirra verið hætta búin. Fyrir þess konar hættum geta þeir unglingar, sem iðka leik- fimi, verið öruggir. Nemendum er nauðsynlegt

x

Draupnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Draupnir
https://timarit.is/publication/1773

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.