Draupnir - 01.12.1939, Síða 7

Draupnir - 01.12.1939, Síða 7
D R A U P N I R 7 Skógar. Þó að landið okkar liafi víða til að bera stórferiglega fegurð, sem heillar margan, getur eng- inn lokað augunum fyrir því, hversu hrjóstrugt það er viða. Evðisandar, uppblásin moldar- flög og gróðurlausir móar blasa við augum okkar allt of víða. Náttúruöflin ráða miklu um þetta. Þau hafa lierjað á land Æskumenn ættu að hafa það í liuga, að fáum verður mikilla afreka auðið, nema þeir geri sér það Ijóst þegar á unga aldri, að eitthvað verður að hafast að, til þess að svo verði, og taki þá að húa í liaginn fyr- ir framtíðina. En illa búa ung- lingar sig undir fullorðinsárin með því að spilla heilsu sinni og sóa fjármunum sínum í nautnir, sem færa þeim ekki neitt. Gegn tóbaksnautn á auðvit- að einkum að vinna með því að fræða menn um skaðsemi hennar. Samband bindindisfé- laga í skólum ætti að gangast fyrir slíkri fræðslu. Það ætti að beita vopnum sínum gegn tóhaki ekki síður en gegn á- fengi, að minnsta kosti í þeim skólum, þar sem nemendur eru yfirleitt ekki komnir á þann aldur, að hætt sé við, að þeir neyti áfengis að mun, en eru á því reki, cr hættast er við, að menn hyrji að reykja. Auðsæjustu merki mikilla tó- haksreykinga er litur sá, sem tóhak skilur eftir á fingurgóm- unum. Mér þykja gulir fingur- gómar mest lýti á ungum manni, jafnt karli sem konu. B. A. og þjóð og komið mörgum bú- sældarlegum héruðum á kald- an klaka. En að nokkru leyti eiga mennirnir sök á þessu. Þeir hafa misnotað gæði lands- ins með rányrkju. Þeir tóku, en létu ekkert í staðinn. Tilfinnanlegast er þó, hvern- ig ráðizt var á skógana öld eft- ir öld. íslendingabók Ara fróða segir, að landið hafi á land- námsöld verið skógi vaxið milli fjalls og fjöru. En þetta brevtt- ist. Menn ruddu skógana, eins og þeir væru einhverjar óvætt- ir, sem yrði að útrýma. Þetta var gert af lítilli fyrirhyggju, enda hafði það fljótt illar af- leiðingar. Þar, sem áður höfðu verið glæsilegir skógar, varð brátt uppblásið og evðilegt land. Nú liin síðari ár er vaknað- ur áhugi manna fyrir því að endurreisa skógana. Þegar þeir eru að hverfa hurtu og eru að- eins eftir á stöku stað, opnast augun loks fyrir því, hversu tigulegir og aðlaðandi þeir eru. Nú er farið að friða skógana En það er ekki nóg að hlúa að þeim, sem fyrir eru. Ekki þarf síður að stækka þá, þar sem skilyrði eru til þess. Fátt er jafnmikil hæjarprýði og vel hirtir trjágarðar, sem síðar má færa út, unz hvert einasta heimili á snotran skógarlund. Hér fær æskulýður kaupstað- anna nýtt viðfangsefni. Hann liefir gott tækifæri til þess að prýða umhverfi sitt með ang- andi skógi. Mörgum kann að virðast svo, að það sé ekki ó- maksins vert að hlúa svo að skóginum. En þetta er hinn mesti misskilningur, því að hann er meira virði en okkur kann að sýnast í fljótu bragði. Auk þess, að skógurinn jjrýðir umhverfið og ver ]>að margs konar eyðileggingu, getur það verið mikill hagur, að eiga vel ræktaðan skóg. Þar, sem hann er enn í sæmilegu ástandi, hef- ir liann til skamms tíma verið notaður mikið til hyggingar gripahúsa, og þess er sums staðar getið í íslendinga sög- um, að bæir liafi verið reistir úr íslenzkum viði. Það væri okkur alveg ómetanlegur stvrkur, ef við ættum nú svo mikinn skóg á liinum hrjóstr- ugu heiðum. Hin síðari ár liefir verið gerð tilraun til að húa til girðinga- stólpa úr íslenzkum viði. Framtíðin sker úr um það, hvernig þetta gefst, en þetta er íhugunarefni fyrir unnendur sveitanna. Þá kem ég að veigamesta at- riðinu, en það er kolabrennsla. Viðarkolin gefast yfirleitt vel til upphitunar, en auk þess er farið að knýja lrila með viðar- kolum, og sennilega má einn- ig knýja báta með þeim. Sá Ijóti ósiður hefir víða við gengizt, þegar menn vinna við skógarhögg, að ráðast á falleg- ustu hríslurnar. Það hefnir sín síðar og eyðir skógunum fyrr en varir. Þeir skógar, sem til eru víðs vegar um landið, eru fremur á fallanda fæti. Það er því fyllilega tímabært að æsku- lýðsfélög landsins taki þetta mál í sínar hendur. Æska þessa lands á mörg erfið við- fangsefni. Þau félög, sem æsk- an fylkir sér um, hljóta að hafa vakandi augu á því, sem stefn- ir hugum manna á framfara- og þroskabrautir. Guðjón Bjcirnfreðsson.

x

Draupnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Draupnir
https://timarit.is/publication/1773

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.