Draupnir - 01.12.1939, Blaðsíða 9

Draupnir - 01.12.1939, Blaðsíða 9
D R A U P N I R 9 Ruslakista Flensliorgar. 1%/rARGIR hér í heimavist- A inni eru smekklegir menn hæði að klæðaburði og andlits- snyrtingu og ekki sizt að her- bergissnyrtingu. Ekki hefir komizt upp um nein þjófnaðar- mál hér enn, en allur er varinn góður. Af hræðslu við hina yf- irvofandi liættu hefir hinn al- kunni gjaldkeri látið smokka smelllás innan á hurðina hjá sér til varnar liinni álitlegu fjárfúlgu, sem hann hefir i fór- um sínum. Sparisjóðurinn er afar þokkalegt herbergi. En það er ekki að undra. Annar íbúinn ó góða og vel járnaða tréskó. Þegar hann þvær, íklæðist hann þessum kostagripum, sem spóla upp öllum saur, þegar dansað er á þeim Quick step eða Lam- bet walk. Hinn íbúinn þvær einnig oft og gerir það sóma- samlega. Eitt sinn, er hann var að þvo, kemur vel þekktur kenn- ari og yrðir á hann á þessa leið: „Ertu nú búinn að gera lireint fyrir þínum dyrum?“ Drengur lítur upp frá vinnu sinni, rjóður og sveittur af hinu mikla erfiði, og segir með stærðfræðilegum svip: „Nei, ég á eftir að þvo liérna utan við þröskuldinn.“ f ruslakistunni húa Litli og Stóri. Þar er ekki laust við reimleika. Einu sinni, þegar Stóri hafði boðið Litla góða nótt með kossi og ýmsum fett- um og brettum, lagðist hann fyrir og féll í væran blund. Þeg- ar hann hafði látið sig drevma nokkra stund um glæsilega framtíð, bar óboðinn gest að garði, sem hvolfdi undir lion- um álegunni. Um leið og Stóri veltur upp fjTÍr, hrópar hann í dauðans ofboði: „Er ég' á leið til helv..?“ f koti búa karl og kerling. Þau búa rausnarbúi. Húsfreyja er hin myndarlegasta og held- ur kotinu hreinu og þokkalegu. Hún kaupir gluggatjöld og „bón“ og ýmiss konar hreinlæt- isvörur ásamt fjörefnaríkri fæðu. Karlinn er aftur á móti mesti sauður. Hann er ánægð- ur, ef þægilegt er í kringum hann, en nennir ekkert að gera sjálfur, heldur notar Iiann kerl- inguna til allra skítverka. Þrátt fyrir þetta er mikið ástriki milli þeirra hjóna, og kemur þeim ætíð vel saman. Það verð- ur þó að játa, að ekki er laust við afbrýðissemi lijá húsfreyju, þegar ungar og laglegar heima- sætur með Ijósa lokka og blá, tindrandi augu ber að garði. En betta virðist vera alveg á- stæðulaust af húsfreyju, því að hvorki hefir það heyrzt né sézt, að bessi kunningsskapur hafi haft neinar afleiðingar. Þegar nóttin kemur og þau hafa liátt- að í eina sæng, fellur allt i Ijúfa löð, og húsfreyja fyrir- gefur bónda sínum allar (ó- sannaðar) yfirsjónir hans með einum ástríkum eilífðarkossi. Dag einn, er heimavistar- nemendur sitja að snæðingi, kemur skólastjóri niður í borð- sal og biður þá að þrifa til í herbergjum sínum, því að von sé á gestum, sem ætli að skoða skólann. Að svo mæltu fer hann upp til sín. Á sama augnabliki og skóla- stjórinn hverfur út um dyrn- ar, sprettur Naggurinn upp úr sæti sínu og þýtur út, eins og hann liefði verið stunginn með glóandi járnteini í sitjandann. Um leið og Naggurinn spratt upp, varð einum nemenda að orði: „Fleiri hundar eru nú svartir en hundurinn ])rests- ins.“ Ali Baba & Co Sumt af því, sem betur mætti íara. ■pLENSBORGARSKÓLINN nýi er meðal vegleg- ustu skóla á landinu. Skól- inn er mjög snotur. Fyrir framan liann er steinsteypt stétt og þrep. En sá galli er á þeim, að liandrið vantar meðfram þeim eða eftir þeim miðjum. Eins og er, er stór- hættulegt að ganga þrepin í hálku. Að innan er skólinn .einnig fallegur, þótt sums staðar megi finna að honum. Bekkirnir eru t. d. mjög óþægilegir. En við því er ekki hægt að gera nú. Inni í salernunum mætti vera snvrtilegra. T. d. vantar alveg spegla, og gjarnan mætti vera þar sápa og handklæði. Svona smávegis hluti væri hægl að setja með litlum til- kostnaði. Vona ég, að þess verði ekki langt að bíða, að eitthvað af þessu komist í sæmilegt horf. Sist. Ritnefnd: Gísli Stefánsson, Tómas Tómasson, Kristján Eldjárn, Karl Jónasson, Hetga Magnúsdóttir. Abyrgðarmaður: Bjarni Aðalbjarnarson.

x

Draupnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Draupnir
https://timarit.is/publication/1773

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.