Skutull

Árgangur

Skutull - 01.12.1977, Síða 14

Skutull - 01.12.1977, Síða 14
SKUTULL Plötur fyrir jólin Jólagjöfin í ár { POP: STEELY DAN - AJA. ( ELO - AUT OF THE BLUE. RARE EARTH, - ný. EARTH WIND AND FIRE, - ný. BOZ SCAGGS, - ný. KANSAS, - ný. FLEEWOOD MAC - RUNOS. ICITY BOY, - ný. JOHN MILES - STRANGER IN THE CITY. SUPER TRAMP - EVEN ON THE QUITEST MOMENTS. SMOKIE - FLESTAR: 10.C.C. FLESTAR. PAUL SIMON - GREATEST HITS. FOCUS - SHIP OF MEMORIES. ) SUTHERLAND BROS. ) IAN GILLAN BAND - SCRABUS. \ LAURENT VOULZY - ROCKCOLLECTION. I SANTA ESMERALDA - DONT LET ME BE / MISUNDERSTOOD. GENESIS - FLESTAR. E.L.P. - WORRS II. LAKE, - ný. BEATLES, - flestar. GENTLE GIANT - allar. LOL CREME/KEVIN GODLEY - CONSEQUENSES. SUPERTRAMP, - flestar. LYHARD SKYHARD, - ný. DR. HOOK, - ný. Jass — Rock — Jass RAMSEY LEWIS, - ný. COLOSSEUM, - ný. ERIC GALE, ný. MAYNHARD FERGUSSON, - ný. JAN HAMMER, - ný. SANTANA - MOONFLOWER. GEORGE DUKE - REACH FORIT BILLY COPHAM, - ný. DEXTER GORDON, - ný. STEVE KHAN, - ný. GERRY MULLIGAN - THE ARRANGER. CLEO LAINE, RAY CHARLES - PORGY & BESS MILES DAVIS - CARLY PARKER - OSCAR PETERSON. íslenskar: GUNNA ÞÖRÐARSSON - LUMMUR. HAUKAR - SVO Á RÉTTUNNI. LÚDÓ OG STEFÁN. HALLI OG LADDI. DÚMBÓ OH STEINI. FJÖREFNI + A. ÝMSIR, 30 vinsæl lög frá 1950 -1960. RUTH REGINALDS. I HREKKJUSVÍN. 1 Einnig mikiö úrval af j íslenskumog erlendum) jólaplötum. j erslunin Kjartan R. Guömundsson Hafnarstræti 1 — Simi 3507 Eyjólfur Jónsson, Flateyri: Gamlar auglýsingar Þegar flett er gömlum blöðum má fljótlega sjá að auglýsingar eru oft með nokkuð öðrum og hressilegri svip er venjulegast er á okkar tímum. Stundum bregða menn fyrir sig ljóðagerð, til að auka áhrifamátt auglýsinganna. Hér er ein slík auglýsing úr Vestra í apríl 1904: 1 verslun Guðna Guðmundssonar á Dýrafirði fást neðanritaðar vörur:... Handsápu og spegla hef ég nú, og háa stöpla af blákkudósum, bollapör fyrir beztu hjú og bændur og konur—öll í rósum, súkkulaði.kaffi, og sykurinn, sveskjurnar góðu og lakkrísinn, ótarleg firn af ýmsum nálum, og ósköpin öll af grautarskálum, litarbrjef, send frá ýmsum álfum, uppfundin víst af kóngnum sjálfum, svo litað getið þið hálfan heiminn, og,,húrra!“ mun sungið vítt um geiminn yfir þeim mikla lita-ljóma, svo lof fáið þið og mikinn sóma, hjá öllum þeim, sem að eitthvað geta og indæla liti kunn‘ að meta. Sætabrauð hef jeg, sirzin fín, sjelega skó og margarín, veggpappann góða, er vill ei þrjóta, og væn lampaglös, sem engir brjóta, heliar-býsn öll af hárgreiðum, og nundruð af lúsakömbunum. Hörtvinni er og hærustrigi, þið haldið nú þetta máske lýgí? Nei, Það sver jeg við allan minn svarta tvinna, og slíkan munuð þið hvergi finna, þó leitið í búðar-inni öll og efst upp í ,,Himalaya-fjöll“. Teskeiðar hef og tvíbökur tinmatskeiðar og beintölur, fingurbjargir og ,,Futteral“, og flest allt sem þarf að haf á ,,ball“ svo sem: skósvertu, slaufur, nál, skínandi „Humbug“ segulstál. Bankabygg hef jeg, barnamjöl, Buddings-hveiti og herðasjöl, ,,Allehaande“ og Anchoisur, eldfæri, pipar, rúsínur, bankabyggsmjöl og baunirrar, borðhnífa, gaffla og krúsirnar, umslög og pappír allskonar, indæla penna og húfurnar, stígvjelamak og strokleður, snikkaralím og kartöflur, sóda og grænu sápuna, svo hef jeg góðu ,,rótina“. Og svo fæ jeg allt sem gleður geð, gamla ,, Kong Tryggve“ eflaust með, svo sem: úrval af svuntunum, svo þeir fara að gjóta hornaugum. Ja, þá verður ýmsu úr að velja! en ómögulegt er slíkt að telja. Komið nú bara og „kaupslagið!“ Kaupanna varla iðrist þið. Þegar vélbataöldin gekk í garð eftir síðustu aldamót vildu flest- ir fá mótorvél í bát sinn. Véla- salar og kaupmenn auglýstu hver í kapp við annan ágæti þeirra véla er þeir höfðu umboð fyrir. Einn þeirra var Páll Torfason á Flateyri,, sem þá fékkst við kaupmennsku og margskonar fjársýslu. Þeir Torfasynir á Flat- eyri voru líka með þeim fyrstu hér á landi er settu mótorvél í bát. Full vissa er fyrir því að 1900 voru þeir bræður með smáskekktu, með mótorvél, er notuð var til skemmti og skyndi- ferða innfjarðar. Sumarið 1905 þurfti Páll að komast utan. Ferðir voru strjálar og til þess að komast á ráðgerðum tíma varð hann að ná skipsferð í Páll Torfason. Reykjavík. Varð þá að ráði að Ásgeir skipstjóri Torfason flytti Pál suður á bát er þeir Kristján og Ásgeir Torfasynir áttur. Bát- ur þessi hét Eðna og var súð- byrðingur byggður á Flateyri 1903, um 26 fet á lengd og rúm 3 tonn að stærð. I bátnum var amerísk bensínvél af Wolverine- gerð. Ásgeir var þá maður tæp- lega þrítugur, óragur og góöur sjómaður. Fengu þeir bræður skjóta ferð til Reykjavíkur. Ferð þessi þótti nýlunda og er hennar getið þannig í blöð- um 10. ágúst 1905: ,,Páll Torfason kaupmaður á Flateyri kom fyrir síðustu helgi á dálitlum mótorbát hingað til bæjarins vestan af Önundarfirði við 3ja mann. Hann var 23 klukkustundir á leiðinni og fékk hvassviðri mikið. Samskonar mótor, sem í bátnum er, auglýsir hann hér í blaðinu". Auglýsingin hljóðarsvo: W'olverine bátamótorar hafa alstaOar reynat beat. Hér á laodi hafa þflir Yeríð brúkaðir í 4 ár og reyn*t vel. BáUr með Wolverine mótor lór á 23 *tandam frá Önondarfirði til Reykjavikar. — Umboðflmaðar fyrir laland P. J. TORFASON FLATEYRI.

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.