Skutull

Årgang

Skutull - 01.12.1977, Side 16

Skutull - 01.12.1977, Side 16
16 SKUTULL Daníel Sigmunds Skipbrotsm Slysavarnaf á Hornströri Meðan byggð stóð með blóma á nyrsta hluta Vestfjarðarkjálkans, eða á svæðinu frá Hesteyri í Jökufjörðum til Furufjarðar á Ströndum, mun óhætt að fullyrða að þeim, sem þar hlekktist á, oftast á erfiðum ferðalögum og við störf sín til lands og sjávar, hafi hlotið þá hjálp og aðstoð, sem var á valdi þess fólks að veita er þarna bjó, oft við hin erfiðustu skilyrði, en með þeim ágætum að minnst mun verða með þakklátum huga meðan slík þjónusta verður einhvers metin og í minnum höfð. Er byggð tók að leggjast niður „á Ströndum“ og þær allar komnar í eyði, var forystufólki slysavarnadeildanna hér á fsafirði ljóst að eitthvað yrði að gera til viðbúnaðar er til hjálpar mætti verða þeim sjófarendum er lentu í þeirri raun að brjóta skip sitt á þessum slóðum, svo og öðrum þeim sem í raunir kynnu að rata þó með öðrum hætti yrði á torsóttum leiðum um fjöll og Því er það að á öndveröu ári 1946 er því hreyft á fundi í slysavarnadeild karla á ísafirði, að nauðsynlegt sé að koma upp skipbrotmannaskýlum þarna norður frá. Árangurinn varð sá að tvö eyðibýli eru tekin á leigu í þessu skyni, eða Atla- staðir í Fljótum og Höfn í Horn- vík þar sembæjarhúsiðvarsíðar keypt og er nú í eigu Slysa- varnafélags íslands. Ennfremurvar skömmu síðar fenginn til þessara nota suður- endi gamla bæjarins á Buðum í Hlöðuvík, þó hrörlegur væri orðinn og sýnilegt að þar yrði að bæta betur um húsakost svo að viðunandi væri. En með þessum framkvæmd- um þó að í smáum stíl væri; voru þó fyrstu vörðurnar reistar á langri og torsóttri leið að því marki að koma upp skipbrots- mannaskýlum á sem flestum stöðum á vestur og norðurhluta Hornstranda, en áfram var haldið með þeim árangri að firnindi. árið 1951 er fyrsta skýlið reist á Búðum í Hlöðuvík, og á næstu árum eru reist ný skýli á eftir- töldum stöðum: Furufirði. Barðsvík. Búðum í Hlöðuvík. Fljótavík. Látrum í Aðalvík. Sléttu í Jökulfjörðum og Hrafnsfirði. Sumarið 1966 er enn farið með nýtt skýli að Búðum í Hlöðuvík því þegar komið var þangað í hinni venjulegu eftir- litsferð um vorið var skýlið horf- ið, hafði veðurhamur undan- gengins vetrar slitið það af und- irstöðunum, og farið með það að hluta til á sjó út, og mátti þar um segja að sá gerir slétt sem sleikir. En ef undan eru skilin skýlin í Barðsvík, Fljótavík, og fyrsta skýlið á Búðum, voru öll skýlin smíðuð hér á ísafiröi, og rúm- lega það ef að ég má fara þann krók í frásögninni, því að á Þyrla Landhelgisgæslunnar í flutningum í skýll í Höfn, Hornvík 1965 2. júlí Farið með skýlið í Furufjörð. Sigríðarbúð þessu tímabili lét Slysavarnafé- lag íslands smíða hér alls 13 heiða og skipbrotsmannaskýli, sem síðan voru send til hinna ýmsu staða á landinu, og má þar nefna: Skeiöarásand. Lónsheiði við Hornafjörð. Öxnadalsheiði. Héðinsfjörð. Sprengisand og Kaldadaí. Heiðarnar hérna í nágrenn- inu nutu einnig góðs af þessu framtaki félagsins, þar sem eru skýlin á Breiðadalsheiði, og Gemlufallsheiði. Tveir eru þeir staðir ótaldir enn, sem eiga þó sinn hlekk í örygg- iskeðjunni, en það er Sæból í Aðalvík þar sem barnaskóla- húsið var fengið til afnota sem skýli, og eyðibýlið Sandeyri á Snæfjallaströnd, en eigandi þess Jón Guðjónsson fyrrver- andi bæjarstjóri á ísafiröi, leyfði félaginu afnot af íbúðarhúsinu til þessarar starfsemi, svo alls eru skýlin hér á nágrenni við okkur og norðan Djúpsins 10 talsins, og þó æskilegt að þau gætu verið fleiri. Um búnað skýlanna til að sinna því hlutverki, sem þeim er ætlað og að venju miðaður við sex menn, má í stórum dráttum nefna: Svefnpoka. Ytri fatnað. Innri fatnað. Vaðstígvél. Annar búnaður: Hitunartæki (fyrir Kosangas) Kolaofn. Ljósmeti. Lyfjakassi. Ýmis mataráhöld. Matvæli: Kaffi og te. Sykur. Kraftsúpur, Matarkex, og að síðustu dýrmætasta tæk- ið í skýlinu, Neyðartalstöðin, en með tilkomu þeirra má hiklaust segja að orðið hafi þáttaskil í búnaði skýlanna til öryggis þeim, sem þangað hafa leitað í neyð, að geta látið vita af sér og beðið um nauðsynlega hjálp. Þess skal einnig getið að Slysavarnafélag ísiands bar all- an kostnað af þessum fram- kvæmdum og naut þá sem áður ríkulegs stuðnings kvenna- deilda félagsins, sem sumar hverjar létu það eftir sér að afhenda til félagsins andvirði einstakra skýla, og þú lesandi góður mátt gjarnan sjá þinn hlut í þessum framkvæmdum öllum, því að til þeirra m.a. hafa þær krónur farið, sem þú hefur látið af hendi rakna hverju sinni er Slysavarnafélagið hefur tekið hús á þér á fjáröflunardögum sínum. í hlut heimamanna hér, og þá 1965 5. júní Farið með skýlið í Hrafnsfjörð.

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.