Skutull

Árgangur

Skutull - 01.12.1977, Blaðsíða 17

Skutull - 01.12.1977, Blaðsíða 17
SKUTULL 17 sérstaklega meðlima björgun- arsveitarinnar, komu svo snún- ingarnir í kringum smíðina á meðan hún stóð yfir og síðan að koma skýlunum á átanga- stað og setja þau saman, en þau voru smíðuð í mörgum hlutum, og minnti samtenging þeirra helst á leiK með Lego- kubba. Það lætur að líkum að í allar þessar ferðir hefur þurft skip til fararinnar, og frá því fyrsta ver- ið leitað til Landhelgisgæslunn- ar sem alltaf hefur brugðist vel við þeirri málaleitan, að ó- gleymdum öllum þeim ferðum, sem þau hafa farið í skýlin til eftirlits frá upphafi, og trú mín er sú að hefði þessi starfsemi ekki notið þessarar hugþekku aðstoðar úr hendi Gæslunnar, þá hefði einhverntíma orðið ó- hægt um vik að koma því öllu í kring þarna norður frá, sem raun ber þó vitni um að gert hefur verið til þessa. Óbætt er sú þakkarskuld sem við ísfirðingar stöndum í við áhafnir varðskipanna fyrir alla þeirra 'umhyggju fyrir okkur um mat og hvíld, og hjálp í þessum ferðum okkar með þeim, það verður seint fullþakkað. Kristján Kristjánsson 1965 17. j úlí Farið með skýlið að Látrum í Aðalvík. Og þökk sé þeim öllum félög- unum, lífs og liðnum, sem gáfu sig til ferðanna hverju sinni sem varla buðu upp á annað en vinnu, vökur, og meiri vinnu, án þess að heimta daglaun að kveldi, en fögnuðu með Sjálfum sér vitneskjunni um að þeir hefðu lagt drjúgan skerf til framdráttar góðu málefni. Varla verður sagt að ferðirn- ar með skýlin séu sérstaklega til frásagnar á nokkurn hátt, þær áttu það sameiginlegt að til þeirra var reynt að velja stillt og gott veður með tilliti til lending- ar á hinum ýmsu stöðum, og tókst þann veg til.að til undan- tekninga var talið ef menn urðu stígvélafullir, og að svo vel tæk- ist til að þeir rassblotnuðu í bak og fyrir á leiðinni. Þó held ég að mér verði lengst í minni ferðin með skýlið að Látrum í Aðalvík fyrir það hversu erfið hún varð, í það sinn gerði Gæslan það meira af vilja en mætti að flytja okkur, svo tímabundið sem skipið var við önnur störf. Við vorum 10 saman og komum á Aðalvíkina kl. 19.00 um kvöldið en á há- degi daginn eftir áttum við að vera tilbúnir til heimferðar, þetta tókst og höfðum við þá á 16 klst. flutt skýlið í land, sett það upp, málað gólf og gengið frá því að öllu leiti, þá nótt var tekið til hendi á Látrum í Aðal- vík. Ekki verður skilist svo við þessar línur, að ekki sé minnst hér þess mannsins sem frum- kvæðið átti að þessum þætti á vettvangi slysavarnanna hér, en það var Kristján Kristjánsson, hafnsögumaður, og sem lengst og best hafði starfað hér að málefnum Slysavarnafélags (s- lands. Daníel Sigmundsson. Óskum ísfirðingum og öðrum Vestfirðingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum ánægjuleg viðskipti á liðnum árum. GUNNAR FRIÐRIKSSON VÉLASALAN HF. Garðastræti 6 — Reykjavík 1964 3. okt. Farið með skýlið á Dynjandisheiði Skýlið í Barðsvík. Úr Sigríðarbúð. 1970 15. febr. Eftirlitsferð ískýlið á Sléttu. Frá byggingu skýlisins í Furufirði

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.