Skutull - 01.12.1977, Síða 20
20
SKUTULL
Dráttarkarlskvæði
Um langan áldur hafa línuveiöac verið mikilvægur þáttur í
fiskveiðum íslendinga, og enn í dag skila þær að landi verulegu
magni af úrvals hráefni. Línuveiðarnar eru fastmótuð atvinnugrein
og grundvallast á hefðbundnum vinnuháttum, sem litlum breyting-
um hafa tekið þótt tæknibyltingin hafi orðið í flestum öðrum
greinum fiskveiðanna. Þó varð gjörbreyting um borð í línubát-
unum við tilkomu „dráttarkarlsins". Sá tæknibúnaður létti erfiðu
starfi af hásetum, en ekki var nú karlinn sá jafn vel þokkaður af
landmönnunum. Þeim var í fyrstu lítið um hann gefið, töldu að
hann þvældi og flækti lóðirnar og gerði starf þeirra erfiðara.
Eftirfarandi kvæði, sem ort er fyrir munn landformanns um
dráttarkarlinn Þránd, lýsir vel afstöðu landmannanna til umræddar
vélvæðingar. Eins og fram kemur í kvæðinu var umræddur
dráttarkarl smíðaður af Matthíasi Guðmundssyni á Þingeyri.
Hvíld er engin nú í nánd,
þó nálgist háttatími.
Á ég stríð við illan Þránd,
alltaf við hann glími.
Út á sjóinn aulinn fer,
ötull línu dregur.
Flækir hana fyrir mér
fólinn klækjalegur.
Duglegur við dráttarþóf
drýgir sína hrekki,
því veltusjór og kafaldskóf
karlinn bugar ekki.
Bjóðin sendir bófinn mér:
[ bendu er línan vafin.
Með sárar hendur sit ég hér,
sífellt önnum kafinn.
Þó við bölvum karli í kór
og kvæði á hann splæsum,
af honum hrynja orðin stór
eins og vatn af gæsum.
Vominum aldrei verður kalt
þó vindur öldum feyki,
eða drifið sjávarsalt
sífellt um hann leiki:
Eigirðu við hann orðaskak
aldrei neitt hann segir.
Af sér aldrei ber hann blak,
bara þegir, - þegir.
A því veit ég ekki skil,
hvort anda er karlinn gæddur.
Matthías bjó manninn til,-
af mey er hann ekki fæddur.
Er í karllegg eingetinn,
ekki er gott í vonum,
því betri helming sérhvert sinn
sagt er að fái af konum.
Þrándur þar og Þrándur hér.
Þrándur í hverju sinni.
Þrándur var og Þrándur er,
Þrándur í götu minni.
SKUTULL
Ritstjóri (áb ):
Björgvin Sighvatsson. ísafirði.
r
ALLT^^ MEÐ
EIMSKIP
REGLUBUNDNAR HRAÐFERÐIR
einingalestun
gámaflutningar
stsr
SJOLEIÐIN ER ODYRARI
varan er
Við framleiðum úx bestu hidefmun:
Unu — alla, sverterlca.
Tetnatög. Sþ»ple fiber, sérstakfega stamt — hvitt m«ö bláum þr»ði.
PEP gamla góða grænýrótta teinatógið.
PPF, fiimukaðali felár, með hvítum þræði.
Færatóg: PE, grœnt með gulum þrwði.
Kótuhankaefni úr Sisal.
Steinahankaefni PPF blátt.
Botnvörpunet og vörpugam.
GTAKKHOLTI 4 Reykjavik
Póst- og
símamálastofnunin
Nemendur veröa teknir í línumannsnám nú í
vetur, til starfa viö póst- og símstöðina á
ísafirði, aö loknu námi.
Upplýsingar veitir Umdæmisstjóri pósts og
síma, ísafirði.
og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári.
Kubbur ht.
Samvinnubankinn
Útibúið á Patreksfirði.
óskar viðskiptaniönnum sínum, svo
og öllum vestfirðingum, gleðilegra
jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.