Skutull - 01.12.1977, Blaðsíða 21
Tvær andlitsmyndir
K
HINN frægi italski málari Leo-
nardo Vinci átti heima í Milanó
á ftalíu. Hann málaði ýmsar
myndir af atburðum úr lífi frels-
arans, og er myndin af hinni
heilögu kvöldmáltíð meðal
hinna merkustu. Vann hann að
málverki þessu í mörg ár, og
baðst iðulega fyrir meðan á því
stóð. Notaði hann ýmsa af
kunningjum sfnum sem fyrir-
myndir og málaði andlit postul-
anna eftir þeim. En enn vant-
aði tvö andlit á myndina: Ann-
að þeirra var andlit frelsarans
sjálfs. Það átti að vera fegursta
andlitsmyndin, og hafði málar-
ínn ekki séð neinn mann, sem
honum fannst hæfur tit að vera
fyrirmynd þeirrar ásjónu.
Loks var honum sagt af
manni, er Pietro Bandilli hét,
og sem var frægur fyrir undur-
fagra söngrödd sína. Leonardo
sá hann, og fann brátt að hér
var fyrirmyndin, sem hann
vantaði og sem hann hafði svo
lengi árangurslaust leitað að.
Ástúð, sakleysi, göfgi og ráð-
vendni skein úr hverjum drætti
í andliti hans. Leonardo spurð-
ist fyrir um dagfar hans, og
hrósuðu honum allir. Eftir
þessari fyrirmynd var nú andlit
frelsarans gert.
Þegar það var fullgert, fór
Pietro burt úr Milano og til
Rómaborgar til að læra söng.
Þar lenti hann í slæmum fél-
agsskap og á honum sannaðist
hið fornkveðna: „Segðu mér
hverja þú umgengst, þá skal ég
segja þér hver þú ert“. Það fór
fyrir honum eins og týnda syn-
inum Hann eyddi tíma sínum í
drykkjuslarki og fjárhættuspil-
um, féll stöðugt dýpra og dýpra
og endaði sem gerspilltur
óbótamaður. En um allt þetta
var Leonardo ókunnugt með
öllu.
Myndin af hinni heilögu
kvöldmáltíð var nú nærri full-
gerð, aðeins vantaði eina and-
litsmynd. Það var myndin af
Júdasi, glötunarsyninum. Mál-
arinn hafði ekki séð neitt andlit
svo Ijótt og spillt að hann gæti
tekið það til fyrirmyndar.
Dag einn þegar hann var á
gangi um götur borgarinnar
mætti hann mannræfli, tötrum
klæddum, óhreinum, svipljót-
um og niðurlútum. Málarinn
leit á hann: Þarna var Júdasar-
andlitið. Hann fékk manngarm-
inn heim með sér og málaði
eftir honum andlitsmynd Júd-
asar. En daginn, sem myndin
var fullgerð, sagði hinn ókunn-
Hjdlmur hf.
FLATEYRI
Óskum öllu starfsfólki okkar
á sjó og landi, viðskiptavinum,
svo og öllum Vestfirðingum,
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
og þökkum viðskiptin
á líðandi ári.
Saga nætur-
fjólunnar
Gömul sögn hermir, að næt-
urfjólan hafi ekki ætfð ilmað
eins og hún gerir nú. En frá-
sögnin um það, hvernig hún
fékk hinn yndislega ilm, er á
þessa leið:
Þegar Jesús fann lærisvein-
ana sína sofandi í Getsemani-
garðlnum, varð hann hryggur í
huga eins og kunnugt er, og
grét yfir tómlæti þeirra, er hann
mælti:
„Gátuð þið ekki vakað með
mér eina stund?“
Og sjá. Tár hans féllu á næt-
urfjóluna, er á sömu stundu fór
að ilma.
Upp frá þessu hefir nætur-
fjólan gefið frá sér yndislegan
ilm alla nóttina.
21
ugi maður við málarann: „Mun-
ið þér ekki eftir mér, þér hafið
einu sinni áður málað mig?“
— Og hver haldið þið svo, að
maðurinn hafi verið? Það var
Pietro Bandinelli.
Svo mjög hafði áfengið og
syndsamlegt líferni breytt and-
liti og hjarta mannsins.
SALEM
Salemsöfnuðurinn á ísafirði
f óskar öllum fsfirðingum
k gleðilegra jóla og blessunar
' Guðs í nútíð og framtfð.
Velkomnir á samkomur
’ sem hér segir:
Jóladag.
kl. 20,30 Sameiginleg há-
| tíðasamkoma með Hjálp-
, ræðishernum í Salem.
2. jóladag.
kl. 16,30 hátíðasamkoma.
Föstudag. 30 des. kl.
16,oo Hátíð sunnudagsskól-
ans.
Gamlárskvöld.
kl.23,00
Áramótasamkoma
Nýársdag.
kl. 16,30 Hátíðasamkoma.
Hjartanlega velkominn.
SALEMSÖFNUÐURINN.
íshúsfélag ísfirðinga hf.
ÍSAFIRÐI
Óskum starfsfólki okkar
og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
árs og friðar,
og þökkum jafnframt
samstarf og viðskipti
á líðandi ári.
-4^
íshúsfélag Isfirðinga hf.
ÍSAFIRÐI
Samábyrgð íslands
á fiskiskipum
Sími 81400 - Símnefni: Samábyrgð - Lágmúla 9 Reykjavík
SAMÁBYRGÐIN annast nú eftirfarandi tryggingar:
Fyrir útgerðarmenn:
Skipatryggingar
Ábyrgðartryggingar útgerðarmanna
Slysatryggingar sjómanna
Farangurstryggingar skipshafna
Afla- og veiðarfæratryggingar
Endurtryggingar fiskiskipa undir 100 rúmlestum
Bráðafúatryggingar fiskiskipa
Fyrir skipasmíðastöðvar:
Ábyrgðatryggingar vegna skipaviðgerða
Nýbygginga - tryggingar
Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir umboðsmenn
vorir veita allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi trygg-
ingar þessar og taka á móti tryggingarbeiðnum.
Vélbátaábyrgðarfélagið Grótta, Reykjavík
Vélbátaábyrgðarfélag Akurnesinga, Akranesi
Bátatrygging Breiðafjarðar, Stykkishólmi
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga, Isafirði
Vélbátatrygging Eyjafjarðar, Akureyri
Skipatrygging Austfjarða. Neskaupstað
Vélbátaábyrgðarfélagið Hekla, Stokkseyri
Vélbátatrygging Reykjaness, Keflavík
v ■