Skutull

Árgangur

Skutull - 01.12.1977, Blaðsíða 22

Skutull - 01.12.1977, Blaðsíða 22
SKUTULL 22 t FLUGFÉLAG ÍSLANDS 40 ÁRA: Mjór er mikils vísir - Á sl. sumri, nánar tiltekið hinn.3. júní, voru 40 ár liðin frá stofnun Flugfélags íslands, Segja má að 40 ár sé ekki langur tími í lífi þjóðar og máske ekki heldur ævi fyrirtæk- is. En tímalengd hefur ekki allt að segja, heldur einnig, og ekki síður, þau áhrif sem fyrirtækið hefur haft og þau störf sem það hefur innt af hendi á starfsævi sinni. íslendingar sáu snemma fram á kosti flugsamgangna og stofnuðu Flugfélag Islands hið fyrsta árið 1919. Það félag starfaði aðeins í tvö ár. Næsta tilraun var gerð 1928, er Flugfé- lag Islands, hið annað í röðinni, hóf óreglubundið innanlands- flug í samvinnu við þýska flug- félagið Luft-Hansa. Sú tilraun endaði í heimskreppunni 1931. Næsta og þriðja tilraun er stofn- un Flugfélags Akureyrar, nú Flugfélag Islands, hinn 3. júní 1937 á Akureyri. Þáverandi flugmálaráðunautur ríkisins Agnar Kofoed-Hansen, hafði reynt stofnun flugfélags syðra, en ekki haft erindi sem erfiði. Norðlendingar tóku honum bet- ur og fyrir því má segja að vagga samfelldra flugsam- gangna á íslandi hafi staðið á Akureyri. Félagið var stofnað af 15 hluthöfum og var fyrsti for- maður þess Vilhjálmur Þór, kaupfélagsstjóri, en aðrir í stjórn voru Guðmundur Karl læknir, og Kristján Kristjáns- son, forstjóri Bifreiðarstöðvar Akureyrar. FYRSTA FLUGVÉLIN En það tók lengri tíma en í dag að afla flugvélar og alls sem þurfti. Þótt ötullega væri starfað að gerðri áætlun, kom fyrsta flugvél félagsins ekki til landsins fyrr en í apríl 1938, var sett saman í Vatnagörðum í Reykjavík og,flogið til Akureyrar 2. maí. Fjölmenni var við komu flugvélarinnar er hún lagöist að bryggju, því hér var að sjálf- sögðu um flugvél á flotholtum að ræða. Flugvellir engir á landi og því lent í vogum og víkum, höfnum og stöðuvötnum. Flug- vélin var af gerðinni Waco YKS og fjögurra sæta. Farnar voru flugferðir norður fyrir land og þótti flugfarþegum stórkostlegt að líta land sitt úr lofti í fyrsta sinn, svo og hafsvæðið fyrir norðan, þar sem sjá mátti hafís á stöku stað. Hinn 4. maí var fyrsta ferð með flugfarþega flogin frá Akureyri til Reykjavík- ur. Þaðan hófst óreglulegt flug með farþega og póst. Þeir sem ætluðu í flugferð hringdu til Flugfélags Akureyrar, annað- hvort í Reykjavík eða nyrðra og létu skrá sig, en síðan var haft samband við þá er nægilega margir farþegar voru komnir og vel viðraði til flugsins. Ótrúlegir voru þeir erfiðleikar sem mættu hinu unga flugfélagi og flug- manni þess. Engir radíovitar á landi, veðurspárþjónusta ófull- komin með tilliti til flugsam- gangna og fylgja varð strönd- um til öryggis. Flugferð milli Reykjavíkur og Akureyrar tók því oft nokkuð á þriðju klukku- stund. Árið 1939 lét Agnar Ko- foed-Hansen af störfum hjá flugfélagi Akureyrar og gerðist lögreglustjóri í Reykjavík. Örn O. Johnson tók þá við sem flugmaður og framkvæmdar- stjóri. GLEÐILEG JÓL! Þbkkunt viðskiptin á líðandi ári. FARSÆLT NVTT ÁR! Suðurver hi. Suðureyri Agnur Kofoed-Hansen lögrefilustjóri Iteykjavíkur 1940. FÆRT ÚT KVlARNAR Árið 1940 voru aðalstöðvar félagsins fluttar frá Akureyri til Reykjayíkur, nafni þess breytt í Flugfélag islands og hlutafé aukið verulega. Önnur sams- konar flugvél var keypt og lögð drög að kaupum að fyrstu tveggjá hreyfla flugvél lands- manna. Er hér var komið var styrjöldin í algleymingi og Bretar höfðu hernumið ísland. Þeir bönnuðu flugsamgöngur um sinn en síðan tókst að fá því banni aflétt. Árið 1942 tókst félaginu að kaupa Beechcraft- flugvél í Bandaríkjunum og flytja hana úr landi í þann mund er útflutningsbann á flugvélum gekk í gildi. Þetta var fyrsta tveggja hreyfla flugvél (slend- inga. Um þetta leyti haföi fyrsta áætlunarflugleiðin verið sett upp. Það var Reykjavík/Akur- eyri/Reykjavík, en árið 1942 var einnig hafið reglulegt flug til Egilstaða. Um sinn varð ekki frekari aukning á flugflota, þar sem flugvélar voru ófáanlegar vegna stríðsrekstur stórþjóð- anna. Árið 1943 kom hingað til lands bresk verslunarsendi- nefnd. Meðlimir úr stjórn Flug- félags íslands, þar á meðal Örn Ó Johnson og Bergur G. Gísla- son, áttu tal við þessa menn og þar kom að þeir lofuðu að beita sér fyrir að félagið fengi keyptar tvær flugvélar í Bretlandi. Hér var um að ræða vélar af gerð- inni Dragon Rapides, tveggja hreyfla, sem hvor um sig tók átta farþega. Litlu síðar keypti félagið fyrsta Catalina-flugbát sinn í Bandaríkjunum, hinn sögufræga TF—ISP sem Örn Ó Johnson og áhöfn flaug til ís- lands í október 1944. Flugbát- urinn var innréttaður hér og tók 22 farþega. Við aukningu flug- flotans tók farþegatala félags- ins mikið stökk. Höfðu fyrsta árið verið á áttunda hundrað- inu, komist nokkuð yfir þúsund 1940, en árið 1945 voru fluttir yfir 7000 farþegar. Starfsmenn félagsins sem fyrst voru tveir, síðan þrír, hafði nú fjölgað verulega með auknum umsvif- um. Samt var það enn svo að hver maður vann þau störf sem nauðsynleg þóttu önnur en hrein fagstörf, svo sem flug- virkjun og flugmennsku. Flug- menn störfuðu á skrifstofunni þegar ekki var flogið, hlóðu flugvélar og þvoðu þær og hreinsuðu. Sama var með alla aöra starfsmenn. Þeir tóku hendi til þeirra starfa sem þurfa þótti hverju sinni. Sjómann afélag Revkiaví kur sendir íslenskum sjómönnum bestu jólaóskir og árnar sjómannastéttinni árs og friðar á komandi ári. GLTfilLEG JÓL! FARSÆLT NÍTT ífi! Þokkum vikkiptin á liðandi ári. 3 ERNIR P ISAFIROI Sjómonnaíélag ísfirðingn óskar meðlimum sínum og f jölskyldum þeirra og íslenskri sjómannastétt gleðilegra jóla og hagsældar og heilla á komandi ári. tiiaðfrystihúsið Shjoldur hf. .át'KHFIRÐI •^k..iu starfsfólki okkar «g viðskiptavinum . íi.'gra jóla r arsads komandi árs. ’ ■>í:.knni íiðið ár. TF-ÖRN - fyrsta flugvél Flugfélags fslands.

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.