Skutull - 01.12.1977, Qupperneq 23
SKUTULL
23
MILLILANDAFLUG HEFST:
Nú þótti sjást fyrir endi
heimsstyrjaldarinnar a.m.k. í
Evrópu. Forráðamenn Flugfé-
lagsins hófu snemma árs 1945
undirbúning að millilandaflugi,
en hér var við ramman reip að
draga, lögmál stríðsins enn og
ótal leyfi þurfti frá innlendum
og erlendum aðilum. Samt
tókst félaginu um síðir að fá
tilskilin leyfi og hinn 11. júlí
1945 lagði flugbáturinn
TF—ISP af stað frá Skerjafirði í
Reykjavík áleiðis til Skotlands
með fjóra farþega. Lent var í
Largs í Skotlandi sex klukku-
stundum og fjórum mínútum
síðar. Flugstjóri í þessari ferð
var Jóhannes R. Snorrason,
sem enn í dag er yfirflugmaður
Flugfélag íslands. Þrjár ferðir
voru farnar um sumarið, þar af
tvær til Skotlands og Kaup-
mannahafnar. Það kom hins-
vegar í Ijós að Catalina-
flugbátur hentaði illa til þessa
flugs og því gerði Flugfélag ís-
lands samning við Scottish Air-
lines um leigu á Liberator-
flugvélum til flugs milli (slands
og Skotlands og áfram til Kaup-
mannahafnar. Þetta flug hófst
hinn 27.maí 1946 og stóð með
litlum breytingum fram í júlí
1948 er Flugfélag íslands eign-
aðist sína fyrstu millilandaflug-
vél, Skymaster-flugvélina
GULLFAXA. Við íslendingar
segjum jafnan frá því að við
höfum hlaupið yfir járnbrauta-
öldina, við höfum farið beint úr
hnakknum upp í flugvélina. Því
þótti það vel við hæfi að þau
nútímafarartæki sem mesta
fólksflutninga annast hlytu nöfn
hins fótvissa faxa sem áður og
fyrr var eina samgöngutækið á
landi.
INNANLANDSFLUG EYKST:
Á innanlandsvettvangi hafði
einnig mikið gerst. Árið 1946
eignaðist félagið sína fyrstu
DC—3 flugvél, síðar tvær Cata-
lina-flugvélar til viðbótar þá enn
fleiri DC-3 flugvélar. En fremur
Grumman Goose og Nordin
Norseman flugvélar. Eftir að
hingað komu Gullfaxa fyrsta
var tekið upp flug til Osló 1948,
flug til London 1949 og skrif-
stofur opnaðar í þessum borg-
um. [ Kaupmannahöfn hafði fé-
lagið haft aðstöðu frá 1946, um
tíma eigin skrifstofu, en síðar
höfðu flugfélag íslands og Loft-
leiðir þar sameiginlega skrif-
stofu. Félögin opnuðu síðan
hvort sína skrifstofu í Kaup-
mannahöfn.
SAMEINAÐIR STÚNDUM VÉR:
Upp úr 1970 var augljóst að
samkeppni íslensku flugfelag-
anna á millilandaleiðum myndi
báðum mjög óhagkvæm og
jafnvel til verulegs tjóns. Þáver-
andi ríkisstjórn hlutaðist til um
viðræður milli Flugfélags ís-
lands og Loftleiða um samræm-
ingu flugfélaganna og jafnvel
sameiningu. Þær viðræður báru
árangur snemma árs 1973 og
hinn 28. júní það ár samþykktu
hluthafafundir beggja félag-
anna að stofnað skyldi sam-
eignarfélag sem yfirtæki alla
hluti í félögunum báðum ogisam-
ræmdi reksturinn. Hlutafélagið
Flugleiðir var svo stofnað 20.
júlí og tók til starfa 1. ágúst. f
október voru allar millilandaá-
ætlanir samræmdar og um ára-
mót flestar skrifstofur erlendis
sameinaðar.
FRÁ KYNNINGADEILD
Álfttirðingur hf.
Súðavík
Sendir skipshöfn b.v. Bessa
öðrum starfsmönnum
og viðskiptaaðilum
bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökkum samstarfið
á líðandi ári.
Óskum starfsfólki okkar
og viðskiptamönnum
gleðilegra jóla,
árs og friðar,
og þökkum jafnframt
samstarf og viðskipti
á líðandi ári.
Vélsmiðjo Bolungovikur hi.
BOLUNGAVÍK
GLEÐILEG Jfll! FARSÆLT NVTT ÁR!
Þökkum viðskiptii) á líðandi ári.
GLEBILEG JÓL! FARSÆLT NVTT ÁR!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Vélbdtaábyrgðarfélag Isfirðinga
Verkalýðs-
félagið Baldur
Óskar meðlimum sínum
og öllum öðrum landsmönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
FLUGLEIÐA
UWHUt ðHMGA
FLATEYRI
Óskum öllum viðskiptavinum vorum og
starfsfólki gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs með þökk fyrir viðskiptin
á líðandi ári.
Seljum allar nauðsynjavörur, sem fáan-
legar eru á hverjum tíma.
Látið innlánsdeild kaupfélagsins ávaxta
sparifé yðar.
Umboð fyrir Samvinnutryggingar.
Kaupfélag
Patreksfjarðar
PATREKSFIRÐI
Við sendum viðskiptamönnum okkar
og starfsfólki svo og öllum vestfirðingum
bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Koupfélog Dýrfirðinga
ÞINGEYRI
Óskar starfsmönnum sínum
og viðskiptaaðilum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Þökkum samstarfið
á líðandi ári.
M. BERNHARÐSSON
SKIPASMÍÐASTÖÐ HF.
Við óskum starfsfólki okkar og viðskipta-
vinum gleðilegra jóla árs og friðar
og þökkum samskiptin á líðandi ári.
Sjukrasamlag Isafjarðar
óskar öllum meSlimum sínum gleöilegra jóla
og farsaeldar og heilbrigðis á komandí ári.