Skutull - 01.12.1987, Síða 17
SKUTTJLL
17
INNKAUPADEILD
býður veiðarfœri til:
★ Togveiða ★ Nótaveiða
★ Netaveiða ★ Línuveiða
Leitið upplýsinga
NNKAJJRSDBLO
HAfNARHVXJ VID TTTíCCVACÖTU PO.BOC 899 REYKJ-VlC TEL29500 CA«£S VESSaCWKCRS TaEX 2d9oVESSa 6
Stórkostlegir
viðburðir
í vxndum hjá
H.HÍ’88!
^**"*****
,jl#n i '. -i
Nýja sjúkrahúsið á ísafirði vígt 17. júní 1925.
Alþýðuflokksmenn tóku þá
málið alfarið í sínar hendur og
samþykktu á næsta bæjarstjóm-
arfundi að hefja þegar undirbún-
ing framkvæmda, þannig að ríkis-
styrkurinn fengist og hægt væri að
hefjast handa strax um haustið.
Kaus bæjarstjómin þá Vilmund.
Harald Guðmundsson og Jón H.
Sigmundsson í nefnd um málið.
Þessa ákvörðun bæjarstjómar
ógilti bæjarfógeti, og rökstuddi
mál sitt með því að þar sem sýslan
hefði ekki tekið ákvörðun í mál-
inu, væri það bænum ofviða að
ráðast einn í verkið. Tveir bæjar-
fulltrúar íhaldsmanna, Sigurjón
Jónsson og Eiríkur Kjerúlf skrif-
uðu einnig upp á úrskurð fógeta.
Pessum úrskurði var, eins og
hinum fyrri, skotið til ráðherra og
fór allt á sama veg og í fyrra
skiptið. Úrskurðurinn var felldur
úr gildi sem óformlegur og til-
efislaus. Þar með var enn einum
steini rutt úr vegi málsins.
Blaðadeilur urðu nokkrar um
málið um þetta leyti, og ritaði
Vilmundur læknir nokkrar
greinar í Skutul, blað Alþýðu-
flokksins, þar sem hann svaraði
úrtölumönnum. í grein í Vestur-
landi var því meðal annars haldið
fram að nær væri að hugsa um
atvinnufyrirtækin og hag þeirra,
því sjúkrahús byggi ekki til fram-
Ieiðslutæki. Vilmundur svaraði
þessu þannig:
Ég veit að gott sjúkrahús
hér gefur af sér á hverju ári
fleiri og færri lifandi, hrausta
og vinnandi menn, í stað
dauðra, óhraustra og óvinnu-
færra. Og hingað til hafa
vinnandi menn ekki verið sístu
framleiðslutækni.
Og í sömu grein segi hann:
Að leggja stein í götu þessa
fyrirtækis, er því sama sem að
gera tilraun til að hindra það,
að sjúkir menn og hjálpar-
þurfandi fái skjóta og góða
hjálp og aðhlynningu, fyrir
sama verð og þeir fá nú, allir
ófullkomna hjálp, margir mjög
um of seint og ýmsir enga líkn.
a6.
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
Vœnlegast til vinnings
Sýslunefndarmenn
skrífa undir
Einhvernveginn þurfti að upp-
fylla skilyrði um að brærinn og
sýslan tækju ábyrgð á fram-
kvæmd verksins, svo styrkur
ríkisins fengist greiddur. Vil-
mundur og félagar fengu því
framgengt að ef meirihluti sýslu-
nefndarmanna skrifi undir yfir-
lýsingu þess efnis að þeir myndu á
næsta fundi sýslunnar samþykkja
ábyrgð sýslunnar með bænum, þá
fengist hlutur ríkisins.
Þegar þetta var fengið, var
farið á stúfana og sýslunefndar-
menn heimsóttir eða setið fyrir
þeim í bænum, ef þeir áttu leið
um. Tókst að ná undirskriftun-
um, og segir sagan að Vilmundur
hafa setið yfir einum ágætum
útvegsbónda daglangt út á sjó, og
rökrætt við hann málið, þar til að
hann lét til leiðast. Á skjalinu var
tekið fram að bærinn myndi
útvega fé til verksins. Sýslu-
nefndin staðfesti seinna ábyrgð-
ina, en ekki var um nein fjár-
framlög að ræða frá sýslunni.
Bærinn stóð einn að byggingunni
ásamt ríkinu.
Haustið 1923 voru þessi úrslit
lögð fyrir bæjarstjóm, og kom þar
fram að Landsbankinn var til-
búinn að lána til verksins.
Samþykkti bæjarstjórn því að
hefja framkvæmdir.
Efnistakan,
atvinnubót um
vetur
Veturinn 1923-4 hófst vinna á
vegum bæjarins við aðdrætti
byggingarefnis til sjúkrahússins,
og höfðu af því atvinnu 30 til 50
menn. Atvinnuleysi var árvisst að
vetrinum í öllum bæjum á þessum
árum, og þá þröngt í búi hjá
mörgum.
Efnisútvegun til nýja sjúkra-
hússins var því kærkomin fram-
kvæmd mörgum fjölskyldu-
mönnum og um leið kaupstað-
num sjálfum.
Sandur var tekin úr rifi við
norðanverðan tangann og fluttur
í skýli við væntanlegan bygg-
ingarstað á Eyrartúni. Þá var efni
flutt innan af Skipeyri á vöru-
prömmum sem dregnir voru yfir
pollinn af vélbátum. Grjót var
hins vegar sótt upp í hlíðina fyrir
ofan bæinn og flutt á sleðum
niður á tún. Sleðaferðir þessar
voru nokkuð glæfralegar, þó ekki
fari sögur af neinum alvarlegum
óhöppum við þær.
Um vorið voru komnar á
byggingarstað 4500 tunnur af
sandi og 108 faðmar af grjóti, þar
af 70 faðmar muldir, auk sallans
sem til féll við mulninguna.
Kosnaður við allt þetta efni í
steypuna varð 13.700 krónur,
sem var nokkuð innan við áætlun.
Húsið reist á einu
ári
Bygging sjúkrahússins var
boðin út, og bárust húsameistara
ríkisins sex tilboð í verkið, hið
lægsta á 140.350 krónur, en hið