Skutull - 01.06.2007, Síða 3
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisrdðherra
og formaður Samfylkingarinnar
Stelpur -
komið með
okkur!
/ kosningunum í vor gerðist
það í fyrsta sinn i íslenskri póli-
tík að fram kom sérstök barna-
stefna, áœtlun um sextíu fram-
faraskref fyrir hörn og Jjöl-
skyidur í landinu. Við gerðum
þetta í Samfylkingunni vegna
þess að hörnin hafa of lengi
setið á hakanum í pólitískri
stefnumótun og vegna þess að
það er hlutverk jafnaðarflokka
í stjórnmálum að standa vörð
um velferð fólksins.
Nú erum við komin í ríkis-
stjóm sem hefur gert sögulegan
sáttmála um velferðarmál í
landinu og Unga ísland, en það
var nafnið sem stefnumörkunin
bar, er komin til afgreiðslu
Alþingis sem aðgerðaáætlun
ríkisstjómarinnar á kjörtímabil-
inu. Af þessu er ég stolt og tel
að þetta sé til marks um hvemig
við munum vinna sem ríkis-
stjómarflokkur þ.e. skila venju-
legu fólki raunvemlegum ár-
angri.
Jafnrceði
kynjanna
Fjölmargar konur og karlar
komu að mótun bamastefnunn-
ar eins og raunin er alla jafnan í
Samfylkingunni. Flokkurinn er
ungur, stofnaður aldamótaárið
2000, og frá fyrstu tíð hefúr
jafnræði kynja verið þar meira
en hefðbundið er í stjómmála-
flokkum á íslandi. í ráðum,
stjómum eða nefndum leggur
Samfylkingin áherslu á að eiga
bæði konur og karla og í þing-
flokknum ríkti algjört jafnræði
fyrstu tvö kjörtímabilin.
Prófkjörin fyrir síðustu kosn-
ingar reyndust konuin ekki
nógu hagstæð og því er staðan
núna ekki eins góð og jafnan
áður. Það leggur okkur á herðar
þær skyldur að skoða með
hvaða hætti flokkurinn getur
stuðlað að því fyrir næstu kosn-
ingar að hlutur kvenna verði
ekki fyrir borð borinn.
Þá farnast
öllum best
Þess vegna sendum við ykkur
góðu konur þetta blað. Við telj-
um nauðsynlegt að konur hafi
áhrif til jafns við karla á stefnu-
mótun og ákvarðanir í stjórn-
málum. Þá farnast öllum best.
Það eru engin mál annað hvort
mjúk eða hörð og ímynduð
skipting af því tagi á ekki að
ráða hvar konur eða karlar beita
sér í pólitík. Konur og karlar
eiga að láta sig öll mál varða og
leggja mismunandi reynslu sína
og þekkingu að mörkum í
stefnumótun Samfylkingar-
innar. Þannig verður góð stefna
til sem tekur mið af mismun-
andi þörfum og aðstæðum
fólksins í landinu, kvenna jafnt
sem karla. Þannig var bama-
stefna Samfylkingarinnar mót-
uð, þannig var efnahagsstefnan
mótuð og þannig er og verður
byggðastefnan mótuð.
Samrceðu-
stjórnmdl
Ég hef alla tíð lagt mikla
áherslu á það sem ég kalla sam-
ræðustjórnmál og mikilvægi
þess að umbreyta vandamálum
hins daglega lífs í viðfangsefni
stjómmála. Um það snerist leik-
skólabyltingin í Reykjavík og
um það mun átak í samgöngu-
málum, háhraðatengingum og
menntamálum einnig snúast, en
þetta em homsteinar byggða-
stefnu nútímans að mínu mati.
Ffefði samráðsstjórnmálum ver-
ið beitt í ríkari mæli frá 1983
þegar kvótakerfið komst á,
hygg ég að útkoman hefði orðið
sársaukaminni fyrir byggð í
landinu. Og núna ætti hver
kona að heyra kallið um að Iáta
ekki sitt eftir liggja í umræð-
unni um byggðimar og aðstæð-
ur barna, fjölskyldna og at-
vinnulífs á landsbyggðinni.
Ég vakti máls á því í fundar-
herferð um landið í byrjun þessa
árs að konum fækkar hlutfalls-
lega mun meira á landsbyggð-
inni en körlum. Konumar flytja
fyrst og karlamir koma í humátt
á eftir þeim. Ég benti á að þetta
sýndi nauðsyn þess að hlusta á
konur og skapa þeim ný tæki-
færi á landsbyggðinni.
Ríkisstjómin hefúr á dag-
skrá sinni að hrinda í fram-
kvæmd tillögu Samfylkingar-
innar um, að opinber störf séu
auglýst án staðsetningar, sem
er verkefni sem ég bind mikl-
ar vonir við. Nú þarf frjóa
hugsun á fleiri sviðum, póli-
tískur vilji er fyrir hendi til að
hugsa upp á nýtt.
Vertu með -
við höfum úhrif
Það stekkur enginn alskapaður
inn í pólitíkina. En hún er vel
þess virði að taka þátt í henni og
finna hvemig maður getur látið
rödd sína hljóma í þágu góðra
mála. Sjálf sá ég aldrei fyrir mér
sem ung stúlka að ég ætti eftir
að verða borgarstjóri, ráðherra
og formaður stjórnmálaflokks.
Það æxlaðist eftir að ég fann
mína eigin rödd í kvennabarátt-
unni og smám saman undu
störfin upp á sig.
Reynslan hefur kennt mér að
þótt oft hvessi í pólitíkinni færir
það manni mikla Iífsfyllingu að
setja sér að hafa áhrif á um-
hverfi sitt og berjast fyrir mál-
stað. Þátttaka í stjómmálum er
stórt tækifæri ekki síður í lífi
kvenna á öllum aldri en karla.
Gríptu það og vertu með okkur í
jafnaðarflokki íslands. Við höf-
um áhrif og bjóðum þér að koma
með og hafa áhrif með okkur.