Fjarðarfréttir - 08.06.2022, Blaðsíða 9

Fjarðarfréttir - 08.06.2022, Blaðsíða 9
www.fjardarfrettir.is 9FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 hfj.is/sjomannadagur Sjá dagskrá: Við fögnum Sjómannadegi með hátíðarhöldum á höfninni sem Hafnarfjörður er kenndur við. Skemmtidagskrá við Flensborgarhöfn, fiskasýning á Háabakka, sögusýning á Strandstíg, handverk og hönnun, vinalegir veitingastaðir og kósí kaffihús í hjarta Hafnarfjarðar. Gleðilegan Sjómannadag! Sjómannadagurinn 12. júní í Hafnarfirði Ratleikur Hafnarfjarðar nýtur sívaxandi vinsælda enda frábær leikur sem dregur fólk vítt og breitt um bæjarlandið, og jafnvel víðar, þar sem ýmsar perlur er að finna, merki um mannvist fyrri alda og náttúruvætti. Ratleikurinn hófst sl. föstudag er mæðgurnar Bára Hálfdanardóttir og Sóley Harpa Aronsdóttir fengu afhent fyrstu kortin en Sóley er aðeins 2ja ára og tók fyrst þátt í leiknum í móður­ kviði. Bára hefur tekið þátt í leiknum í um sjö ár og er í góðum hópi sem kallar sig Gönguhópurinn hvatvísi sem hún segir oft fara af stað í meiri bjartsýni en fyrirhyggju. Sóley hefur tvö síðustu ár farið með í leikinn og notið útivistarinn­ ar. Í ár eru það gamlar þjóðleiðir, götur og stígar sem er þema leiksins en víða um bæjarlandið má finna ummerki um ferðir íbúa fyrri alda sem hafa markað spor í jarðveginn á leið sinni t.d. til næstu verbúðar eða í sel. LEIKUR FYRIR ALLA Leikurinn hentar því sem næst öllum og fólk hefur val um að leita að hluta af merkjunum eða þeim öllum 27 og keppa um það að verða Þrautakóngur ársins. Finni fólk 18 merki og skilar inn lausnum getur það átt möguleika á að verða útnefnt Göngugarpur ársins og þeir sem finna 9 merki geta hlotið nafnbótina Léttfeti ársins. Veitt eru vegleg verðlaun sem fyrir­ tæki hafa af rausnarskap gefið og einnig útdráttarverðlaun sem þeir eiga möguleika á að fá sem mæta á upp­ skeru hátíðina í haust en leikurinn stendur til 26. september nk. FRÍTT ÚTIVISTARKORT Gefið er út vandað útivistarkort sem fæst án endurgjalds á ýmsum stöðum í bænum, m.a. á sundstöðum, í Bóka­ safninu, í Fjarðarkaupum og víðar. Það er Hönnunarhúsið ehf. sem gefur út leikinn í samstarfi við Hafnar fjarðar­ bæ en aðalstyrktaraðili leiksins í ár er Rio Tinto á Íslandi. Guðni Gíslason lagði leikinn í 15. sinn en Ómar Smári Ármannsson hefur veitt ómetanlega aðstoð en hann heldur úti fróðleiks­ síðunni ferlir.is þar sem finna má ógrynni af fróðleik um Reykanesið. Nánar má sjá um leikinn á ratleikur. fjardarfrettir.is og á Facebook síðunni Ratleikur Hafnarfjarðar. 25. Ratleikur Hafnarfjarðar hafinn 27 ratleiksmerki er að finna vítt um bæjarlandið sem þátttakendur hafa allt sumarið til að finna Bára og Sóley Harpa, virkir þátttakendur í Ratleik Hafnarfjarðar fá fyrstu kortin úr hendi Guðna umsjónarmann leiksins. Lj ós m .: Fj ar ða rfr ét tir - Kr is tja na Þ ór dí s Ás ge irs dó tti r Rat leikur Hafnarfjarðar Sumarið 2022 HEILSUBÆRINN Hafnar örður facebook.com/ratleikur ratleikur.fjardarfrettir.is Vinsamlegast færið merkið EKKI úr stað! Ratleikur Hafnarfjarðar 2022 H Ö N N U N AR H Ú SI Ð E H F - 8 96 4 61 3 Ratleikurinn stendur til 25. september 2022. Eftir það er vel þegið að merkjunum sé skilað í þjónustuver bæjarins í Ráðhúsinu. Látið gjarnan vita á Facebooksíðunni ef þið hafið tekið merki og skilað. fréttamiðill Hafnfirðinga HEILSUBÆRINN Hafnar örður Aðalstyrktaraðili: RAT-022 25 25. facebook.com/ratleikur ratleikur.fjardarfrettir.is Vinsamlegast færið merkið EKKI úr stað! Ratleikur Hafnarfjarðar 2022 H Ö N N U N AR H Ú SI Ð E H F - 8 96 4 61 3 Ratleikurinn stendur til 25. september 2022. Eftir það er vel þegið að merkjunum sé skilað í þjónustuver bæjarins í Ráðhúsinu. Látið gjarnan vita á Facebooksíðunni ef þið hafið tekið merki og skilað. fréttamiðill Hafnfirðinga HEILSUBÆRINN Hafnar örður Aðalstyrktaraðili: RAT-022 25

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.