Fjarðarfréttir - 08.06.2022, Blaðsíða 6

Fjarðarfréttir - 08.06.2022, Blaðsíða 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 ÞJÓNUSTA, ÍBÚALÝÐRÆÐI OG FJÁRMÁL • Áhersla verður lögð á að auka skil­ virkni og bæta viðmót í þjónustu við íbúa. • Stafræn þjónusta áfram bætt og þró uð, sbr. ábendingagátt. • Íbúar verði hvattir til frekari þátttöku í stefnumótun, ákvörðunum og lýð­ ræðislegri umræðu í bæjarfélaginu. • Áhersla verður áfram á ábyrgan rekst ur og aðhald í útgjöldum. • Haldið verður áfram að lækka álögur og gjöld með sérstakri áherslu á barna­ fjölskyldur. FJÖLSKYLDAN OG FÓLKIÐ • Gjöld á barnafólk í skólakerfinu verði áfram lækkuð, meðal annars fyrir skólamáltíðir og þannig stigin markviss skref í þá átt að gera þær gjaldfrjálsar. • Leikskóladagurinn verði endur skipu­ lagður með það að markmiði að bæta starfsaðstæður barna og starfsmanna. • Unnið verði að því að tryggja börnum dagvistun frá því að fæðingarorlofi lýkur með fjölbreyttum leiðum og stuðn ingi við dagforeldrakerfið og bilið brúað þar til leikskóladvöl hefst. • Frístundastyrkir verði teknir upp við þriggja ára aldur á tímabilinu og frí­ stundaakstur verði fyrir öll börn. • Skólahúsnæði verði nýtt betur í þágu eldra fólks, t.d. í dans, til sauma eða smíði og skólamötuneyti verði þeim opin. • Heilsueflandi samfélag styrkt enn frek­ ar fyrir alla aldurshópa, m.a. með heima þjálfun til eldra fólks og stutt verði við tómstundir til kynningar fyrir börn. • Haldið verði áfram að byggja upp fjöl­ breytta þjónustu, afþreyingu og heilsu­ eflingu fyrir eldra fólk og skipulagðar íbúðir og hjúkrunarheimili í ólíkum hverfum bæjarins, sbr. á Sólvangssvæði, í Hamranesi/Völlum og á Hrafnistu­ svæðinu. • Haldið verður áfram að innleiða samn­ ing Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. • Unnið verði að samþættingu heima­ þjónustu og heimahjúkrunar í sam­ vinnu við heilbrigðisráðuneytið. • Aukin verði upplýsingagjöf til innflytj­ enda með kynningu á réttindum þeirra og fjölmenningarráðið eflt. • Unnið verði að eflingu og stækkun heilsu gæslunnar í samvinnu við ríkið með áherslu á heilsugæslu á Völlum/ Hamranesi. • Unnin verði húsnæðisáætlun og fram­ tíðarsýn um uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk sem taki mið af því að tryggja samráð við íbúa um búsetukosti ásamt því að stytta biðtíma. • Haldið verður áfram að efla einstak­ lingsbundinn stuðning við börn í anda Brúarinnar og farsældarlaganna. • Haldið verður áfram að auka lífsgæði fyrir fólk með geðraskanir. MENNTUN OG MENNING • Úthlutunarlíkan til grunnskóla verði endurskoðað með hliðsjón af almenn­ um kennslustundum og stoðþjónustu til að innleiða til fulls skóla án að ­ greiningar. • Unnið verði að stækkun Tónlistar­ skólans og möguleikar nemenda til að geta stundað tónlistarnám í sínum grunnskóla auknir. • Aðstaða fyrir leikhús verði tryggð. • Aðbúnaður frístundaheimila og félags­ miðstöðva bættur, m.a. til búnað ar­ kaupa og heimanáms. • Áfram verður áhersla á menning ar­ tengda starfsemi og viðburði til að efla mannlíf og bæjarbrag. • Unnin verður áætlun til næstu ára varð­ andi íþróttaaðstöðu við þá grunnskóla sem ekki eru með íþróttahús. Greindur verður kostnaður við keyrslu í íþrótta­ hús til lengri tíma, samhliða gert kostnaðarmat á byggingu íþróttahúsa og rekstri þeirra. ÍÞRÓTTIR OG TÓMSTUNDIR • Endurbótum á Suðurbæjarlaug verður lokið og hafinn undirbúningur að endurbótum á útisvæði við Ásvallalaug. • Haldið verður áfram uppbyggingu íþrótta mannvirkja í samræmi við áherslur ÍBH, þar sem knatthús Hauka og reiðhöll Sörla eru komin á fram­ kvæmdastig. • Næstu verkefni eru að tryggja fram­ tíðarhúsnæði fyrir dansíþróttafélag Hafnarfjarðar og Brettafélagið. • Áfram verður unnið samkvæmt hjól­ reiðaáætlun bæjarins og hjóla­ og göngu stígar í bænum og upplandinu endurskoðaðir til að auka möguleika til útivistar, efla vistvænar samgöngur og tengingar við önnur sveitarfélög. • Unnið verði að skipulagi nýs golfvallar. SKIPULAG, UMHVERFI OG UMFERÐ • Lóðum í Áslandi 4 verður úthlutað í upphafi kjörtímabils og áfram verður unnið við skipulag á næsta nýbygg­ ingar svæði í landi Hafnarfjarðar, Vatns hlíð. • Lögð verður rík áhersla á upptöku svæðis skipulags höfuðborgarsvæðisins svo brjóta megi nýtt land og tryggja þannig nauðsynlegt lóðaframboð til framtíðar samhliða þéttingu byggðar. • Skilvirkni í skipulagsmálum verði bætt með áherslu á styttri afgreiðslutíma tillagna og erinda sem berast til skipu­ lagsyfirvalda. • Framtíðarlausnir á umferðarálagi við Reykjanesbraut, frá gatnamótum við Setberg að Kaplakrika/Álftanesvegi verði settar í forgang í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgar svæð­ isins. • Uppbygging framtíðarhúsnæðis og koma Tækniskólans til Hafnarfjarðar áfram undirbúin. • Settar verði upp rafhleðslustöðvar fyrir bíla og hjól við stofnanir bæjarins. • Hellisgerði verði fegrað og endurbætt fyrir aldarafmæli garðsins með nýju deiliskipulagi sem felur í sér algilda hönn un og þjónustuhús. • Áfram unnið að hreinsun og fegrun umhverfis og viðhaldi gatna og eigna bæjarins. • Komið verði upp útivistar­ og almenn­ ings svæði á Völlum. • Lögð verður áhersla á uppbyggingu í mið bænum og á hafnarsvæðinu. Skipu lag á svæðunum styðji við eldri byggðir og verndun bæjarbragsins ásamt því að ýta undir blómlegt bæjarlíf og fjölbreytta þjónustu. ATVINNU- OG FERÐAMÁL • Áfram verði fjölgað atvinnulóðum til að anna mikilli eftirspurn. • Gerð verði stefna um uppbyggingu atvinnulífs með áherslu á nýbyggingar­ svæði. • Tækifæri verði nýtt í Krýsuvík til efl­ ing ar ferðamennsku með uppbyggingu þjónustumiðstöðva, auðlindagarðar og nýtingar auðlinda svæðisins. • Álagningarprósenta fasteignagjalda áfram lækkuð. • Stuðla að nýsköpun og klasatækifærum tengdum Tækniskólanum. MÁLEFNA SAMN INGUR FLOKK ANNA 2018: Nýr meirihluti með 44,4% atkvæða Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hafa birt málefnasamning og munu deila bæjarstjórastólnum Gróska, vellíðan, framsýni er yfirskrift málefnasamnings þeirra tveggja flokka sem mynda meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Eru það 6 af 11 bæjarfulltrúum sem gera með sér málefnasamning, 4 full trúar Sjálfstæðisflokksins og 2 fulltrúar Framsóknar. Þessir flokkar hlutu þó aðeins 44,4% greiddra atkvæða en vegna d‘Hondt úthlutunarreglunnar sem stuðst er við, fengu Sjálfstæðisflokkur og Samfylking einum fleiri bæjarfulltrúm en atkvæða magn þeirra segir til en Vinstri græn og Píratar fengu ekki fulltrúa sem þeir hefðu átt að fá ef hlutfallslegt vægi atkvæða réði. Málefnasamningurinn er stuttur, um helmingi styttri en málefnasamningur sömu flokka fyrir 4 árum síðan. Þó það komi ekki fram í málefna samn ingnum þá tilkynntu oddvitar flokkanna að samkomulag hefði verið um að þeir deildu bæjarstjórastólnum á milli sín, Rósa Guðbjartsdóttir verði áfram bæjarstjóri næsta 2½ árið og Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar yrði oddviti síðasta 1½ árið af kjörtíma bilinu. Valdimar Víðisson (B) og Rósa Guðbjartsdóttir (D) undirrita málefnasamninginn í Hellisgerði sl. miðvikudag. Lj ós m .: Af F ac eb oo k sí ðu H af na rfj ar ða rb æ ja r

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.