Merkúr


Merkúr - 07.08.1940, Blaðsíða 1

Merkúr - 07.08.1940, Blaðsíða 1
j /{. a 2 01 Útgefandi: FÉLAG VERZLUNAR- OG SKRIFSTOFUFÓLKS, Siglufiröi. Siglufiröi, miðvikudaginn 7. ágúst 1940. Það fer ekki illa á því, að um leið og Félag verzlunar og skrif- stofufólks í Siglufirði gefur út fyrsta blað sitt, verði að einhverju leyti minnst á tilgang og fram- tíðarverkefni félagsins. í lögum verzlunarmannaélagsins, eins og þau voru samþykkt á stofnfundi þess 7. júli 1937, segir svo um markmið þess: -Tílgangur félagsins er að efla og þroska þekkingu félagsmanna og vinna að sameiginlegum áhuga- málum þeirra, þannig að til heilla megi verða verzlunarstéttinni í heild sinni«. Svo mörg eru þau orð. Það verður ekki sagt með sanni, að línurnar í tilfærðri lagagrein séu sérstaklega skýrar eða marki nákvæmlegatilætlunina með félags- starfseminni. Þó verður því ekki neitað, að hér er »hátt til Iofts og vítt til veggja*, svo að fjölþætt starf til þurftar verzlunarfólki hér í bænum, rúmast vel innan vé- banda laganna, og þurfa þvi laga- smiðirnir engan veginn að skamm- ast sín fyrir afkvæmið. Hvað er það þá sem gera þarf? Þrátt fyrirþað, hversu óljósa stoð við- leitnitilkjarabótaá í lögum verzlun- armannnfélagsins hér, tel eg vafalítið að meðlimir þess vilji almennt, að það sem önnur stéttarfélög gangi fyrst og fremst til starfs með það fyrir augum að -maturinn sé manns- ins megin«. Með tilliti til þess, verður að gera ráð fyrir hags- munastarfsemi öðru fremur. Það er með verzlunarstéttina hér og hagi hennar eins og margt annað, sem »siglfirzkt« er, að sundurleitnin er e.t.v.helztaeinkennið. Þettaáekki eingöngu við það, að í henni eru ýmsir utanaðkomandi bæði eg og aðrir, heldur einkum og aðallega hitt, að launakjörin eru ákaflega misjöfn. Þótt talsverður hluti verzlunar- og skrifstoufólks hér í bæ sé mjög sæmilega launaður, verður slíkt hið sama engan veginn sagt um alla einstaklinga stéttarinnar. Á þessu hefir því miður engin rannsókn farið fram ennþá, en vitað er þó með vissu, að fyrir sams- konar störf fara fram hinar ólíkustu launagreiðslur. Þetta er nauðsyn- legtað koma í veg fyrir sem allra fyrst. Það er ekki eingöngu sjálfs sín vegna, sem verzlunarfólkið verður að fyrirbyggja stórfeldan mismun í launagreiðslum fyrir hlið- stæða vinnu, heldur einnig, og ekki síður, með tilliti til kaupgreiðend- anna, sem vitanlega má ekki mis- muna í þessu efni. Samræming kaupgjaldsins er því nærtækt verk- efni sem gera þarf skil sem allra fyrst. í beinu sambandi við samræm- ingu kaupgjaldsins, verður að taka til íhugunar hinar ýmsu greinar verzl- ni. unarstarfsins. Þótt verkaskipting sé ekki margþætt innan siglf. verzl- unarlífs, hvað launþegum viðkem- ur, virðist mér að hjá því verði ekki komist hér frekar en annars staðar, að flokka vinnuna nokkuð, ogákveða hærra kaup fyrir ábyrgð- armeiri störf; í samræmi við það, sem á sér stað í sambærilegum kaupstöðum, þar sem verzlunar- mannafélög eru starfandi og samn- ingsaðilar gagnvart vinnuveitend- um. Auk þess, sem drepið hefir verið á sérstaklega í sambandi við hags- munamál stéttarinnar, verður það að sjálfsögðu ævarandi verkefni félags okkar að vaka yfir velferð meðlima sinna, hvað atvinnu þeirra snertir, og með stillingu og festu halda fram réttarkröfum þeirra í samræmi við breytta tíma, eftir því sem aðstaða öll leyfír. Með tilliti til þessa, þarf að koma því sem fyrst til leiðar, að félagið verði samningsaðili um kaup og kjör meðlima sinna og komi fram fyrir þeirra hönd gagnvartatvinnu- rekendunum Sjálfsagt er fyrir verzlunarfólk ekki síður en aðra, að gera sér grein fyrir og viðurkenna í verki, að ekki tjáir að einskorða sig við það að gera kröfur til annarra. Það fer ekki vel, ef langt er haldið á þeirri braut. Þess vegna er það, að jafnframt því sem gerðar eru tilraunir til kjarabóta, þarf að vaxa almennur áhugi fyrir starfshæfni og dugnaði. Eg hygg að til við- bótar verzlunarþekkingu þeirri, er einstakir félagsmenn búa yfir, hefðu allir gagn af að leiða hesta sína saman og rökræða á félagsfundum einstökatriði viðkomandi starfi sínu, og þannig miðla hver öðrum af reynslu sinni. Slíkt tiðkast m. a. í Svíþjóð innan fræðsluhringa verzl- unarmanna, og er talið að hafa ómetanlega þýðingu. Mér finnst að gera þyrfti tilraun með starfsemi í þessa átt, og þannig frá félagsins hálfustuðlaaðtvennu í senn: aukn- um félagsþroska og oft nauðsynlegri en aldrei óþarfri vakningu í starfi. Fræðslustarf er ávalt nauðsynlegt, og væri óskandi, að hér á landi, eins og í nágrannalöndunum, sér- staklega Svíþjóð, verði hin ýmsu félög fólksins til þess að ryðja braut slíkri starfsemi, hvert fyrir sig og sameiginlega, og verði þann- ig öll meira og minna — hvað sem tilgangi þeirra að öðru leyti líður — menningar- og fræðslufé- lög. Með því móti áynnist vafa- laust ákaflega mikið til aukins þroska og víðsýnis, og sannleikan- um yrði í einu og öðru gert hærra undir höfði en nú er með þjóð okkar. Þess er óskandi, að Félag skrifstofu- og verzlunarfólks hér eigi eftir að sinna þessum málum af alúð og skilningi. Það er oft sagt, enda er það sígildur sann- leikur, að maðurinn lifi ekki af brauði einu saman. Þess vegna er það, að fólk — bæði sem einstak- lingar og félagsverur — gerir sér far um ráða bót á þeirri vöntun í sálarlífi einstaklinganna, sem veld- ur ýmist hálfgerðum skepnuskap eða beinum lífsleiða. Eg er sann- færður um það, að eitt helzta ráð- ið til að ráða bóta á slíku er að nota frístundir sínar að jafnaði til nytsamlegra starfa, andlegra og lík- amlegra, og eg held að varla sé hægt að gera þær ávaxtaríkari né heillavænlegri með öðru en þrot- lausri, margþættri þroskaviðleitni. Og þótt hver einn geti komizt langt í þessu efni, verður árang- urinn sjálfsagt stórkostlegri, þegar margar sálir samstillast í yfirlætis- lausri, einlægri leit eftir fegurð og góðleik. Það er augljósara en um þurfi að ræða, hversu störf verzlunar- fólks eru einhæf og þreytandi til lengdar. Slíku inni-setu- og -stöðu- Á V A R P. Gódfús lesandi! Þetta blað, sem nú hefur göngu sína, er 1. tölublað »Mt,tiKUR'S, málgagn verzlunarmanna hér a sigiufiröi. Félag verzlunar- og skrifstofufólks œtlar þó ekki með þessu að hefja reglubundna blaðaútgáfu málefnum sínum til styrktar, en hyggur, að með útgáfu þessa blaðs gefist meölim- unum kostur á að rœða áhugamál sín á sem breiðustum grund- velli, og jafnframt kynna starfsemi félagsins þeim verzlunar- mönnum, sem ennþá hafa ekki sótt um upptöku í félagið, eða meðlimum, sem af óskiljanlegum orsökum hefir reynst um megn að sœkja hina fáu opinberu fundi þess. Að þessu sinni mun blaðið flytja lesendum sínum m. a. ágrip af sögu félagsins og framtíðaráformum, einnig viðtal við elzta starfandi verzlunarmann kaupstaðarins, svo og greinarum verzlunarstarfsemina hér og þróun hennar. Þó þessu fyrsta blaði kunni að vera áfátt að einhverju leyti, vonum vér að útgáfa þess marki tlmamót í sögu félags- ins, jafnframt vœntum vér þess, að það gefi lesendunum nokkra hugmynd um starfsemi félagsbundinna verzlunarmanna hér í bœ, og þýðingu hennar fyrir batnandi afkomu stéttarinnar. Blaðnefndin. fólki er því öðrum fremur þörf á líkamlegri áreynslu og alhliða þjálfun sér til hressingar og heilsubótar. Siglfirzkt verzlunar- fólk hefir, eins og aðrir bæjarbúar, frekar örðuga aðstöðu fil slíkra líkamsiðkana. Að vísu var mjög bætt úr skák, þegar sundlaugin nýja komst í notkun, en það er ekki nóg. Það er nauðsynlegt, að verzlunarfólk og aðrir, sem hlið- stæðum störfum gegna, hafi að- gang að fimleikahúsi með tilheyr- andi baðtækjum, og geti þannig stundað reglubundna líkamsrækt í eigin flokkum, sem þjálfaðir væru með sérstöku tilliti til sérstöðu þess og þarfa, því vitanlega kæmi ekki til mála að miða íþróttaíðk- anir slíks fólks við opinbera sýn- ingu einu sinni á ári, eða keppi um verðlaunapening. Þeir einstakl- ingar stéttarinnar, sem áhuga hafa fyrir slíku, myndu leita til annara félaga með þjálfun. Ein aðgengilegasta íþrótt fyrir verzlunarfólk er »tennis« eða aðrir hliðstæðir knattleikir. Ber margt til þess, en ekki er ástæða til að rökræða það hér. Skilyrði til slíkra leikja verður ekki sagt að séu ryi,. 1.^..j; ; —gnoblilíiiiu, llVOrkí úti né inni, og er það hið mesta mein. Til þess að skapa aðstöðu til íþróttaíðkana fyrir verzlunarfólk, er nauðsynlegt að vinda bráðan bug að því, að láta félagið taka virkan þátt í viðleitni umaðkoma upp viðuna'ndi fimleikahúsi og íþróttavelli, sem hæfur sé til al- hliða útiíþróttaiðkana. Siglufjarðar- bær er ekki svo stór, að einstök félög megi tvístra kröftum sínum í þessu máli, heldur ættu þau að sameinast í einu allsherjar- átaki um að hrinda því í fram- kvæmd sem allra fyrst. Það blæs að vísu ekki byrlega sem stendur, hvað fjárhagshliðina áhrærir, en það er þó hægt að undirbúa máiiö á ýmsa lund og magna til sóknar. Það er rétt, að þegar hefir verið gert nokkuð til framdráttar íþrótta- vallarmálinu, en betur má, ef duga skal, og íþróttahússmálið virðist að mestu liggja í þagnargildi. Svo má ekki verða til lengdar. Eg hefi nú lauslega drepið á nokkur atriði í sambandi við hugsanleg framtíðarverkefni Félags verzlunar- og skrifstofufólks í Siglufirði. Ýmislegt fleira hefði mátt segja í þessu sambandi, en hér verður staðar numið, enda mætti það teljast viðunandi, ef hægt væri að gera þeim fáu við- fangsefnum, sem á er minnst, nokkur skil í náinni framtið. Eitt helzta skilyrðið fyrir því, að svo megi verða, er að allt vevzlunar- fólk í bænum fylki sér undir merki félagsins, — ekki sem sofandi eða hálfsofandi hengilmænur, heldur sem áhugasamt og hugsandi fólk, með fullum mannsbrag. Þaðereins með verzlunar-mannafélagið og önnur félög; það þarfnast ekki »dauðra« meðlima, aðeins til þess hæfa að lengja nafnalistan. í fé-

x

Merkúr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Merkúr
https://timarit.is/publication/1778

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.