Mosfellspósturinn - 11.12.1981, Blaðsíða 1
HÁR
SNYRTISTOFAN
ÞVERHOLTI
SÍMI 66090
22. tbl. - Föstudagur 11. desembar 1981 - 2. árg.
Lausasöluverð kr. 8.
Laugardaga 10-6
Aðra daga opið 10-6
Athugið: Pað er opið í hádeginu.
V.
I Kátt í Þverholti á morgun
Öll fyrirtækin í verzlunarmiöstöðinni í
Þverholti kynna starfsemi sína með
jólasveinum, lúðrablæstri, hlutaveltu,
vörukynningu og veitingum
„Allir í húsinu taka sig saman
um að gera þessa jólagleði sem
allra skemmtilegasta. Það koma
hér jólasveinar, minnstu börnin
fá poka með einhverju góðgæti.
Við ætlum að hafa hlutaveltu þar
sem verða sjötíu vinningar. Ekki
má gleyma því að lúðrasveitin
leikur skemmtileg jólalög og það
verða kaffiveitingar og einhver
önnur hressing á boðstólum”
sagði Helga apótekari erMP hitti
nokkra verzlunareigendur í
Þverholtinu að máli einn morg-
uninn í vikunni.
Það stendur mikið til. Allir eru
á einu máli um að gera nú verzl-
unarmiðstöðina jólalega og
koma öllum sveitungunum og
öðrum sem leið eiga um hlaðið
hjá okkur í jólastuð.
Fyrir utan það sem að ofan
greinir verða vörukynningar í öll-
um verzlunum og á hárgreiðslu-
stofunni, sem allar eru opnar til
klukkan sex annað kvöld. Hefj-
ast hátíðahöldin klukkan tvö eftir
hádegi, en að sjálfsögðu verða
allar verzlanirnar opnar frá því
klukkan níu um morguninn eins
og lög gera ráð fyrir.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
allir í húsinu hér taka þátt í ein-
hverju svona sameiginlegu"
sagði Helga apótekari. „Kannski
verður þetta upphafið að því að
við getum árlega verið með
svona jólagleði annan laugar-
daginn í desember", sagði
Helga.
Hún benti m.a. á að þetta væri
ekki sízt gert til þess að koma í
veg fyrir að Mosfellingar væru að
„bera vatn yfir lækinn“, það er,
að fara til Reykjavíkur í óþörfum
erindum til þess aðkaupa þær
vörur sem einnig er hægt að fá
hér heima fyrir. Sumt er meira að
segja bæði ódýrara og betra hér
efra heldur en í sjálfum höfuð-
staðnum.
Höldum jólaverzluninni innan-
sveitar eftir því sem nokkur kost-
ur er. Spörum benzínið og not-
um tækifærið og skemmtum
okkur í leiðinni hér heima við.
Allir í Þverholt á morgun.
-sjá bls. 3.
Við eigum það
sem ykkur
vanhagar um
í jólamatinn.
Munið eftir
kertamarkaðin-
um hjá okkur.
Gerið verð-
samanburð.
Aukið vöruúrval.
Lægra vöruverð.
Ykkar markaður er:
HjlÞfflMt
i Kljásteini — Simi 66656
Komnir úr f jöllunum
Jólasveinarnir eru nú komnir úr fjöllunum.
Þessir sáust við Skyggni. Þeir eða félagar
þeirra verða á hátíðinni í Þverholti á morgun.
Kannski líka á vöku Stefnis og Leikfélagsins
í Hlégarði á sunnudagskvöld. MP-mynd S.
Slökkvitæki
í hvert hús
- sjá bls. 4
Á flugvél í
vinnuna
— s já bls. 5
Erfiðleikar
Aftur-
eldingar
— sjábls.6og 10
Jólasæl-
gæti búið til
— sjá bls. 8 og 9
Jólaglögg
í jólamánuði
— s já bls. 9