Mosfellspósturinn - 11.12.1981, Side 6
6
Útgefandi: Útgáfufélagið Búbót.
Ritstjóri: Anna Bjarnason.
Hönnun: Atli Steinarsson.
Auglýsingar og ritstjórn:
Merkjateigi 2, Mosfellssveit, sími 66142.
Setning og umbrot: Leturval sf., Ármúla 36,
sími 33840.
Prentun: Prentval, Súðarvogi 7, sími 33885.
„Hvað get ég gert
fyrir sveitarfélagið?”
í Mosfellssveit búa nú liðlega þrjú þúsund manns. Það þýðir að
sjötugasti og fimmti hver íslendingur eigi þar lögheimili. Gífurleg
umskipti hafa orðið í byggðarlaginu vegna hins ört vaxandi þétt-
býlis og breytingar úr landbúnaðarhéraði í þéttbýlissvæði með
öllum þeim séróskum og sérkröfum sem slíku fylgja.
Þessi umbylting hefur ekki átt sér stað án átaka eða ágreinings.
Á ýmsum tímum hefurfólksfjölgunin í Mosfellshreppi verið hraðari
en sveitarfélagið réði í raun og veru við. Of hröð fjölgun íbúa
kemur við alla íbúa sveitarfélagsins á þann hátt að þjónusta og
skyldur sveitarfélagsins verða ekki uppfylltar sem skyldi. Skóla-
byggingar, leikvellir, gatnagerð, samgöngumál, símstöðvarmál
og ýmislegt fleira helst ekki íhendurviðfólksfjölgunina. Ríkisvaldi
er þar eins oft um að kenna og stjórn sveitarfélagsins.
Vel flestir una sér vel hér og má með ólíkindum teljast hve
fjölskrúðugt og sjálfstætt félagslíf þrífst meðal Mosfellinga. Hér
starfar rótgróið og samhent kvenfélag, sem rekur fjölbreytta starf-
semi. Hérstarfa Rotary, Kiwanis og Lions klúbbar. Hérerdugmik-
ill karlakór, sem hefur samhent lið eiginkvenna sér við hlið. Hér
starfar hestamannafélag og hestaeign íbúa mun hér tiltölulega
meiri en dæmi má finna til annars staðar. Hér starfar leikfélag og
lúðrasveit af miklum krafti auk ótal margra annarra félaga. Ofan-
greind Uþptalning er nefnd sem dæmi um gott félagslíf en er ekki
nákvæm upptalning.
Alls staðar í þeim félgsdeildum, þar sem fólkið er sjálft virkir
þátttakendur, erstarfið öflugt og í réttumfarvegi. Harterþvíaðvita
til þess, að æskan og ungmennin skuli vera eini „hópurinn” sem
nú biður um hjálp og telur illa horfa sínum hag.
Þetta á t.d. við um Ungmennafélagð Aftureldingu, gamlan
augastein og uppáhald Mosfellinga á ýmsan hátt. Félagið á að
vísu ýmsa keppnisflokka sem ná ágætum árangri og eru víða
sómi sveitarfélagsins. Þarna kreppir því skórinn ekki að, þar sem
virkir þátttakendur eiga í hlut frekar en annars staðar.
En Afturelding, sem félag, hefur átt við erfiðleika að stíða og nú
nálgast staðan neyðarástand. Tilfinnanlega vantar leiðtoga og
stjórnendurtil starfahjáfélaginu. Það vatnar þá sem viljafórnasér
fyrir aðra og vinna undirbúnings og skipulagsstörf án þess að taka
á annan hátt þátt í starfinu. í ótal félögum, og einnig í UMF
Aftureldingu, fyrr og nú, hafa slíkir menn verið til. En núna skortir
tilfinnanlega heila sveit leiðtoga og félagsmanna, sem vilja lyfta
Aftureldingu uþp úr öldudal. Slíkt krefst fórnfúsra handa. Reynsla
þeirra sem að slíkum störfum hafa unnið af einlægni er sú, að
bestu launin fáist þegar raunhæfum árangri er náð. Veitir slíkt
miklu fyllri lífsánægju en peningagreiðslur geta nokkru sinni veitt.
Á sviði annars unglinga og æskulýðsstarfs í Mosfellshreppi telja
ungmennin að ekki hafi verið staðið nógu vel á verði og í þeim
efnum hafi ekki verið haldið í við ýms önnur byggðarlög. Er auðvit-
að við ramman reip að draga þar sem er höfuðborgin, með alla
sína hálaunuðu æskulýðsfulltrúa og félagsmiðstöðvar.
En takist vel það átak, sem fyrir dyrum stendur í þessum efnum,
kunna breytingar að vera skammt undan. Þá verða íþróttir og
æskulýðsmál heldur ekki lengur lægsti liður útgjalda hreppsins.
íbúar Mosfellssveitar geta án efa unað sæmilega við gang
flestra málaflokka sveitarfélagsins. Auðvitað má um allt deila og
ekki verður ávallt öllum gert til hæfis. íbúar og sveitarstjórn verða
hins vegar alltaf að standa á verði til að sveitarfélagið okkar, sem
nú þegar telur stjötugasta og fimmta hvern íslending, sé ávallt í
sókn og sífellt sé hugað að og unnið að auknum framförum og
sköpun betra sveitarfélags.
Hér er vakin athygli á öflugu félagsstarfi í sveitarfélaginu en
átakanlegum skorti leiðtoga í Ungmennafélaginu Aftureldingu.
Látum það ekki spyrjast að það merki falli á nokkurn hátt.
íbúar Mosfellssveitar, bæði innfæddir og aðfluttir eiga ekki ætíð
að Sþyrja: Hvað get ég fengið frá sveitarfélaginu eða hvernig get
ég notið góðs af því. Spurningin á einnig að vera: Hvað get ég gert
fyrir sveitarfélagið?, svovísað sé í fleyg orð frægs manns.
Magnús Ólafsson, verkfræðingur:
Snjóruðrtings-
áætlun
Mosfellshrepps
Aðalvegir ruddir og séð fyrir bílastæðum
þegar götur teppast vegna snjóa
Nú um þessar mundir er lítill
snjór en hann getur komið fyrr en
varir og teppt götur og vegi. Því er
rétt að vera undir það búinn sem
frekast er kostur.
þar sem snjómokstur er dýr og
útilokað er að halda öllum götum
opnum verður í vetur lögð áhersla
á að halda opnum götum að skól-
um, leikskóla, heilsugæslustöð
svo og aðkomuleiðum að helstu
byggðakjörnum. Á meðfylgjandi
uppdrætti eru merktir með rauðu
þeir vegir sem áhersla er lögð á að
halda opnum virka daga frá kl. 8-
19. Einnig er sýnt á uppdrættinum
sérstök stæði fyrir bíla, sem bif-
reiðaeigendur eru hvattir til þess
að nota ef fyrirsjáanlegt er að göt-
ur teppist. Skal sérstaklega tekið
fram að óskað er eftir að bifreiðum
sé lagt á þessi stæði frekar en
meðfram rauðmerktu götunum
vegna erfiðleika sem þær gætu
valdið snjóruðningi þar.
Stæði þessi eru við Áhaldahús
ofan Helgalands og við Reykjaveg
rétt vestan lækjar.
Til frekari glöggvunar eru taldar
hér upp á eftir þær götur, sem á-
hersla er lögð á að halda opnum:
A: Vesturlandsvegur (Vegagerð
rikisins)
B: Hlíðartúnshverfi
1 )Aðaltún að Hlíðartúnsgötu
C Holtaog Tangahverfi
1) Þverholt
2) Stæði við Áhaldahús
3) Álfholt að Byggðaholti
4) Álftatangi að Brekkutanga
5) Langitangi að Skólabraut
6) Hlaðhamrar (leikskóli)
7) Skólabraut— Háholt.
D: 1) ónefnd gata neðan Ása-
hverfis að stæði ofan Helga-
lands.
E: Teigahverfi
1 )Jónsteigur að Stórateig
F: Reykjahverfi
1) Reykjavegur
2) Reykjavegur að stæði vest-
an lækjar.
Aðrar götur en þær, sem að ofan
eru taidar verða opnaðar eftir því
sem aðstæður leyfa og tími vinnst
til.
Dreifbýlið
í dreifbýli sveitarinnar verður
leitast við að opna neðantalda
vegi tvisvar í viku, á þriðjudögum
og föstudögum. Eru bændur og
aðrir sem hlut eiga að máli hvattir
til að haga flutningum sínum í
samræmi við það. Snjómokstur á
þessum vegum er unnin í sam-
vinnu við Vegagerð ríkisins.
G: Mosfellsdalur
1) Þingvallavegur (Vestur-
landsvegur— Gljúfrasteinn)
OPIÐ
FRÁ KL.
9-12
og 13-18
EINNIG
OÐIÐ Á
LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 13-18
Hvort
GLIT
HÖFÐABAKKA 9.
SÍMI85411.
REYKJAVÍK.
heldurjarið er í bæinn eða komið
heim er GLIT alltafí leiðinni
með úrval aj
handunnu keramiki og steinleir:
Blómapottar, sœlkerakrúsir,
kajji- og matarstell, plattar og
öskubakkar
A.St
7
Hfemii
\
LEIRVOGUR
GAGNFRÆDASKÓLl
\ RMÁRBREKKA
/£r«07^S
V SUNNUFELl
URÁSHAMAR
ÍÞRÓTTAHÚ'.
BARNASKÖLl
SUNDLAUG
LEIKSKÓLI
SKRIOuFEi
HELGAFELi
.HELGA-
'GRUNDART.
áhalDahj
MOSFELLSHREPf
Hl AOHAMRAR
þvERHOL
TRULLAGIL —^___
BRÚARHÓLL
VINjAR
BIRKITEIGUR^
*?SP J
KAUPFÉLAG
jRH
ÁLAFOSS
HAMRABORL
jjA£j£|
SKRIF-
STOFUR
RETKJAlJNOuR
VERKSMIÐJA|
HULDUHÓLAI
SVEINSSTACIR
HAMRAFELL
ÁGAFELi
ÁLATÚN.
Terdi Ase
BlÓMSTURVELLI R
OJELUSTOD
ARNARFELi
^^SÖLBAKKI
kvenNabrekka
\^HVARF
EKRA
'RE TKJA-
BORG
S TEKKjARUIi
EYRAR-
HVAMMUR
1ELGEROI
ÁRBC i
HEIDARBI
SKUGGABJORG
.ÁGAFELLSHÚS
.RLYKjABRAu.
BORG
SuDUR-
RtfKlR
uAHVOlL
Rtykholl
AKRAR
MOSFELLSHREPPUR
ÞÉTTBÝLISKJARNI
2) Reykjahlíðan/egur
3) Hrísbrúarvegur
4) Minna—Mosfellsvegur að
Minna—Mosfelli
5) Norður—Reykjavegur að
Varmalandi
6) Helgadalsvegur
H: Suðursveitir
1) Úlfarsfellsvegur frá Reykja-
vegi að Vesturlandsvegi
Aðrir vegir en þeir sem að ofan
greinir verða því aðeins opnaðir
að aðstæður leyfi og brýna nauð-
syn beri til.
Sérstaklega skal tekið fram, að
vegir og götur verða því aðeins
ruddar, að fyrirsjáanlegt sé að
snjómoksturinn komi að gagni,
þ.e. að vegurinn teppist ekki jafn-
skjótt og mokað er.
Að endingu eru íbúar hreppsins
hvattir til að sýna þolinmæði og
tillitssemi þegar ófærð gerir, því
yfirferðin er mikil og álag á þeim
mönnum sem að snjóruðningi
vinna mjög mikið.
Magnús Ólafsson,
verfræðingur Mosfellshrepps.
Mosfellingar
Byrjið jólagjafainnkaupin í Lofn.
Við erum íjólaskapi með fulla búð af
nýjum jólavörum.
Meðal annars nýjar gjafavörur,
sem fást hvergi annars staðar,
skartgripi, jólaskraut, kerti í úrvali,
jólaskreytingar og leiðisgreinar.
LÍTIÐINN!
LOFN
Blóm og gjafavörur
Þverholti, Mosfellssveit - Sími 66745
til jólagjafa
Herra
velúrpeysurnar
vinsælu
eru komnar aftur.
Margir góðir litir.
Full búð af fallegum
jólavörum.
VERZLUNIN
FELL
Þverholti — Sími 66077
Chicco-íeikföngin
vinsælu komin aftur.
Munið glæsilega úrvalið okkar
af snyrtivörum.
MOSFELLS APÓTEK
ÞVERHOLTI - 270 MOSFBLLSSVEIT -FÓSTHÓLF 255
SÍMI 66640
Niöursoönir ávextir
Niöursoðnir ávextir
ANANAS:
ISI-bitar 1/1 ds.......... kr. 49.80
ISI-bitar1/2ds............ kr. 33.75
ISI-sneiöar 1/2ds......... kr. 42.00
Heaven Temple-sneið. 1/1 ds kr. 36.45
Heaven Temple-sneið. 1/2 ds kr. 27.30
Diadem-sneiðar 3/4 ds...... kr. 44.55
Red & White-sneiðar....... kr. 55.35
Red & White-mauk.......... kr. 55.35
Dole-bitar 3/4 ds......... kr. 40.50
Dole-sneiðar.............. kr. 46.35
$3 m
PERUR:
Del Monte 1/1 ds........ kr. 58.95
Coop 1/1 ds............. kr. 55.35
Coop1/2ds............... kr. 34.05
Ligo1/1ds............... kr. 67.05
Wheatsheaf 1/2 ds....... kr. 29.85
Tom Piper 1/2ds ........ kr. 34.50
Ky 1/1 ds............... kr. 59.85
Ky 1/2 ds............... kr. 40.80
Monarch1/1ds............ kr. 80.55
Monarch1/2ds............ kr. 51.30
Red&White1/1 ds......... kr. 76.65
Red & White 1/2 ds...... kr. 37.20
Barttett 1/4 ds......... kr. 14.10
Heart’s delight 1/1 ds... kr. 58.80
Flyging Wheel 1/1 ds.... kr. 53.10
BLANDAÐIR ÁVEXTIR:
Monarch1/1ds........... kr. 80.55
Monarch1/2ds........... kr. 52.80
Red & White 1/1 ds..... kr. 77.40
Red & White 1/2ds...... kr. 32.85
Shopwell 1/4ds......... kr. 18.15
Tom Piper1/2ds ........ kr. 40.20
Tom Piper 1/1 ds ...... kr. 70.05
Red & White 1/2ds...... kr. 52.05
Cockothe walk 1/2 ds.... kr. 43.20
Ky 1/2 ds.............. kr. 47.40
Heart’s delight 1/2ds.. kr. 43.20
AnnPage1/1ds........... kr. 85.35
|3###
JARÐARBER:
Bulgar1/1ds........... kr. 55.95
Veluco 1/1 ds.......... kr. 80.85
Samodan1/2ds........... kr. 54.00
Royal Norfolk 1/2 ds .. kr. 40.65
Lockwoods 1 /2 ds...... kr. 46.35
Lockwoods 3/4 ds...... kr. 68.25
Lockwoods 1/4ds....... kr. 31.05
SÉRTILBOÐ
Afsláttur af öllu gosdrykkum í
heilum kössum.
Eplakassi 18 kg.. kr. 13.90 kg
Appelsinukassi 15 kg kr. 12.40 kg
Sælgæti í stórkostlegu
úrvali.
OPIÐALLAN
DAGINN
Sparimarkaðurinr
Austurveri
S I \