Mosfellspósturinn - 11.12.1981, Síða 9
9
fÍÍsTllNN
JÓLAGLÖGG
í JÓLAÖNNUM
- bæði með
og án áfengis
Sá skemmtilegi siður að bjóða
upp á jóalglögg í jólamánuðinum
er orðinn útbreiddur hér á landi.
Gjaman eru hafðar piparkökur
með, - þá e.t.v. búðarkökur, því
fæstir eru sennilega búnir að baka
smákökurnar í byrjun desember.
Aðaluppistaðan í jólaglöggi er
rauðvín, en ekki erendilega nauð-
synlegt að það sé alltaf áfengt.
Alveg má nota óáfengt rauðvín
eða hreinlega góða saft. Aðalatr-
iði er að stemningin náist, en auð-
vitað sakar ekki að hýrga aðeins
upp á sálartetrið endrum og sinn-
um með áfengu glöggi.
Til eru fjölmargar uppskriftir, en
hver og einn getur auðvitað samið
eigin glögg uppskriftir, eftir að
hafa einu sinni fengið eins konar
grunn uppskrift.
1 flaska rauðvín
1 -1,5 dl sykur
1 dl afhýddar möndlur, skornar í
flísar
3-4 kanelstengur
nokkrir negulnaglar.
Öllu er blandað saman í pott og
hitað vel upp, en athugið að þetta
má alls ekki sjóða. Látið síðan
standa í pottinum, undir loki í
nokkra klukkutíma, eða lengur.
Hitið upp áður en glöggið er borið
fram. Hægt er að bera glöggið
fram sigtað, þannig að rúsínurnar
og hitt góðgætið er ekki haft með.
Líka er hgæt að bera glöggið fram
í bolluskál og hafa þá allt með. Ef
notað er óáfengt rauðvín er glögg-
ið búið til ásama hátt.
í Reykjavík hafa fengist sér-
stakirglögg kryddpokar, má nefna
verslunina Jurtina við Lækjartorg.
Annars er enginn vandi að búa til
eigin kryddblöndu.
ABÆTIR UR AFGANGI
JÓLAGRAUTARINS
m
Hrísgrjónagrauturinn er ómiss-
andi liður í jólamatnum. Langbezt
er að búa til dálítið stóran skammt
til þes að geta búið til deser úr
afganginum. Hér er tillaga að hrís-
grjónadeser með karamellusósu:
ca 200 gr grautur
1 tsk vanilla
75grmöndlur
1/2 I rjómi
Karamellusósa
150 gr sykur
1 dl vatn
3 dl rjómi
Rétt áður en á að bera þennan
rétt fram er rjóminn þeyttur og
blandað saman við grautinn. Látið
vanilluna og afhýddar, hakkaðar
möndlurnar útí. Látið grautinn
annaðhvort í eina stóra skál eða í
deserskálar, sem er mjög smart.
Hellið þá svolítilli karamellusósu í
glasið fyrst og látið síðan grautar-
deserinn. Látið svo þeytta rjóm-
ann út í karamellusósuna og ofan
á grautinn.
Best er að búa karamelluna í
sósuna til nokkrum dögum fyrir jól
(eða það er í það minnsta hægt).
Hún geymist ágætlega í luktu íláti í
kæliskáp.
Bræðið sykurinn á stó.rri pönnu.
Hristið pönnuna fram og aftur, en
hrærið ekki i sykrinum. Rétt áður
en sykurinn ætlar að verða dökkur
er pannan tekin af hellunni og
vatninu hellt útí. En gætið að ykk-
ur. Þetta freyðir mjög mikið. Nú á
að hræra í þar til sósan verður
samfelld. Látið hana kólna. Þeytt-
um rjóma er svo blandað saman
við karamelluna rétt áður en sós-
an er borin fram. Þessi sósa er
góð með ýmsum öðrum ábætis-
réttum, t.d. með vanilluís.
FRANKFURTARKAKA ER
BÆÐIGÓÐ OG FALLEG
Frankfurtarkaka er ekki bara
góð á bragðið, hún er líka puntu-
leg á kaffiborðinu. Hún er best
svona einum til tveim dögum eftir
að kreminu hefur veirð smurt á
hana, en hana verður að geyma í
luktu íláti, annaðhvort undir köku-
hjálmi eða í rúmgóðri dós. - í
rauninni er Frankfurtkakan ekki
annað en f ín sandkaka sem skorin
er í 2-3 lög og gott vanillukrem
látið á milli laga og utan á kökuna.
Fínt muldu núgga með möndlum
er stráð utan á. Sandkökuna má
baka hvort sem er í aflöngu venju-
legu sandkökuformi eða í hring-
formi.
Kakan
250 gr smjörl.
250 gr sykur
4 egg
250 gr hveiti
1 pakki Royal vanillubúðingsduft
Hrærið smjörlíkið (best að nota
jurtasmjörlíki) vel með sykrinum
og bætið eggjunum út í. Hrærið
þar til deigið er alveg orðið hvítt,
því lengur sem það er hrært á
þessu stigi, því betri verður kakan.
Að því búnu er hveitið og búðings-
duftið látið út í.
Smyrjið formið vel að innan,
langhentugast er að nota Pam úr
úðabrúsa. Bakast við ca 200°C í
ca 35-45 mín. eða þar til kakan er
orðin Ijósbrún að ofan. Látið kök-
una kólna á rist. Skerið hana svo í
tvö eða þrjú lög og smyrjið van-
illukremi á milli laga og utan á kök-
una.
Kremið:
Okkur hefur reynst langsam-
lega best að nota kremið sem
uppskrift er að aftan á Royal van-
illubúðingspökkunum. Það er
magn sem passar á eina köku úr
hringformi og eina úr litlu aflöngu
formi. Benda má á, að það er gott
að hafa dálítið mikið krem á milli
laga.
Loks er núgga.num stráð utan á
kökuna þannig að hún verði alveg
hulin með núgganu.
Vel má vera að einhver kannist
við þessa köku undir einhverju
öðru nafni. Við kunnum ekki skýr-
ingu á þessu nafni, - en við höf-
um þekkt hana í minnsta kosti
þrjátíu ársem Frankfurtarköku!
Við óskum ykkur góðs
gengis við tilbúninginn!
Dagmamma
óska eftir dagmömmu fyrir fjögurra mánaöa
dreng frá kl. 7:30- 16:30 mánudaga til
föstudaga, eftiráramót. Erí Grundartanga.
Upplýsingarísíma 66983.
Fyrir jólin m.a.:
Kerfi, aðventuljós, föndurvörur, jólaskraut, jólapappir, merklmiðar, jóta-
kort, nýtt kort af Lágafellskirkju.
Leikföng, hljómplötur, allar nýjustu bækurnar fyrir börn og fullorðna og
margt fleira.
Eitthvað fyrir alla.
VERIÐ VELKOMIN.
s.f.
Þverholti - 270 Mosfellssveit - Sími 66620
Nú þurfa stórar og þrýstnar
konur ekki lengur aö leita.
Höfum á boðstólum
gott úrval afkjólum, blússum,
skokkum, kápum og drögtum
í yfirstærðum.
Allt smart föt á þær ,,vel
vöxnu”.
Lesendur MosfelSspóstsins fá 10%
kynningarafslátttil jóla.
ISULL
Aðalstræti 8, Reykjavik, sími 21435