Mosfellspósturinn - 11.12.1981, Qupperneq 11
11
7ft°sí
.Hs
fclíasltia
Teppamað-
urinn í Amar-
tanganum
Nýlega bar svo til að maður
nokkur var að leggja teppi í húsi
einu í Arnartanga. Húsráðendur
voru báðir að heiman við vinnu
sína og teppalagningarmaðurinn
einn í húsinu. Pegar hann var bú-
inn að líma teppið vandlega niður
ætlaði hann að fá sér sígarettu.
Hann fann hvergi sígaretturnar
sínar, en á miðju stofugólfinu var
ofurlítil bunga upp úr teppinu.
Svona rétt á stærð við sígarettu-
pakka.
Par sem teppamaðurinn var
einn heima og klukkan orðin
margt nennti hann ekki að rífa allt
teppið upp til að ná sígarettu-
pakkanum. Hann trampaði því á
bungunni í teppinu þar til hún var
svo gott sem horfin. Svo fór hann
heim.
Um kvöldið hringdi húsráðandi í
teþþamanninn. Þakkaði honum
fyrir teppalögnina og sagði að
hann hefði fundið sígarettupakk-
ann hans í eldhúsinu. Svo spurði
húsráðandi:
„Ekki vænti ég að þú hafir séð
hamsturinn okkar, því við getum
hvergi fundið hann?“
Það fara engar sögur af því
hverju teppamaðurinn svaraði.
Til reiöu!
Mosfellingur, sem þekktur
er fyrir hnittin tilsvör og
ákveðni var með konu sinni á
hóteli á Spáni. Honum brá í
brún er hann fékk reikninginn.
Hótelstjórinn útsýrði fyrir hon-
um að þetta væri vanalegt
verð fyrir tveggja manna her-
bergi með baði og litasjón-
varpi.
,,Ég notaði aldrei litasjóna-
varpið, sagði Mosfellingurinn.
„Alveg sama“, sagði hótel-
stjórinn. ,,Það stóð þarna til
reiðu, ef þú hefðir kært þig um.
„Fyrst svo er“ sagði Mos-
fellingurinn, „ætla ég að kæra
þig fyrir að hafa haldið við kon-
una mína á meðan við höfum
dvalið hér“.
„Það hef ég alls ekki gert„
svaraði hótelstjórinn.
„Ekki það nei. En hún vartil
reiðu ef þú hefðir kært þig
um“, svaraði Mosfellingurinn.
Um tíu
þúsund kr.
ágóöi af jöfia-
basarnum
Sextíu og fimm konur skiluðu
munum á jólabasar kvenfélagsins
sem haldinn var- um mjðjan nóv-
ember í Hlégarði. Stefanía Helga-
dóttir skýrði frá starfi basarnefnd-
arinnar á jólafundi félagsins sl.
mánudagskvöld.
Gat hún þess að félagskonur
hefðu ekki verið nægilegadugleg-
ar að skila munum á basarinn.
Sagði Stefanja að það væri leiðin-
legt að þurfa að hringja í konur og
biðja þær um muni þegar þær
kærðu sig ekki einu sinni um að í
þærværi hringt. Slíkirfélagarættu
að fá undanþágu frá störfum hjá
formanni.
Formaður, Margrét Ólafsdóttir
og Gunnhildur Hrólfsdóttir tóku
báðar í sama streng. Félagar í
kvenfélaginu ættu því að taka sig
á og mæta á fundum og vinna þau
störf sem þeim eru falin í framtíð-
inni.
Hins vegar tókst jólabasarinn
vel, nærri allir munirnir seldust
upp á örskömmum tíma. Ágóði var
um tíu þúsund kr. að frádregnum
kostnaði. Það sem eftir var af
munum var selt á jólafundinum.
Stefanía hafði orð á því að kon-
urnar sem vinna á leikskólanum
hefðu verið einkar liðtækar í til-
búningi á skemmtilegum jólamun-
um og hefði það ekki sízt verið
þeim að þakka hve vel basarinn
tókst.
Sýning á
bótasaumi
Næstu viku stendur yfir sýning í
bókasafninu á verkum þeirra
nemenda sem þátt tóku í bóta-
saumi í Námsflokkunum. Bóka-
safniðeropið kl. 16-20.
Leiörétting
í síðasta M-Pósti var getið um
átak í að slitleggja götur. Réttilega
var sagt, aú 63% gatna væri nú
lagður slitlagi. Til samanburðar
var sagt að 29% gatna hefðu verið
lagðar slitlagi 1967. Þar átti að
standa 1977.
<LITLRBILR5TBDIN>
eigm
bílastöö
Nokkrir af meðlimum skólahljómsveitarinnar skemmtu sér konuglega eftir að kökurnar á basarnum þeirra
höfðu klárast eins og dögg fyrir sólu.
3 5,3 ’ MPmyndA.Bj
Lúörasveitin dreifir
áríöandi símanúmerum
Mundir þú lesandi góður,
hvert var t.d. símanúmer
slökkvistöðvarinnar? Ekki
gerðum við það!
r SLÖKKVISTÖÐIN 11100 ’
LÖGREGLAN 51166
LÆKNAVAKT 66201
. LEIGUBÍLAR 66006 ,
Þessa dagana eru meðlimir
Lúðrasveitarinnar að dreifa lím-
miðum með mjög áríðandi síma-
númerum í öll hús sveitarinnar.
Eru þetta símanúmer slökkvi-
stöðvarinnar, lögreglu, lækna-
vaktar og leigubílastöðvarinnar.
Þetta eru smekklega hannaðir
límmiðar sem ætlaðir eru til þess
að líma á síma íbúanna. Miðar
þessir eru gefnir öllum símnot-
endum, en það er Litla bílastöðin
sem stendur straum af fyrirtæk-
inu.
Fjáröflunarfyrirtæki Lúðra-
sveitarinnar hafa gengið mjög
vel undanfarið. Kökubazarinn á
sunnudaginn var mjög vel
heppnaður. Allar kökurnar seld-
ust upp á fimmtán mínútum. Má
segja að þar fengu færri en vildu.
Þá hafa meðlimir lúðrasveitar-
f———
innar einnig selt kerti og tókst sú
sala einnig mjög vel.
Lúðrasveitin vill gjarnan koma
þakklæti til allra Mosfellínga og
annarra sem hana hafa styrkt
með góðum undirtektum og von-
ar að sveitungarnir hafi haft
gaman af leik sveitarinnar.
Á morgun gefst fólki kostur á
að heyra til sveitarinnar leika
bæði jólalög og önnur fjörug
jólalög við verzlunarhúsið í Þver-
holti, en þá verða allar verzlan-
irnar þar opnar til kl. 6 síðdegis.
Á sunnudaginn leikur lúðra-
sveitin á jólavöku karlakórsins
Stefnis og Leikfélagsins sem
haldin verður í Hlégarði.
Zlltíma
Erum nýbúin að endurskipuleggja
HEIMILISDEILD OKKAR.
Mikið úrval gluggatjalda og sængurfataefna
og tilbúins sængurfatnaðar.
Enn er tími til að fá sér ný gluggatjöld fyrir jólin.
Verið velkomin.
Httíma
Kjörgarði,
Laugaveg 59, sími 22208
BÚNAÐARBANK!
ÍSLANDS MOSFELLSSVEIT
lnnlaAt rhankann
Búnaöahér oQ bygðda
kemurÞ góða.
lagi Þ'nU 1
Afgreiðslutími:
Mánud. - föstud. kl. 9.15 — -16,00
Á fimmtudögum kl. 17.00- -18 00